Fréttablaðið - 20.04.2007, Blaðsíða 80
50% erlendar lágvaxtamyntir - 50% íslenskar krónur. Þannig færðu lánið á lægri vöxtum en býrð við mun
minni gengisáhættu en ef lánið væri 100% í erlendri mynt. Fáðu nánari upplýsingar og ráðgjöf í útibúum Glitnis
eða í þjónustuveri síma í 440-4000.
4,5%
* M.v. vaxtatöflu og 1 mánaða libor vexti 13.04.2007 ** Verðtryggt jafngreiðslulán
*** 50% íslenskar krónur / 50% erlent lán í CHF og JPY **** EUR, USD, GBP, CHF og JPY
SAMANBURÐUR Á LÁNUM
100% íslenskar krónur**
NÝTT HELMINGASKIPT LÁN***
Engin
Hófleg
Mikil
Lág
Lág
Há
Hæg
Í meðallagi
Hröð
4,95%
4,50%*
6,14%*100% erlend myntkarfa****
VEXTIR GREIÐSLUBYRÐIGENGISÁHÆTTA EIGNAMYNDUN
Ný helmingaskipt húsnæðislán með lægri vöxtum
Það fór allt í bál og brand síð-asta vetrardag þegar óþyrmi-
legasta höfuðskepnan gerði sig
heimakomna í nokkrum þekktustu
brunagildrum Reykjavíkurborg-
ar. Sem betur fer varð ekki mann-
skaði. Kannski er það vegna þess
að ég er ekki uppalinn í Reykja-
vík að ég ber hryssingslega litlar
taugar til húsanna sem urðu eldin-
um að bráð; Kebabhúsið og Prav-
da skipuðu ekki stóran sess í mínu
hjarta. Ég hef alltaf hálfvorkennt
sagnfræðingum sem lóðsa fólk um
„gömlu Reykjavík“ og reyna að út-
skýra hvað sé svona merkilegt við
húsin sem hýsa Strawberry Club,
Café Victor og Vegas Champaigne
[svo] Club. Þessi dagur markaði
engu að síður tímamót í mínum
huga, straumhvörf, því í fyrsta
sinn sá ég holdgervingu hins ný-
slegna hugtaks athafnastjórn-
mála.
mig hef ég
ljósmynd, líklega glæsilegustu
ljósmynd sem ég hef séð af núlif-
andi, íslenskum stjórnmálamanni.
Í gráum reykjarmekki stend-
ur Vilhjálmur Þ. Vilhjálmsson
borgarstjóri í rauðum samfest-
ingi og með bláan hjálm, einarð-
ur til augnanna horfir hann upp,
með svip sem segir: „Hér er eldur.
Hann þarf að slökkva.“
að ég leit á
það sem tómt tal þegar Vilhjálmur
gekk fram fyrir skjöldu á sínum
tíma og lýsti yfir að nú væri tími
athafnastjórnmála runninn upp.
Þar sem ég horfði á atburðarásina
við Lækjartorg í beinni útsend-
ingu og sá Vilhjálm við rústirn-
ar gat ég aftur á móti ekki annað
en hálfblygðast mín fyrir að hafa
ekki greitt honum mitt atkvæði
fyrir ári. Dindlarnir sem ég kaus
hefðu ábyggilega bara komið sér
vel fyrir á Bernhöftstorfunni, með
sín umræðustjórnmál, og rætt
málið í þaula undir snarkinu í eld-
inum. En ekki Vilhjálmur. Hann er
ekki maður sem talar „no-nonsen-
se“, heldur gerir „no-nonsense“. Á
meðan enn skíðlogaði í kofunum
tók hann af öll tvímæli um að þeir
yrðu reistir aftur: „Það er ekki um
neitt annað að ræða.“
sem birt-
ist okkur síðasta vetrardag var
stjórnmálaforingi af gamla skól-
anum, valdmikill og stútfullur af
þesslags karlmennsku sem aðeins
einkennisbúningur getur fært
manni. Ég þurfti að hugsa út fyrir
landsteinana til að finna saman-
burð, til manna á borð við Winston
Churchill og Charles deGaulle. Ég
sá nýja hlið og kraftmikla á borg-
arstjóranum; mann sem veður
eld fyrir borgarana, foringja sem
hlúir að þegnum sínum í lófa sér
en kremur andstæðingana í járn-
greip sinni.
borgarstjór-
ans í Reykjavík verður héðan í frá
ekki hálsmen í mínum huga, held-
ur hjálmur. Vilhjálmur.
Bál