Tíminn - 30.03.1980, Blaðsíða 17

Tíminn - 30.03.1980, Blaðsíða 17
Sunnudagur 30. mars 1980 25 flokksstarfið Þorlákshöfn — Nágrenni Steingrímur Hermannsson sjávarútvegsráA- herra veröur frummælandi á almennum fundi i Félagsheimílinu Þoriákshöfn miövikudaginn 2. april kl. 21. Framsóknarfélag Þorlákshafnar og ölfus. Þoriákshöfn — ölfus Aöalfundur Framsóknarfélags Þorlákshafnar og ölfus veröur hald- inn í Félagsheimilinu Þorlákshöfn sunnudaginn 30. mars kl. 14. ' Dagskrá: 1. Venjuleg aöalfundarstörf. 2. önnur mál. Stjórnin. Félagar fjölmenniö. Fundur um málefni aldraðra, á vegum fuiltrúaráös Fram«óknarfélaganna í Reykjavfk þriöjudag- inn 1. april kl. 20.30 aö Rauöarárstíg 18. Fundarefni: A aö breyta starfsaldursmörkunum? Frummælendur: Þór Haildórsson, yfirlæknir, sem fjallar um öldrunarsjúkdóma. Gunnlaugur Sigmundsson, deildarstjóri, sem fjallar um Verklok aldraöra og Guöjón B. Baldvinsson, fyrrverandi deildarstjóri, sem fjallar um Viöhorf launþegans. Allir velkomnir. Stjórnin. Spil § Hefuröu reynt aö meta þaö? Nei, ég treysti mér ekki til þess. Þaö er ákaflega erfitt aö meta þaö, en ég veit, aö þaö er feikiverömætt. — A þessum 22 árum, sem ég hef veriö aö safna, hef ég náttúrlega kynnst ýmsum söfnurum, suma hef ég hitt og aöra hef ég skrifast á viö. T.d. get ég nefnt til gamans, aö i fyrra hitti ég úti i Bandarikj- unum þann mann, sem á nú sennilega stærsta einkaspila- safn i heimi. Þessi maöur, Al- bert Field, sem er nú oröinn fulloröinn, starfaöi aö ég held viö kennslu i flughernum hér áöur. Hann býr alls ekki rik- mannlega, — en spilasafn hans er geysilega stórt, um tvö þúsund pakkar og meira til, þvi aö hann á svo mikiö af gömlum spilum. Hann sagöi mér, aö hann væri búinn aö arfleiöa háskólabókasafn aö öllu safninu sinu. Ég skoöaöi safniö auö- vitaö, en þaö sem mér kom mest á óvart heima hjá þessum mikla safnara var, hvaö hann átti margar myndir eftir Salvador Dali. Þá komst ég aö þvi, aö hann var persónulegur vinur Salvadors Dali og var að skrifa bók um Salvador Dali! Mér hefur siöar dottiö i hug, að spilin, sem Salvador Dali teiknaöi nýlega, séu til komin fyrir tilstilli Alberts Field. Ég gleymdi bara alveg aö spyrja hann um þaö. Ég á þessi spil Dali, en þau eru seld tiltölulega háu verði, þótt nýleg séu, þar sem þessi ákveöni listamaður átti hlut aö máli. Ég á auk þess spil eftir 18 franska listamenn. Þau eru eins ólík og listamennirnir eru margir. Þetta er heilt mál- verkasafn, þessi einu spil. Ég á einnig mjög sérstæð spil eftir frægan austuriskan listamann, sem ég held mikiö upp á. Askjan um þau spil var alveg stórkost- leg og ég geymi hana eins og aðrar öskjur niöri i kjallara hjá mér. Þaö eru aöeins þær allra elstu og verömætustu, sem ég geymi uppi viö. Ég á t.d. öskju frá 1678 undan landafræöi- spilum, sem ég á öll og þessi askja er úr skinni og hefur varö- veitst nokkuö vel. Ég þori ekkert aö hreyfa viö henni eöa láta gera viö hana. „Kirkjan réðst fyrst og fremst gegn fjárhættuspili” Séra Ragnar Fjalar sýnir okkur nú indversk spil, sem eru kringlótt aöindverskri venju, en meö frönskum sortarmerkjum. A þau vantar hins vegar tölur, svo aö maöur veröur aö telja doppurnar. Hann bætir viö, að Indverjar eigi auðvitaö sin sortarmerki og sin mannspil. Einnig fáum viö aö sjá dönsku spilin, sem voru eiginlega upphafiö aö þessu safni og svo leiddum viö séra Ragnar aö spáspilunum, en hann á ótal- mörg slik. Spádómarnir voru gjarnan skrifaöir á auöu bökin eða táknin skýrö I pésa, sem fylgdi spilunum. Þaö kom I ljós, aö spádómsspilin eru blett- óttust, enda hafa þau farið um hendur margra örvæntingar- fullra karla og kvenna. „Hér á öldum áöur, segir séra Ragnar, voru spil notuö I tvennum tilgangi. 