Fréttablaðið - 20.04.2007, Qupperneq 68
Óhefðbundna fegurðarsam-
keppnin Óbeisluð fegurð
var haldin með pompi og
prakt í félagsheimilinu í
Hnífsdal á miðvikudags-
kvöld. Matthildur Helga-
dóttir, einn skipuleggjenda,
segir stemninguna hafa
verið ólýsanlega.
„Stemningin var eins og á fyrstu
Aldrei fór ég suður hátíðinni. Það
er eins og það gerist eitthvað sér-
stakt þegar margir koma saman í
svona litlu húsi og eru svona ofsa-
lega kátir,“ sagði Matthildur.
Að hennar sögn gekk kvöld-
ið eins og í sögu. „Veislustjórinn,
Halldór Jónsson, er snillingur í
stemningu,“ sagði hún. Þar fyrir
utan sungu kórar matar- og keppn-
isgestum til skemmtunar, boðið
var upp á uppistand og einleik.
„Þetta var líka allt svo afslappað,“
sagði Matthildur. „Ég veit að ein-
hverjir höfðu áhyggjur af því að
þetta yrði eitthvað kjánalegt, af
því að hugmyndin er náttúrlega
svo fíflaleg. Það var alls ekki.
Öll skipulagning gekk líka út á
að bera virðingu fyrir keppend-
um og sýna fram á að fegurðin er
afstæð og persónuleg upplifun,“
sagði hún.
Í takt við þá afstöðu var aðal-
titill keppninnar, Óbeisluð fegurð
2007, dreginn út. Hann hlaut Ásta
Dóra Egilsdóttir, sem salurinn
kaus jafnframt Uppáhalds 2007.
„Hún kom, sá og sigraði þessi
kona,“ sagði Matthildur. Öðrum
titlum útdeildi dómnefndin sjálf,
með mismunandi skýringum. Sjálf
hlaut Matthildur titilinn Michelin
2007, þrátt fyrir að vera ekki
keppandi. „Gröfukarlinn, félagi
minn í dómnefndinni, sagði að það
væri vegna þess að ég væri svo
slitsterk,“ sagði Matthildur hlæj-
andi. Þegar Ólöf Hildur Gísladótt-
ir var útnefnd Töltari 2007 skilaði
hrossaræktandinn í dómnefnd-
inni séráliti með útskýringum á
valinu. „Hann las upp einhverja
rullu um fótaburð á fagmáli sem
ég get ekki haft eftir,“ sagði Matt-
hildur.
Enn liggur ekki fyrir hversu
mikils fjár Óbeisluð fegurð hefur
aflað fyrir Sólstafi á Vestfjörð-
um, en Matthildur er bjartsýn á að
það hafi verið töluvert. „Þórey Vil-
hjálmsdóttir, sem sat í dómnefnd-
inni, kom líka færandi hendi með
styrk frá V-deginum,“ sagði hún.
Spurð um mögulega Óbeislaða
fegurð 2008 hikar Matthildur. „Eins
og ég lít á þetta í dag var þetta ein-
stakur viðburður. Hins vegar er
alveg gerlegt að gera þetta aftur.
Það er ekkert sem útilokar það,“
sagði hún. „Í dag erum við bara
þreyttar og stefnum ekkert að því.
En maður veit samt aldrei hvað
maður gerir, maður skyldi tala var-
lega,“ sagði hún og hló.