Tíminn - 28.03.1980, Qupperneq 9
Föstudagur 28. mars 1980
13
Saga
Múameðs ■
trúar
M. A. Shaban: Islamic History.
A New Interpretation. Vols. I. —
II.
Cambridge Universitv Press
1977 (2. útg.) 197 + 221 bls.
Verkiö, sem hér er til umfjöll-
unar, er i tveim bindum. Hiö
fyrra fjallar um sögu Mú-
hameöstrúar á timabilinu 600 —
750, sem aö timatali Múhameös-
manna er frá upphafi og til 132.
Siöara bindiö nær yfir árin
750-1055 eftir okkar timatali, en
þaö er 132-448 samkvæmt tíma-
reikningi fylgjenda spámanns-
ins.
I þessum bókum er fyrst
og fremst sögö stjórnmála-
saga Múhameöstrúar, ef svo
má aö oröi kveöa. I fyrra bind-
inu lýsir höfundur upphafi
Múhameöstrúar, sigrum henn-
ar i Arabiu og útbreiöslu
en þegar kom fram um 750 var
Islam rikjandi trúarbrögö
frá Indusfljóti, um Botnalönd
og Noröur-Afriku, allt til Spán-
ar. Höfundur leggur mikla
bjuggu viö menningu, sem var
Siöara bindiö hefst við lok inn-
ar eiginlegu Abbasidbyltingar
og greinir frá þvi heimsveldi er
hún skóp. Um skeiö voru Abba-
sidar allsráðandi með
Múhameösmönnum og sjaldan
mun veldi þessa svæðis hafa
verið meira ne efnahagur þess
blómlegri. En Abbasidum hélst
illa á völdunum. Þeim tókst
aldrei að gera riki sitt að efna-
hagslegri heild, skærur voru
tiöar á milli héraða og ætta og
viöa risu upp valdahópar, sem
gripu til vopna gegn Abbasid-
um.
Af
bókum
Annar öflugur valdaflokkur
innan Islams, sem höfundur
fjallar ýtarlega um eru Fat-
imidar. Þeir náðu völdum i
Túnis og Egyptalandi, tókst
ekki að vinna hylli þjóöanna,
sem þar bjuggu og uröu þvi
brátt að lútá i lægra haldi fyrir
andstæðingum sinum.
Siðasti hluti bókarinnar fjall-
ar um innrás Selsjúka. sem
voru fyrstir tyrkneskra þjóö-
flokka til þess aö ráöast inn i
lönd Araba. Þeir fóru sem eldur
i sinu um arabaheiminn,
sigruðu hann og stofnuðu nýtt
stórveldi Islams.
Þetta verk er tvimælalaust i
hópi hinna bestu, sem út hafa
komið um Islam á siöari árum.
Höfundur leggur megináherslu
á stjórnmalasögu Múhameðs-
trúar, en fjallar litið, sem ekki
um innri byggingu trúarinnar. 1
þrengsta skilningi getur verkið
þvi ekki talist trúarbragöasaga.
Ritiö hlvtur aö teljast yfirlits-
verk, sem slikt er þaö furðu
itarlegt og nákvæmt.
Islam, eöa Múhameöstrú,
hefur verið mikið til umræöu i
fjölmiðlum aö undanförnu. Sú
umræöa hefur oftar en ekki ein-
kennst af furðu litilli þekkingu
og misskilningi. öllum þeim,
sem vilja afla sér staögóörar
þekkingar á sögu Islams á um-
ræddu timabili skal bent á þetta
verk.
M.A. Shabanhefur um allangt
skeiö helgað sig rannsóknum á
sögu Islams, og þegar hann
hafði lokiö þessu verki tók hann
til viö annaö um sögu trúarinnar
á Spáni og i Norður-Afriku.
Hann er nú kennari i arabisku
og islömskum fræöum viö há-
skólann i Exeter.
1 lok hvors bindis um sig eru
heimilda- og nafnaskrár.
Jón Þ. Þór.
Minning
Kristinn Þorsteinsson
Margrét
Friðriksdóttir
Þriðjudaginn hinn 17. mars lést
Kristinn Þorsteinsson frá Grund
að Borgarspitalanum eftir tæpa
tveggja vikna legu.
Kristinn var fæddur i Sléttu-
hreppi á Vestfjöröum þann 25.
des. 1919 og náöi þvi einungis aö
veröa 60 ára gamall.
Leiöir okkar Kristins lágu
saman að hausti til árið 1966.
