Tíminn - 28.03.1980, Blaðsíða 1

Tíminn - 28.03.1980, Blaðsíða 1
Slðumúla 15 • Pósthólf 370 ■ Reykjavik • Ritstjórn 86300 • Auglýsingar 18300 • Afgreiðsla og áskrift 86300 • Kvöldsímar 86387 & 86392 Enn vantar milljarð í Geðdeildina HEI — „Meö þessari 200 milljón kr. hækkun er lagt til aö fjár- veiting til Geödeildarbygg- ingarinnar hækki úr 70 millj. I 250 millj. kr. í ár og auk þess aö 100 millj. kr. fari til hönnunar á svokallaöri byggingu-K, þar sem aöstaöa á aö veröa fyrir krabbameinssjúklinga og skuröstofur Landspitalans”. Þetta voru orö Davlðs Gunnarssonar aöst. forstöðu- manns Skrifstofu rikisspital- anna, er Timinn spurði til hvers ætti að verja þeirri 250 millj. kr. aukafjárveitingu sem fjárhags- nefnd hefur gert tillögu um, um- fram það er áætlaö var i fjár- lagafrumvarpi. Davið var þó ekki of hress meö þessar 250 millj. til Geð- deildarinnar, þar sem ennþá vantaði um einn milljarð til þess 1 að ljúka byggingunni. Reiknað væri með, að taugalækninga- deildin flytti i þessa nýju bygg- ingu, sem aftur mundi leysa mikið af húsnæðisþrengslum á Landspitalanum sjálfum. Það hefði þvi verið býsna þægilegt að fá hressilega fjárveitingu til Geðdeildarinnar, þannig að hægt hefði verið að ljúka við hana á næstu tveim árum. Um byggingu K sagöi Davið, aö fyrir þessar 100 millj. sem gert væri ráð fyrir, væri hægt að hefja hönnun á þessu ári, enda kannski lltið meira gert I ár. En þetta væri sú bygging sem efst hefði verið á blaði á eftir Geð- deildinni enda samdóma álit allra, aö ef ekki fengjust nýjar skuröstofur viö Landspltalann og aukin rannsóknaraðstaða, þá mætti allt eins fara að huga að þvi að loka spltalanum. aígreidd til þriðju umræðu JSG — Fjárlagafrumvarp fyrir áriö 1980 var afgreitt til þriöju umræöu frá Alþingi I gær. Til- lögur meirihluta fjárveitinga- nefndar um breytingar á frum- varpinu voru samþykktar viö at- kvæöagreiöslu I gær, en tillögur frá stjórnarandstööuþingmönn- um voru feildar. Meðal þeirra tillagna sem voru felldar, var tillaga frá Eiði Guðnasyni um 7 milljarða króna lækkun tekjuskatts, og um niður- skurð framlaga til jarðræktar, framræslu og greiðslu útflutn- ingsuppbóta á landbúnaáðar- vörur. Þá voru felldar nokkrar tillögur frá þingmönnum Sjálf- stæðisflokksins um hækkun á framlagi til vegamála. Einnig voru tvær tillögur stjórnarandstööu um stóran niðurskurð á framlögum til Lána- sjóðs námsmanna felldar. Flestar þær breytingar sem geröar voru á fjárlagafrumvarp- inu I gær, voru samþykktar með atkvæðum stjórnarliða, og at- kvæðum alþýðuflokksmanna. Þingmenn Alþýöuflokksins stóöu þó ekki að samþykkt frumvarps- ins I heild, þar sem nokkrar sér- tillögur þeirra voru felldar, eins og áður er getið. Vilmundur Gylfason lét þess getið við at- kvæöagreiðsluna, að Alþýðu- flokkurinn hagaöi sér á svo ábyrgan hátt I stjórnarandstöð- unni að þess væru engin dæmi áöur! Nánar er getið um fjárlagaaf- greiðsluna á bls.^2 og 3. Þessi fallegu tré uröu eldinum meira og minna aö bráö er kveikt var I sinu viö Blómaskáiann i gær. — Tímamynd Tryggvi. Lá við að kviknaði í Blómaskálanum JSS — Þaö lá viö aö illa færi I gær, þegar krakkar kveiktu i sinu viö Blómaskálann f Kópa- vogi. Eldurinn magnaöist fljótt, enda jöröin þurr og læsti sig i myndarleg grenitré sem eru þarna i nágrenninu. Slökkvilið var kvatt á staðinn og tókst að slökkva eldinn innan skamms. Munaði litlu að hann kæmist I Blómaskálann en slökkviliðsmönnum tókst að koma i veg fyrir það. Tals- verðar skemmdir urðu á trjá- gróðri, og voru sum trén, sem urðu logunum að bráö komin vel til ára sinna. Þá var kveikt i sinu á öðrum stöðum t.d. við Digranesskóla i Kópavogi, en lögreglunni tókst að slökkva þar áöur en eldurinn breiddist út. I Reykjavik var talsvert um ikveikjur I gær og var slökkvi- liðið kvatt að Holtagörðum, Oskjuhliöinni