Fréttablaðið - 20.04.2007, Síða 72
skemmtilegri
Kallaður Chris Webber af félögunum
Tvær breytingar urðu
á stjórn HSÍ á ársþinginu. Inn
koma ÍR-ingurinn Hólmgeir Ein-
arsson og Vestmannaeyingur-
inn Hlynur Sigmarsson. Sá síðar-
nefndi er með umdeildari mönn-
um innan hreyfingarinnar en
seint verður deilt um drifkraft og
dugnað Eyjamannsins.
„Ég fór bara beint í uppvask-
ið eftir þingið. Það var mitt fyrsta
verk. Flestir fóru út en ég varð
eftir og fór að safna saman glös-
um og diskum. Þannig gerum við
hlutina í Eyjum,“ sagði Hlynur
léttur í gær.
Hann hefur verið ófeiminn við
að gagnrýna handknattleiksfor-
ystuna um árin en gerir væntan-
lega minna af því þar sem hann
er sjálfur kominn í stjórn.
„Nú hefur maður tækifæri til
að láta til sín taka. Stefnan er að
gera sitt besta og láta gott af sér
leiða,“ sagði Hlynur en hyggst
hann beita sér fyrir einhverju
sérstöku? „Ég vil sjá HSÍ í betri
tengslum við félögin í landinu
en forystan er of langt frá félög-
unum í dag. Það kemur vonandi
ferskara blóð með okkur Hólm-
geiri.“
Hlynur fékk mjög góða kosn-
ingu sem hann segist vera þakk-
látur fyrir en það kom honum
ekkert sérstaklega á óvart að
hafa komist inn.
Fór beint í
uppvaskið
Ársþing HSÍ fór fram
á miðvikudag. Margt athyglisvert
gerðist á þinginu en upp úr stend-
ur að fallið var frá tillögu um að
fjölga liðum í efstu deild og setja
úrslitakeppnina aftur á koppinn.
Ekki var samstaða um þá tillögu.
Annars vekur mikla athygli að
HSÍ skilar tæplega þriggja millj-
óna króna hagnaði og það er af
sem áður var í rekstri sambands-
ins. Hann hefur gengið ótrúlega
vel og skuldir verið þurrkaðar út
á methraða.
„Staðreyndin er sú að Handknatt-
leikssambandið skuldar í dag að-
eins þrjár milljónir og síðan ég tók
við sem framkvæmdastjóri hafa
skuldirnar minnkað um einar 50
milljónir króna. Vonandi komumst
við í plús á næsta ári,“ sagði Einar
Þorvarðarson, framkvæmdastjóri
Handknattleikssambandsins, en
hann má vera stoltur af þessum
árangri sem og Guðmundur Ágúst
Ingvarsson formaður sem tók við
ónýtu búi árið 1996.
„Staðan var glórulaus þegar ég
tók við en skuldirnar voru hátt
í 200 milljónir króna með öllu.
Þessi árangur náðist með hjálp
góðra manna. Við neyddumst til
að keyra sambandið í nauðasamn-
inga og ríkisstjórnin studdi okkur
verulega og veitti okkur fjárveit-
ingar af fjárlögum.
Nauðasamningar tókust þótt
ekki hefðu allir verið sáttir og
einhverjir hefðu ætlað að koma í
veg fyrir það,“ sagði Guðmund-
ur Ágúst við Fréttablaðið í gær en
allt starf sambandsins hefur verið
mun markvissara síðan.
„Þrátt fyrir fjárhagsvandann
gerðum við okkur grein fyrir
því að við yrðum að keyra stíft á
afreksstefnu. Það hefur enginn
áhuga á að styrkja eitthvað sem er
ekki neitt. A-landslið karla hefur
oftar en ekki verið í fremstu röð
og það hefur skapað okkur tekjur.
Svo eru stelpurnar að sækja í sig
veðrið og unglingaliðin hafa unnið
mörg mót. Þetta hjálpar allt til.“
Það var ekki beint slegist um að
setjast í formannsstól HSÍ þegar
Guðmundur tók við stjórnartaum-
unum og sumir sögðu það vera óðs
manns æði.
„Það voru ekki margir eins vit-
lausir og ég og þeir sem tóku slag-
inn með mér en ég er að sjálfsögðu
ekkert einn í þessu,“ sagði Guð-
mundur og hló. „Auðvitað er ég
stoltur af því sem við höfum náð
að afreka en þetta hefur líka verið
skemmtilegt. Maður hefur kynnst
mörgu skemmtilegu fólki og lent í
ýmsum uppákomum.
Á ársþinginu var stjórn HSÍ
gefin heimild til að skipa heiðurs-
formann og Guðmundur hlýtur að
vera fyrstur manna til að hljóta þá
nafnbót.
Staða HSÍ er loksins orðin góð eftir áralangt basl. Eftir HM-ævintýrið árið 1995 var staða sambandsins
mjög alvarleg. Guðmundur Ágúst Ingvarsson og félagar hafa unnið þrekvirki við að koma HSÍ-skútunni
aftur á réttan kjöl og sambandið skuldar aðeins þrjár milljónir króna í dag.