Haföi Kristinn þá veriö giftur
móöursystur minni Huldu Inga-
dóttur i nokkur ár og eignast meö
henni soninn Kristin sem þá var
fjögra ára gamall.
Þetta varö upphafiö aö góöri
vináttu viö þessa fjölskyldu sem
haldist hefur fram til þessa dags,
en Hulda lést um voriö 1971.
Kristinn fluttist til Reykjavikur
fljótlega uppúr seinni heims-
styrjöldinni og hefur mest allan
timann siöan veriö starfsmaöur
Stálsmiöjunnar. Hygg ég aö hann
hafi veriö þar virkur og góöur
starfskraftur, enda mjög
áreiöanlegur og laginn vel. Heim-
ili þeirra hjóna bar þessari lagni
hans gott vitni, þvi þar var
margan hlu^inn aö finna sem
Kristinn haái hannaö sjálfur.
Var þetta allt frá smávægilegum
viögeröum upp i smíöi húsgagna.
Haföi Kristinn komiö sér upp litlu
verkstæöisem var sæmilega búiö
áhöldum. Hafði hann mikinn unaö
af aö dvelja þar í frístundum sin-
um og vinna aö gerö ýmissa smá-
hluta, aðallega úr járni.
Annaö áhugamál Kristins var
lestur góöra bóka. Haföi hann
sterk tengsl til lslenskrar tungu
og bókmennta. Sérstaka unun
haföi hann þó af kveöskap og var
vel að sér um marga höfunda 19.
og fyrri hluta 20. aldar. Kristinn
talaöi kjarnmikiö mál sem hann
frá Grund
haföi gott vald á. Kunni hann þvi
ekki allskostar vel aö meta allt
þaö sem kveðiö var á Islandi hin
siöustu ár.
Arin eftir aö Hulda lést, voru
Kristni ekki auöveld, svo aö hann
var ekki ætiö sæll maöur. Enn
erfiöara átti Kristinn er sonur hans
og nafni hvarf aö heiman til
framhaldsnáms, fyrst I Borgar-
nesi en slöar á Akureyri. Atti
Kristinn ekki marga vini og var
þvi oft einmana síöustu ár ævi
sinnar.
Kristinn haföi sterka réttlætis-
kennd, og var þvl næmur á allt
réttlæti. Hann var oft hvassyrtur
og dró enga dul á skoðanir sinar
er samræöurnar bárust aö stjórn-
málum. Má vera aö einhverjum
hafi þótt návist viö hann óþægileg
þegar honum var sem mest niöri
fyrir, en þá mæltist honum oftast
vel, þvi hann var vel máli farinn
og haföi glögga yfirsýn á islenskt
stjórnmálalif. Kristinn var alla
æviróttækur vinstri maöur. Siöan
hann flutti til Reykjavikur, var
ann þó eftir þvi sem ég best veit
hvergi virkur I stjórnmálastarf-
semi. Hann fylgdist þvi mun
betur meö og haföi góöan skilning
áislenskuatvinnullfi, sérstaklega
sjávarútveginum sem honum var
mjög annt til. Haföi Kristinn
stundaö sjó á sfnum yngri árum
heima á Vestfjöröum. Minntist
hann oft og gjarna þeirra tima.
Kristinn var oft sár og leiö und
ir þvf sem miöur fór i okkar
fámenna samfélagi. Sérstaka
andstyggö haföi hann á öllu f jár-
málabraski og spillingu. Ekki
ósjaldan talaði hann um þá miklu
möguleika sem jafn litiö land og
tsland heföi til þess aö byggja upp
fyrirmyndar velferöarriki. Mælt-
ist honum þá af miklum krafti
sem upptök sin áttu i stórri hug-
sjón. En Kristinn vissi vel af
hverju fyrirmyndar jafnréttisriki
hefur ekki orðiö aö staöreynd á
íslandi. Um eina af orsökunum
fór hann ekki ósjaldan höröum
oröum sem blandin voru hnittnu
spaugi. Reykjavikurauövaldiö
fékk oft óþægilega en veröskuld-
aöa meöferö I oröum hans. Krist-
inn,semsvo margir aðrirgat ein-
faldlega ekki sætt sig viö þaö aö
efnahagslifiö launaöi betur þeim
er versla meö plastblóm eöa
pipuhreinsara en hinum sem
vinna aö verömætahugmyndum
og byggja þannig undirstööuna aö
efnahagsgrundvelli þjóöarinnar.