1 fyrsta lagi var spilaö á þau og einnig voru þau fræðslutæki. Þess konar spil koma liklega fyrst fram viö hirö Loðviks XIV Frakkakonungs. Þaö var nú mikið spilaö viö frönsku hirðina og til þess aö ungi kóngurinn læröi nú eitt- hvaö lika, var fariö aö nota aöalhluta spilanna undir eitt- hvert fræösluefni: landafræöi, skjaldmerkjafræöi, sögu griska goöfræöi, — hvaö sem var. Ég á nú ekkert spil frá timum Loöviks XIV, en ég á hér þýskt landafræöispil frá 1678. Ég á einnig reiknings- spil fyrir börn og örlitil dúkku- spil, svokölluö „Dollhouse cards”, spil fyrir sjóndapurt fólk, teiknuð af dönskum lækni, indverskt filabeinsspil, sem er málaö af miklum hagleik og einnig verömætt spil, sem málaö er á tré, — svo einhver séu nefnd. Hin tvö siöasttöldu voru afardýr. Samræmist þaö trúnni aö safna aö sér sllkum hlutum? Þaö hafa nú fleiri sett mig I vanda meö þessari spurningu (hann hlær). Ég veit ekki. Þaö er svo margt, sem hægt er aö telja á mörkunum. — Þaö er talaö um „adiafóra” I siö- fræöinni og er þá notað um þaö, sem hvorki er gott né illt, — hvort sem slikt ástand er til eöa ekki. Ef til vill gæti söfnun af þessu tagi verið adiafóra. — 011 söfnun er aö minum dómi þaö aö bjarga gömlum hlutum og sögu- legum verömætum, sem hafa listrænt gildi. Kaþólska kirkjan var á sinni tiö mótfallin spilum og kallaöi þau „Myndabók Kölska”, eins og ég sagöi siöan, en ég hugsa, aö þau fengju annaö nafn nú... Kirkjan réöst auövitaö fyrst og fremst gegn fjárhættuspili, en viö veröum auk þess aö setja okkur inn i þaö, aö á þessum tima þótti ekki gott að sitja viö spil almennt. Þaö var timasóun. Menn áttu aö vinna. Nú eru viðhorfin gjör- breytt. Og viö veröum aö athuga aö spil koma fram sem eitt fyrsta skemmtitækið, þegar engar skemmtanir eöa litlar voru leyföar meöal almúga- fólks? „Spila eiginlega aldrei” Spilar þú? Ég spila eiginlega aldrei. Ekki þaö aö ég sé á móti spila- mennsku, en ég hef ekki haft verulegan áhuga á henni. Ég var fyrir lifandi löngu I bridge- klúbb og haföi gaman aö þvi, en þaö lagöist niöur. Ahugi minn á spilum er fyrst og fremst sögu- legur og listfræöilegur. Þaö er gaman aö eiga hluti, sem eru sjaldgæfir, en þaö er i raun al- gjör tilviljun, aö ég fór út I þessa söfnun, en ekki einhverja aöra. Og þú heldur ótrauöur áfram? Ég er nú farinn aö draga i land. Ég hef t.d. ekki fengiö nein ný spil á þessu ári. Hins vegar á ég hálfpartinn von á einum, frá New York. — Þau eru kannske ekki beinlinis kristileg, eru kölluö anti-religious og eru gefin út i Rússlandi, rétt um 1930, á velmegtardögum Stalins. í þessum spilum er veriö aö gera litiö úr trúarbrögöunum. En fyrir mig sem prest og spila- safnara, þá þarf ég náttúrlega aö eiga slik spil. Þau eru nokkuö dýr og ég veit ekki enn, hvort ég fæ þau. Ertu búinn aö ákveöa, hver fær spilasafniö? Ég vildi nú helst, aö einhver stofnun fengi þaö, frekar en þvi yröi dreift út um hvippinn og hvappinn, enda er ekkert slikt safn til hér á landi. — Þetta er sæmilega góð söluvara samt sem áður. Nú fæst þú viö sálgæslu m.a. Helduröu aö tómstundarstörf séu sálinni bráöholl? Já, ég er ekki frá þvi. Þaö er - gott að geta haft eitthvað i rólegheitum út af fyrir sig. Það er auðvitað lika gaman aö feröast og skoöa landiö, — maður gerir kannske allt of litiö af þvi og þaö má segja, aö spila- safn mitt sé of mikið fyrir mig og of litiö fyrir fjölskylduna (hlær). Konan min hefur ekki brennandi áhuga á einmitt þessu. Best væri, aö nýta tóm- stundir sinar i þágu allrar fjöl- skvldunnar. t Þökkum auðsýnda samúð við andlát og útför Gunnars Þórðarsonar frá Grænumýrartungu lngveldur Björnsdóttir, Sigriöur Gunnarsdóttir, Steinunn Gunnarsdóttir, Þórður Guðmundsson og aðrir aöstandendur. KVERNELAND jarðvinnslutæki Eins og undanfarin ár eigum við oftast fyrirliggj- andi eða útvegum með stuttum fyrirvara margar tegundir af hinum heimskunnu Kvernelands plóg- um og diskaherfum. Kvernelandsverksmiðjurnar eru nú stærstu fram- leiðendur á jarðvinnslutækjum í Norður-Evrópu. í heimsmeistarakeppnum í plægingu hafa Kverne- landsplógarnir alltaf skipað efstu sætin. Síðustu forvöð að panta fyrir vorið Upplýsingar um verð og afgreiðslu- tíma hjá sölumönnum SKRIFBORÐ og margskonar önnur húsgögn í unglingaherbergi. Kærkomnar fermingargjafir Húsgögn oss„aurland!braut „ mnrettmgar simi 86-900 UTBOÐ Hitaveita Suðurnesja óskar eftir tilboðum i smiði þrýstikúta (4 háþrýstiskiljur, 2 safngeymar og loftkútar). Þrýstikútar skuli afhentir á timabilinu júli, ágúst 1980. útboðsgögn verða afhent frá og með miðvikudeginum 2. april á verkfræðistofu Guðmundar og Kristjáns Laufásvegi 12, Reykjavik og skrifstofu Hitaveitu Suðurnesja að Brekkustig 36, Ytri-Njarðvik. Tilboð verða opnuð mið- vikudaginn 16. april 1980 kl. 2 á skrifstofu Hitaveitu Suðurnesja Brekkustig 36, Ytri-Njarðvik. Hitaveita Suðurnesja

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.