Fréttablaðið - 20.04.2007, Síða 78
1
6 7 8
10
13
119
12
15
16
18
21
20
17
14
19
2 3 4 5
Stuttmynd Kosta Ríka-búans
Estebans Richmon um samband
sitt við fyrirsætuna Heiðveigu
Þráinsdóttur hefur slegið í gegn
á YouTube.com. Tengill á umrætt
myndband, Love Story on My
Space, hefur gengið manna á milli
á netinu við miklar vinsældir.
Tenglasíðan 69.is setti upp teng-
il á heimasíðu sinni og yfir átta
þúsund manns hafa barið mynd-
bandið augum samkvæmt talningu
YouTube. Þegar Fréttablaðið náði
tali af Heiðveigu í gær baðst hún
undan því að tjá sig um málið.
Myndbandið er ákaflega tilfinn-
ingaþrungið og þar greinir Este-
ban frá því hvernig þau kynntust
í gegnum My Space. Fljótlega hafi
þau farið að ræða málin á msn og
loks hafi Heiðveig komið í heim-
sókn til hans í Suður-Ameríku. En
þegar fyrirsætan var komin aftur
heim hafi hins vegar slitnað upp
úr sambandinu. Esteban er ekki
sáttur við þær lyktir mála og bjó
hann myndbandið til án samþykk-
is Heiðveigar.
Þegar farið er inn á heimasíðu
Kosta Ríka-búans á My Space má
augljóslega sjá að hann hefur kol-
fallið fyrir Heiðveigu því hana
prýðir mikill fjöldi mynda af
henni og þeim tveim saman. „Ég
trúði því ekki að svona stelpur
væru til,“ skrifar Esteban. „En
vegir ástarinnar eru órannsakan-
legir og þetta litla ævintýri sann-
ar það,“ bætir hann við.
Íslensk ástarsaga slær í gegn á netinu
Þorvaldur Bjarni Þorvaldsson
situr nú sveittur og semur hljóm-
sveitarverk úr tónlist Ávaxtakörf-
unnar fyrir Sinfóníuhljómsveit Ís-
lands. Áætlað er að það verði flutt
12. júní en þetta barnaleikrit Þor-
valds og Kristlaugar Maríu Sig-
urðardóttur sló eftirminnilega
í gegn þegar það var frum-
sýnt árið 1998. Það var síðan
tekið aftur til sýningar árið
2003 og var aðsóknin
engu síðri þá.
„Þetta er ótrúlega
skemmtilegt efni og það er gaman
að gera svona sinfónískt efni fyrir
krakkana,“ útskýrir Þorvaldur
Bjarni þegar Fréttablaðið náði tali
af honum. „Söngleikurinn fjall-
ar um liti og hvað allir eru ólíkir
og ég ætla að leitast við að reyna
að sýna hið ótrúlega fjölbreytta
litróf hljómsveitarinnar þannig
að börnin átti sig betur á hlut-
verki hennar,“ bætir Þorvaldur
við en þetta er ekki í fyrsta
skipti sem Sinfónían og
Þorvaldur taka höndum
saman því hljómsveit-
in Todmobile hélt tón-
leika með sveitinni fyrir nokkrum
árum þar sem lög hennar höfðu
verið færð í stílinn.
Enn á eftir að semja við sögu-
menn og söngvara fyrir tónleik-
ana en eftir því sem Fréttablað-
ið kemst næst munu þau Selma
Björnsdóttir, Valgerður
Guðnadóttir, Andrea
Gylfadóttir, Örn Árna-
son og Björgvin Franz
Gíslason lesa og
bresta í söng þegar
við á. Þorvaldur er
annars að leggja
lokahöndina á
tónlistina fyrir
kvikmyndina
Astrópíu en ný-
lega auglýsti
hann eftir
lögum frá
lítt þekktum
hljómsveitum
fyrir myndina.
„Okkur hefur
borist alveg heill
hellingur af góðri
tónlist og við ætlum
að setjast niður eftir
helgi til að hlusta á
herlegheitin.“
Ávaxtakarfan verður að sinfóníu
„Icelandic Fish and Chips er í
miklu uppáhaldi hjá fjölskyld-
unni en þar er góður og hollur
matur og þar má lita á dúkinn."
Íslensk fálkaorða er á meðal muna
sem orðu- og myntsalinn Najafg-
holi Chalabiani býður upp á eBay
þessa dagana. Á heimasíðu fyrir-
tækisins Najaf Coins and Collect-
ibles, sem Chalabiani rekur í Van-
couver í Kanada, má finna ellefu
íslenskar fálkaorður til viðbótar.
„Það er ljóst mál að það má
ekki selja fálkaorður,“ sagði Örn-
ólfur Thorsson forsetaritari um
málið. „Það eru ákveðnar reglur
um fálkaorðuna, og þær fela í sér
að eftir að sá sem ber fálkaorðu er
fallinn frá ber erfingjum að skila
henni til embættisins. Hún á sem
sagt ekki að fara úr höndum þess
sem hana hlýtur nema til að koma
til baka, það eru skýrar reglur,“
sagði Örnólfur.
Hann segist áður hafa orðið var
við að fálkaorður séu boðnar upp
á eBay eða svipuðum netsíðum, en
veit ekki til þess að það hafi verið
gert í slíku magni. „En ég bendi á
það að það er ekki fullvíst
að þarna sé um raunveru-
legar fálkaorður að ræða,
þarna gætu verið eftir-
líkingar á ferð,“ sagði
Örnólfur.
Ekki er hægt að skera
úr um hvort fálkaorð-
urnar á heimasíðu Chala-
biani séu raunveruleg-
ar, en í orðsendingu frá
Najaf Coins and Collectibles seg-
ist hann ábyrgast að allir munir
séu ósviknir. Í samtali við Frétta-
blaðið sagðist Chalabiani kaupa
orður um heim allan, annaðhvort
í verslunum eða á uppboðum, en
gaf ekki upp hvaðan þær íslensku
væru fengnar. Hann sagð-
ist þó finna fyrir nokkurri
eftirspurn eftir íslensk-
um orðum. „Það eru ekki
til það margar íslenskar
orður, þetta er lítið land.
En heimurinn er stór og það
er alltaf hægt að finna ein-
hvern áhugasaman,“ sagði
Chalabiani, sem kvaðst ekki
hafa selt margar íslenskar
orður í gegnum tíðina. Sem upp-
hafsboð á eBay setti Chalabiani
tæplega 7.500 bandaríkjadali, eða
um 490.000 íslenskar krónur. Sú
dýrasta á heimasíðu hans kost-
ar ríflega 700.000 íslenskar krón-
ur. „En við vitum ekki hvort þær
fara fyrir þetta verð,“ sagði Chala-
biani.
Orðunni á uppboðssíðunni eBay
fylgir skjal sem virðist vera undir-
ritað af Vigdísi Finnbogadóttur, þó
að erfiðara sé að átta sig á á hvern
skjalið er stílað og hvenær það
var afhent. Ekki er heldur hægt
að skera úr um hvaðan orðan er
komin. „Fálkaorður eru ekki núm-
eraðar og því er ógerningur að
rekja þær,“ sagði Örnólfur. Fjöldi
þeirra sem þegið hafa fálkaorðu
á lýðveldistíma liggur ekki fyrir,
en unnið er að lokafrágangi heild-
arskrár yfir þá. Verður skráin að-
gengileg innnan skamms á heima-
síðu embættisins. Í dag veitir for-
seti Íslands um tíu til fjórtán orður
tvisvar sinnum á ári.