Tíminn - 28.03.1980, Blaðsíða 3

Tíminn - 28.03.1980, Blaðsíða 3
Föstudagur 28. mars 1980 3 Ný verðkönnun Innflutningsdeildar SIS: Lægst verð á Samvinnuvörum HEI — I ljós kom að verðlag i samvinnuverslunum var greini- lega lægra en hjá samkeppnis- aðilum, segir um útkomu úr ný- lega geröri verðkönnun sem Innflutningsdeild SÍS lét fram- kvæma i verslunum i Reykja- vik, aö því er segir i Samvinnu- fréttum. Athugað var verð á 40 algeng- um vörutegundum. í fyrsta lagi var kannað verð i þrem hverfa- verslunum og reyndist verð 10-39% hærra I kaupmanna- verslunum en i sambandsversl- uninni. I öðru lagi bar borið saman verð i þrem stórverslun- um og reyndist verð samvinnu- verslunarinnar þar 4-8% hærra en i hinum. „Þessi könnun var nú fyrst og fremst gerð fyrir okkur, til þess að fylgjast meö hvernig staðan væri á hverjum tima, en ekki ætlunin að auglýsa þetta neitt upp” sagði Þorbergur Eysteins- son, forstöðum. Birgðastöðvar Sambandsins. Þrjár kannanir heföu nú veriö gerðar með tals- verðu millibili og allar komið svona út. Þeir væru þvi orðnir nokkuö öruggir meö það, að Sambandiö væri að jafnaði með Utgáfustarfsemi Dags á Akureyri aukin JSS— útgáfustarfsemi blaðsins Dags á Akureyri hefur nú verið aukin og er hafin útgáfa sérstaks helgarblaðs sem hlotið hefur nafnið Helgar-Dagur. Helgarblaðið kemur I fyrsta sinn út i dag, föstudag, en fyrir- hugað er aö þaö komi út einu sinni I mánuði til að byrja með. Eru uppi áætlanir um að auka út- gáfuna smátt og smátt, þannig að Helgar-Dagur komi út vikulega, en Dagur hefur sem kunnugt er komið út reglulega tvisvar i viku I rösklega tvö ár. í Helgar-Degi verða ekki hefð- bundnar fréttir, heldur viðtöl og greinar, og hafa nokkrir valin- kunnir menn verið fengnir til að skrifa greinar i blaðið. Frekari útgáfuaukning er fyrirhuguð hjá Degi I tengslum við stækkun prentvélar blaðsins. Viðbótartæki kom 1 sumar og þá gefst kostur á að fjölga blaðsiöum svo og til lit- Drentunar. Umsjónarmaður Dags er Guð- brandur Magnússon, blaðamaður hjá Bókaforlagi Odds Björnssonar á Akureyri, en rit- stjóri Dags er Hermann Svein- björnsson. Talsmenn samtakanna Lff og land kynna borgarafundinn. Tfma- mynd: Tryggvi. „Maður og tré” Borgarafundur á Kjarvalsstöðum KL — Samtökin Lif og land efna til borgarafundar að Kjarvals- stöðum nú um helgina. Efni fund- arins nefnist „Maður og tré.” Flutt verða mörg erindi, en auk þess mun Helga Bachmann lesa ljóð, Garðar Cortes syngja ein- söng, Halldór Haraldsson leika á pianó og Islenski blásarakvintett- inn leika. Kvikmyndir um trjá- rækt verða sýndar báða dagana á meöan borgarafundurinn stendur yfir. Dagskráin hefst kl. 10 árdeg- is á laugardag. hagstæðast verð. Að sjálfsögðu kæmu kæmu vörutegundir inn á milli, þar sem verð væri óhag- stæðara en hjá öðrum, en þetta væri útkoman i heildina. Meginástæöu'na taldi Þor- bergur fólgna i þvi að Sam- bandiö hefði nú orðið umboð fyrir mikiö af ódýrum gæðavör- um, frá erlendum samvinnu- félögum. Þar væri um að ræða vörumerkin Coop, Brugsen, Juvel, Winner, Nordchokolad, Panda og OKT, en þessar vörur væru aöeins i kaupfélagsbúðun- um. I könnununum hefði verið reynt að velja i hinum verslun- unum vörur af sömu gæöum. Þorbergur var spurður hvrt farið yrði að selja hér svokall- aðar ómerktar vörur, sem sifellt eru að verða vinsælli I samvinnuverslunum I Sviþjóö og Noregi, en þær eru sem kunnugt er á lægra veröi vegna þess, að auglýsingakostnaður er i algeru lágmarki. Hann sagöi Svia ekki gera meira en að anna innanlandsmarkaði ennþá. Hinsvegar væri um að ræða nær það sama og Dönsku Brugsen-vörurnar sem hér væru seldar i kaupfélagsversl- un(m. 9,3% hækk- un bygging arvisitölu HEI — Hækkun byggingarvisi- tölunnar á timabilinu frá desember 1979 til mars 1980 er 9,3%, samkvæmt útreikningum Hagstofunnar. Eftir verölagi I byrjun mars reyndist byggingarvísitalan vera um 435 stig en var 398 stig i byrjun desember. Sömu tölur samkvæmt eldri grunni voru 7894 stig í