o.fl. stöðum, þar sem eldur logaði i sinu. Ekkert fiskverð ennþá: „Ástandið er óþolandi” segir Óskar Vigfússon Sjávarútvegsráðherra: Stefnt að ákvörðun fiskverðs um helgi HEI — „Þaö er stefnt aö því aö reyna aö afgreiöa fiskveröiö nú um helgina” svaraöi Stein- grimur Hermannsson I gær. Veriö væri aö leita allra leiöa til aö ná samstööu um ákvöröun. Steingrimur sagðist hafa lagt fram tillögur um ýmsa smærri hluti sem hægt væri að lagfæra fyrir fiskvinnsluna og yfirlit yfir heildarstööuna, á rikisstjórnarfundi I gær. Nefndi hann að t.d. væri ennþá lagt sölugjald á ýmsa fjárfest- ingarvörur, sem næmi um 300 millj. Uppsafnaður sölu- skattur af fiskvinnslunni næmi nú um 3,8 milljörðum, sem hann heföi þó ekki lagt til að rikissjóður tæki á sig, þar sem hann væri ekki fær um það. Hinsvegar sýndi þetta nauö- syn þess að breyta yfir I virðisaukaskatt. Einnig nefndi hann að stimpilgjöld hefðu verið hækkuö, bæði með lög- um, ofan i gefin loforð, og einnig i framkvæmd í bönkun- um, þar sem þau væri sifellt endurtekin á sömu lánunum. Þessu lagði hann til að breytt væri I fyrra horf. Einnig áleit Steingrimur aö lækka mætti nokkuð vexti Fiskveiðasjóös, a.m.k. um 1%. Fjármagnið kæmi að verulegu leyti úr lif- eyrissjóðunum I gegn um Framkvæmdasjóð, sem tekur 1% fyrir sinn snúð. Þá sagðist Steingrimur telja ákaflega nauðsynlegt, aö skuldbreyting verði að veru- legu leyti á lausaskuldum fiskvinnslunnar, enda teldi hann þaö ekki óeðlilegt. Það væri forsenda fyrir átaki i framleiðnimálum, aö frysti- húsin kæmust út úr vanskilum sinum. Allt væru þetta hlutir sem vægju nokkuð, sagði Stein- grimur, en þó að hans mati langt frá því að þeir nægðu til að koma fiskvinnslunni á rétta kjöl. HEI — „Ráöstefnan lýsir hverja þá ákvöröun, sem ekki tryggir sjómönnum réttmæta hækkun fiskverös lögleysu” segir I ályktun stjórnarformanna sam- bandsfélaga Sjómannasambands tslands og Farmanna og fiski- mannasambandsins frá I fyrra- dag. Jafnframt var samþykkt aö veröi slik ákvörðun tekin einhliöa af oddamanni yfirnefndar verö- lagsráðs, legöi fundurinn til við fulltrúa sjómanna I Verðlagsráöi, að þeir taki ekki frekari þátt I störfum þess. Og færi svo, yrði þegar boðað til annarrar ráð- stefnu stjórna FFSI og SSI, þar sem frekari aögerðir verði ræddar. Spurður hvort farið væri aö ræða um stöövun fiskveiöiflotans, svaraði Öskar Vigfússon, aö menn tryðu þvi ekki fyrr en á reyndi, að nokkur rikisstjórn láti það viðgangast að fulltrúar I Verölagsráði sjávarútvegsins hverfi þaöan á braut. En hann ætlaöi hinsvegar engum manni það, að ekki verði urgur I herbúð- um sjómanna ef þeir þyrftu aö horfa upp á það, að þeir hafi verið á sjó heilan mánuð á fölskum for- sendum. Þetta ástand væri óþolandi. Þótt gera eigi tilraun til aö koma I veg fyrir aukna verðbólgu á Is- landi, sem allir hlytu að æskja, þá yrði að taka I hjóliö á réttum staö og tima, þannig að veröbótatít- reikningur á laun sjómanna verði ekki á annan hátt en annarra launþega I landinu. Þeir einir heföu verið skildir eftir 1. mars s.l. En eftir sömu hækkun til sjó- manna og annarra mætti segja að hringnum væri lokað, þar til 1. júni, að hann opnaðist aftur. Sæju stjórnvöld engan veg til að sjómenn fengju þessa hækkun nú, sagðist óskar vilja spyrja hvað skeði þá 1. júni og 1. spet. n.k. Óskar sagðist ekki meta það svo, aö sjómenn væru að fara fram á neina gengisfellingu. Að hans áliti væru ýmsar hliðarráö- stafanir tiltækar til aö koma í veg fyrir slíkt. Frystiiðnaðurinn þyrfti nú að bera ýmsa kostnaöarþætti, sem beinlinis væru til komnir vegna rikis- afskipta, svo sem hina gífurlegu vaxtabyrði. Þegar vextir væru nú orðnir allt að 3/4 af launakostnaöi fyrirtækja, taldi hann að það mætti nú kikja á þá hlið ásamt fleirum.

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.