Hygg ég aö heillavænleg framtiö
lands okkar sé aö miklu leyti háö
þvi aö fleiri eigi sér svipaöar
skoðanir.
Þó rumlega þrjátiu ára aldurs-
munur okkar Kristins hafi verið
mikill, tókst með okkur á fimm
ára sambýli á árunum 1966-1971
góö vinátta sem varaö hefur
meöan báöir liföu. Ekki væri þó
réttaösegja aöaldreihafi skugga
þar á boriö, en þaö var einmitt
okkar vináttu vegna aö viö
leystum úr öllum hnútum sam-
skipta okkar og skildumst siöast
jafn inmlega og samband okkar
ætiö var.
Kristinn er vissulega einn af
þeim sem haft hefur mikil áhrif á
lifsviöhorf mitt og skoðanir. Er ég
honum fyrir þaö þakklátur.
Oldruöum fööur Kristins og
systur, Hjálmfriöi sendi ég minar
innilegustu samúöarkveöjur, svo
og syni hans og frænda minum
sem ég óska velfarnaðar og ham-
ingju i framtiöinni.
Sverrir ólafsson
Fædd 13. ágúst 1898
Dáin 19. mars 1980.
Þann 19. mars s.l. andaöist i
Reykjavik Margrét Friöriks-
dóttir frá Seli i Asahreppi,
Rangárvallasýslu.
Gömul kona og þreytt hefur nú
lokað augum sinum i hinsta sinni,
sátt viö lifiö og dauöann. Svo var
nú komiöheilsu og þreki þessarar
dugmikluelskulegusæmdarkonu.
að enginn gestur var henni kær-
komnari en sá er kom og vitjaöi
hennar og leiddi hana á braut til
betri heima. Þolinmóö og æöru
laus var hún búin aö biöa, — svo
lengi.
13. ágúst 1898 geröist sá fágæti
atburöur 1 Rangárvallasýslu aö
hjónunum Málfriöi Ölafsdóttur
og Friöriki Egilssyni bónda i
Hávarðarkoti i Þykkvabæ fædd-
ust þriburar, tveir drengir og ein
stúlka. Drengirnir sem voru
skiröir Guömundur og Egill
voru liflitlir og dóu fljótlega.
Telpan sem skirð var Margrét
dafnaöi hins vegar vel og náöi
fullum þroska.
Margrét ólst upp hjá foreldrum
sinum ásamt fleiri systkinum og
fluttist með þeim aö Miökoti i
Þykkvabæ 15 ára gömul.Þegar
hún komst á legg þótti hún meö
eindæmum mikilvirk og verklag-
in. Hún vann fyrir sér aö þeirrar
tiðar hætti sem vinnukona i
heimabyggð sinni og i Vest-
mannaeyjum, uns hún giftist
eftirlifandi eiginmanni sinum
Vigfúsi Guömundssyni áriö 1931.
ÞaubjugguISeli i Asahrepp
allan sinn búskap og eignuðust
tvo syni. Eldri sonurinn Guð-
mundur Friörik býr nú ásamt
konu sinni Klöru Andrésdóttur á
nýbylinu Bólstað hjá Seli. Þau
eiga 4 syni. Yngri sonurinn Egill
Guömar er bilstjóri i Reykjavik,
kvæntur Sigriði Skúlad. og eiga
þau þrjú böm.
Kynni min og Margrétar hófust
vorið 1945 er ég 13 ára gömul
réðst til þeirra hjóna i sumar-
vinnu. Þetta fólk var mér blá-
ókunnugt, og satt aö segja var ég
dálitiö kviöin. Allur heimilisbrag-
ur og móttökur húsráöenda voru
meö þeim hætti aö allur kviöi
hvarf eins og dögg fyrir sólu. Ég
óharönaöur unglingurinn fann
strax hlýjuna og gæskuna sem
streymdifrá þeim hjónunum báö-
um. Enda fór fljótlega svo aö ég
vissi varla hvort var betra, aö
vera i sveitinni hjá Möggu og
Fúsa, eöa aö vera heima hjá
pabba og mömmu. Næsta sumar
var yngri bróöir minn Trausti hjá
þeim lika og var hann hjá þeim
fleiri sumur én ég. Einnig hann
átti þar sitt annaö heimili. Hjá
Mögguog Fúsa voru fleiri sumar-
börn þótt ekki væru þau samtima
mér, sumar eftir sumar. Oll nutu
þau hins sama ljúfa atlætis og
hlýju.