desember og 8629 i mars. Þessar visitölur gilda timabiliö april — júni 1980. Myndin ertekin er tilboðin voru opnuð. Fyrir miöju er Pétur Sigurðsson, formaður Sjómannadagsráös, ásamt hönnuðum og verktökum, sem f verkið buðu. Hjúknmarheimili Hrafnistu i Hafnarfiröi Fíimn tílboð bárust Þriðjudaginn 26. mars voru opnuð fundarsal Sjómannadags- ráðs að Hrafnistu i Reykjavík til- boði þá jarövegsvinnu sem ólokið er við hjúkrunardeild Hrafnistu I Hafnarfirði. Fimm tilboö bárust og voru opnuð aö viðstaddri stjórn Sjómannadagsráðs, hönnuöum og tilbjóðendum. Lægsta tilboð sem barst var frá Sveinbirni Runólfssyni að upphæð kr. 43.675.000,- og næst lægsta frá Hlaðbæ h/f, kr., 46.544.500. Allri jarðvegsvinnu á aö vera lokiö þann 16. mai n.k. og verður þá fljótlega hafist handa um fyrir- hugaðar byggingarframkvæmdir þessa árs. Otrúleg umskipti hjá Bæjarútgerðinni: Unnið úr 110 tonnum á dag Kás —Ótrúleg umskipti hafa átt sér stað á rekstri Bæjarút- gerðar Reykjavíkur undanfarna mánuði, eins og best kom fram I góðri afkomu þess á siðasta ári. Eru afköstin oröin margfalt við það sem áður var. A þriðjudag kom BOR-togarinn Bjarni Benediktsson til hafnar með fullfermi og var búið að vinna — án nokkurrar sérstakrar yfirvlnnu allan afla hans i fyrrakvöld. Hefur verið unnið úr 110 tonnum á dag, án þess að þurft hafi að koma til nein sérstök auka- vinna. Að visu var stór hluti aflans hraöpakkandi framleiðsla, en þaö segir þó ekki alla söguna. Hefur þessi mikli afli og hin auknu afköst leitt til þess, að BÚR á við mikinn geymslu- vanda að striöa, og hefur fyrir- tækið þurft að leigja frysti- geymslur út i bæ. A sfðasta ári voru fryst 5800 tonn fiskjar hjá BÚR, en gert er ráð fyrir að frysting fari yfir 7000 tonn á þesu ári, ef svo fer fram sem horfir. Sjálfstæðismenn vildu hækka rikis útgjöld um rúmlega 4,5 milijarðs Þegar Lárus Jónsson, fyrsti fulltrúi Sjálfstæðisflokksins i fjárveitinganefnd, lýsti gagn- rýni samflokksmanna sinna i nefndinni á fjárlagafrumvarpi rikisstjórnarinnar, þá hélt hann þvi fram að óheillastefna stjórnarinnar ætti rætur að rekja til að „gegndarlaust ér bætt við nýjum útgjöldum á rikissjóð, bæöi með löggjöf og stjórnvaldsákvöröunum.” Það er lærdómsrikt að bera þessi ummæli saman viö tillöguflutn- ing þingmanna Sjálfstæðis- flokksins viö fjárlagaaf- greiösluna. Þrátt fyrir gagnrýn- ina, stóö vissulega ekki á þing- mönnum flokksins að flytja tillögur um ný og hærri útgjöld. Hér skulu taldar upp þær tillögur til hækkunar sem þegar eru komnar frá Sjálfstæðisþing- mönnum. Tillaga frá Jósef H. Þor- geirssyni um 48 milljóna hækkun framlags til Grundar- skóla viö Akranes. Tillaga frá Steinþóri Gessyni, og Sverri Hermannssyni, um aukna fjárveitingu til vegamála, að upphæð 3500 milljónir. Sverrir vonaðist til þess, þegar hann gerði grein fyrir stuðningi sinum við tillög- una „aö stjórnarliöar mönnuð- ust til að afla fjár” sem þyrfti til að greiða fjárveitinguna. Tillaga frá Matthiasi Bjarna- syni, og öðrum stjórnarand- stöðuþingmanna af Vestfjörð- um um aukningu á fjárveitingu til byggingu sjúkrahúsa á Vest- fjörðum, að upphæð 148 milljón- ir króna. Síðast en ekki sist er tillaga frá fulltrúum Sjálfstæðisflokks- ins i fjárveitinganefnd, þeim Lárusi Jónssyni, Friðriki Sóphussyni, og Guðmundi Karlssyni, um 1000 milljóna hækkun útgjalda vegna sérstaks iðnþróunarátaks. Samtals lögöu þvi þingmenn Sjálfstæðisflokksins til að út- gjöld ríkisins yrðu hækkuð um 2688 niilljónir króna. Skylt er að geta þess aö Steinþór Gestsson og Sverrir Hermannsson lögöu til lækkun á þremur liðum fjárlagafrum- varpsins, þ.á.m. um 1500 milljóna lækkun á framlagi til Lánasjóðs námsmanna. Við aöra umræðu um fjár- lagafrumvarpið voru allar þessar hækkunartillögur Sjálf- stæöismannanna felldar, nema tilllagan um iönþróunaátakiö, sem var dregin til baka og kem- ur til atkvæðagreiðslu við þriðju og siðustu umræðu um frum- varpið.

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.