Tíminn - 28.03.1980, Blaðsíða 10
14
ÍÞRÓTTIR
IÞROTTIR
Föstudagur 28. mars 1980
Sigurviss V-Þjóðverji veðjar 6 milljónum á Groswallstadt...
Ætlar að vinna
kauplaust í
eitt ár...
Eins og alltaf, þegar
þýðingarmiklir leikir
eru leiknir- úrslitaleikir
í Evrópukeppni, þá fara
menn að veðja um úrslit.
Tíminn hefur frétt frá
einu slíku og er þar um að
ræða stórar peningaupp-
hæðir.
V-Þjóðverji einn, sem er bú-
settur i Reykjavik, er öruggur
um sigur Groswallstadt gegn
Val, þvi að hann er búinn að
veðja við vinnuveitanda sinn
— ætlar aö vinna i eitt ár án
launa hjá honum, ef Valsmenn
ná að sigra. Vinnuveitandinn
hefur nú heitiö á Valsmenn
góðri peningaupphæð ef þeir
vinna, þvi að hann sér fram á að
hann geti haft góöan starfskraft
— launalausan, næsta áriö.
Ef við reiknum með að V-
Þjóöverjinn sé með um 500 þús.
kr. á mánuði i laun, þá eru þetta
HJONARUM
Næstu daga bjóðum við alveg einstök
greiðslukjör 100.000.- króna útborgun og
80.000.- krónur á mánuði
duga til að kaupa hvaða rúmasett sem er i
verslun okkar. Um það bil 50 mismunandi
rúmategundir eru á boðstólum hjá okkur.
Littu inn,það borgar sig.
Ársa/ir i Sýningarhö/linni
Bíldshöfða 20, Ártúnshöfða.
Símar: 91-81199 og 91-81410.
V.VAV.VV.VVV.^V.V.VV/.V.V.V.V.V.V.V.VV.V.V^,
RAFSTÖÐVAR S
allar stæröir
• grunnafl
• varaafl
• flytjanlegar
• verktakastöðvar
%lo»alani
Garðastræti 6
í
.V.W.WWAVT.VW^W Símar 1-54-01 & 1-63-41 W
J.R.J. Bifreiðasmiðjan hf. .-
Varmahlið,
Skagafirði. 4
Simi 95-6119.
Bifreiðaréttingar (stór tjón — lftil tjón) — Yfirbyggingar á
jeppa og ailt að 32ja manna bfla — Bifreiðamálun og
skreytingar (Föst verötilboð) — Bifrelöaklæðningar —
Skerum öryggisgler. Viö erum eitt af sérhæföum verk-
stæöum f boddýviögeröum á Noröurlandl.
Skiltagerðin ^
AS auglýsir j
last og álskilti i mörgum gerðum og lit- W.
tn fyrir heimili og stofnanir. Plötur á Æ
rafreiti i mörgum stærðum, einnig nafn-
»lur i mörgum litum fyrir starfsfólk Æ
úkrahúsa og annarra stofnana, svo og
pplýsingatöflur með lausum stöfum. m
endum i póstkröfu.
Skiltagerðin ÁS J
Skólavöröustíg 18, sfmi 12779.
- ef Groswallstadt
tapar fyrir
Val i Munchen
veðmál upp á 6 milljónir kr. Þá
má geta þess að V-Þjóðverjinn
hefur einnig veöjað minni pen-
ingaupphæöum við starfsfélaga
sina.
Þetta er aðeins smá sýnishorn
af þvi hvernig V-Þjóðverjar
hugsa þessa dagana og það er
kannski skiljanlegt, þvi að
Groswallstadt er með frábært
handknattleiksliö — núverandi
Evrópumeistarar — og liðið
hefur ekki tapað leik á heima-
velli í 4 ár, eða 50 leikjum i röð.
—SOS
Í#J
Wm.
HILMAR BJÖRNSSON...
þjáifari Vals: — „Auövitað
er maður alltaf hræddur viö
stóran skell”.
(Timamynd Tryggvi)
4
Leíka Valsmenn...
..Indíánavöm” gegn
Groswallstadt?...
— Eftir aö strákarnir hafa
séð leik meö Groswallstadt á
myndsegulbandi tvisvar sinn-
um, þá hefur runniö upp fyrir
þeim, að leikmenn Groswall-
stadt eru engin ofurmenni,
sagði Hilmar Björnsson, þjálf-
ari Valsmanna. — V-Þjöðverj-
arnir eru stórir og harðir fyrir,
en ég tel þá ekki eins hættulega
og leikmenn spánska liðsins
Atletico Madrid, sem leika mun
skemmtilegri og hættulegri
handknattleik, sagði Hilmar.
Hilmar sagði að ef allt gengi
upp, góð markvarsla, varnar-
leikur og skynsamlegur sóknar-
leikur, þá gæti allt skeö. — Við
erum komnir hingað til Munch-
en til aö vinna sigur, og ég er
viss um, að strákarnir leggja
hart aö sér til aö vinna sigur. —
Þeir koma alveg tviefldir til
leiks.
— Ertu ekki hræddur viö
stóran skell?
— Ég geri mér fyllilega grein
fyrir þvi, aö V-Þjóðverjarnir
veröa erfiöir hér, en persónu-
lega leggst leikurinn ekki illa i
mig. Auðvitað er maöur alltaf
hræddur við stóra skelli, en viö
mætum til leiks með þvi hugar-
fari að vinna sigur, en ekki að-
eins aðtapa með sem minnstúm
mun.
— Nú leika leikmenn Gros-
wallstadt mjög fjölbreyttan
sóknarleik — hvernig vörn ætlar
þú aðlátaþfna mennleika gegn
j>eim?
— Ég er dcki enn búinn að
gera það upp við mig — ég mun
velja liö mitt með þvi hugarfari,
hvernig ég ætla aö látastrákana
leika i vörn. Það eru þrir mögu-
leikar sem koma til greina:
0 1. — Taka á móti V-Þjóöverj-
unum framarlega og koma
þannig i veg fyrir að þeir nái
að skjóta iangskotum.
# 2. — Að leika flata vörn —
6:0, og verjast þannig skot-
um þeirra. Þaö er vörn sem
við höfum oftast leikiö og er
okkar sterkasta vörn.
# 3. — Að leika með einn leik-
mann framar, svo kallað 5:1
vörn, eða „Indiánavörn”.
Með þvikæmum viö til með
að loka miðjumann þeirra
af.
Það eru þessir þrir möguleik-
ar sem koma til greina, sagði
Hilmar. —SOS
Verður Olafur Ben.
settur í uppvaskið?
— á Tourotel Hotel I Miinchen
Ólafur Benediktsson.
Fyrir Evrópuleik Valsmanna
gegn Atletico Madrid í Laugar-
dalshöllinni, tok ólafur Bene-
diktsson landsliösmarkvörður
ekk'i þátt I lokaundirbúningnum
fyrir leikinn. — Hann fékk leyfi
til að vera heima hjá sér, þar
sem hann þreif Ibúð sina hátt og
lágt — og geröi hann það til að
dreifa huganum frá ieiknum.
Félagar hans i Val ræddu um
það i gær á Tuourotel Hotel f
Munchen, þar sem þeir búa,
hvort að það væri ekki rétt að
setja ólaf i uppvaskið i eldhúsi
hótelsins, eða jafnvel að láta
hann taka til á herbergjum
hótelsins á morgun —fyrir leik-
inn gegn Groswallstadt.
—SOS