Þegarég nú sit og skrifa þessar
iinur streyma kærar minningar
frá liönum dögum fram I hugskot-
iö. myndir frá hinum daglegu
störfum. — Þaö var gaman aö
vinna meö Möggu, — viö rakstur
úti á engjum, eöa snúa heyi. —
Viö eldhússtörfin á rigningardegi,
kannske vorum viö aö baka. eöa
aö ganga frá eftir hádegismatinn
og ræddum um allt milli himins
og jaröar. Magga heyröi illa, af-
leiöing barnaveiki iæsku. Enginn
vafi er á þvi, aö heyrnarskortur-
inn háöi henni og mótaöi skap-
gerö hennar i uppvextinum. Hún
haföi sig lítiö i frammi I fjöl-
menni, þar var ekki hennar vett-
vangur, en hún haföi einstakt lag
á þvi aö finna og rækta þaö besta
sem i hverjum manni býr. Til
þessarar hljóðlátu bliðu konu
sótti maöur friö og uppörvun,
fann aö verkin sem maöur vann
voru virt og þökkuð. Fann aö
maöur var einhvers nýtur og var
glaöur og ánægöur meö tilveruna.
Þaö var ekki litils viröi fvrir
óharönaöan ungling aö fá aö vera
samvistum viö slika konu. Oft
hefúr leiöokkar systkinanna legiö
aö Seli siöar og alltaf höfum viö
mætt þar sömu vináttunni og
góöa atlætinu. Viö fórum heim, —
heim aö Seli. Enga konu, mér
óskylda, hefur mér þótt eins vænt
um og Möggu, og þau bæöi hjónin
Starfsdagur bóndans er langur
og þá ekki siður konu hans. Hjón-
in I Seli liföu og störfuöu aö búi
sinu á þeim tima sem mest breyt-
ing hefur oröið á i búskaparhátt-
umhérá landi. Frá þviað búa viö
kertaljós og lampatýrur, til þess
að geta notiö alls þess er raf-
magniö getur fært okkur. Frá þvi
aö vaða um i blautum mýrum
milli túnblettanna meö orf og
hrifu, til þess að geta gengið og
starfaö á eggsléttum harðbala-
túnum, þar sem allt er unnið meö
vélum. Enginn skyldi ætla aö slikt
gerist fyrirhafnarlaust. Strit og
aftur strit liggur aö baki allrar
þessarar framvindu. Engin kyn-
slóö þjóöar okkar hefur skilaö
þjóðarbúinu öörum eins afrakstri
vinnu sinnar og aldamótakyn-
slóðin. — En engin kynslóö hefur
heldur fengiö aö sjá eins riku-
legan ávöxt erfiöis sins.
Magga i Seli fékk ekki sem
skyldi aö njóta ávaxta vinnu sinn-
ar. Hún sem heföi átt aö geta átt
svo ánægjulegt ævikvöld I bænum
sinum. Eldri sonurinn kvæntur og
farinn að búa I túnjaðrinum og
barnabömin farin aö tritla um
hlaðiö. — Hún veiktist af hægfara
erfiðum sjúkdómi sem geröi hana
fljótlega ósjálfbjarga. Þrátt fyrir
góöan vilja og umönnun manns
sins og elskulegrar tengdadóttur
fór svo aö lokum aö hún varð aö
fara á sjúkrahús. 1 löng ár er
þessi starfsama ósérhlitna kona
búin aö liggja rúmföst á sjúkra-
húsi fjarri heimabyggö sinni.
Hjúkrunarfólk og læknar hafa
reynt aö létta henni leguna og
gert henni lifiö eins bærilegt og
þeim var unnt og Fúsi flutti suö-
ur, tilaö geta veriö nærri henni og
hjá henni. Þolinmóð og æörulaus
er hún búin að biöa.
En nú er hún öll, hún Magga
min. Nú flytur hún aftur heim á
æskuslóöir. Guö blessi hana og
varðveiti.
Aö leiðarlokum viljum viö,
móöir min og við systkinin þakka
Margréti vináttuna og alúöina
sem viö áttum alltaf visa, og um
leiö vottum viö ástyinum hennar
okkar dýpstu samúö.
Hjördis Þorleifsdóttir.
KONI
i i
\7 Tvivirkir — stillanlegir
\ v / Höggdeyfar i
Chevrolet Van -
SM'S h-c.TT-T-
ÁRMÚLA 7 SÍAAI 84450 ©