Tíminn - 30.03.1980, Blaðsíða 27

Tíminn - 30.03.1980, Blaðsíða 27
Sunnudagur 30. mars 1980 35 i NýttVillt-Vestur Háskólabió Goin’ South/Stefnt I suður Leikstjóri: Jack Nicholson Aöalhlutverk: Jack Nicholson og Mary Steenburgen Nú á siðustu árum hefur litiö 0 borið á vestrakvikmyndum, þaö I er eins og kvikmyndagerðar- menn hafi sagt skilið við þaö I form. Þó kemur einn og einn vestri og áhugamenn um þá flykkjast að. Jack Nicholson er einn af þeim mönnum sem hefur _ mikinn áhuga fyrir vestranum. ® Þaö er ekki langt síöan Laugar- B ásbió sýndi vestra með honum, þar sem handritið var eignað honum, en lfkt og Goin’ South er, var sú mynd rýr að efni en athyglisverð. Goin’ South er önnur mynd 0 Nicholson i leikstjórahlutverki. ■ ' Fyrri mynd hans hét Drive, He Said (1971), en að minu viti er hún ósýnd héná landi. Hún fjall- aði um mann sem neitar að gegna herþjónustu og að sögn fróöra manna var hún slök. En ef við snúum okkur að Goin’ South, þá fjallar myndin um af- skaplega litið. Henry Moon er bófi sem á aö fara að hengja, en vegna sérstakra laga er kven- fólki heimilt að forða honum frá hengingu og giftast honum. Þaö þarf varla aö taka fram að þetta gerist einmitt og er sú heppna námueigandi, sem ætlar að nota Moon til aö grafa eftir gulli. Þau fella fljótlega saman hugi og finna gull, sem siðar verður þrætuefni Moons og gömlu glæpafélaga hans. Moon og kona hans leysa úr öllum vand- ræðum sínum og halda I lokin til Mexico, þar sem þau ætla aö fara út i atvinnurekstur. Þaö er furða að þaö skyldi taka fjóra handritahöfunda til að koma þessari sögu saman. Það sem fyrst og fremst bjargar Goin’ South úr meðal- mennskunni er hversu sanna og eölilega mynd hún gefur af (★ ★ ★) villta vestrinu. Vestrið sem hún lýsir er vestur án garpa á hvit- um hestum með perluskreytt byssuskepti. Þetta er raunveru- lega vestriö þar sem bleyöur og klaufar ráða rikjum og þar sem menn voru skotnir I bakiö I staö hjarta. Vist er Goin’ South gamanmynd, en það er augljós- lega reynt aö dempa niöur húmorinn til þess aö sýna okkur eðlilega mynd. Þaö hefði verið auðvelt að gera farsa úr efni myndarinnar og reyndar liggur hún oft hættulega nærri þvi þeg- ar Nicholson er á tjaldinu. Nicholson er að mlnu mati stundum galli myndarinnar og er þá sama hvort litið er á hann sem leikara eöa sem leikstjóra. Vissulega er Nicholson frábær leikari, en eins og svo margir góðir leikarar þá þarf hann meiri aga en er I þessari mynd. A köflum gæti maður haldið, að Jack Nicholson og Mary Steenburgen I Goin’ South, sem Nicholson leikstýrir lika, öllu ætti aö fórna fyrir sem mestan skripaleik af hans hálfu og er þaö reyndar gert. Sem leikstjóri er Nicholson ekki þaö góður að hann ætti að gera það starf að atvinnu sinni, en hann er þó oftar en ekki mjög ferskur. T.d. er ákveðinn friskleiki og léttleiki yfir samtalsatriðum Moons og kellu hansGeikinmjög vel af Mary Steenburgen sem aldrei áður hefur leikið i kvik- mynd). Dæmi um atriði þar sem Nicholson spinnur full langt lop- ann er hengingaratriðiö, þar hefði góður leikstjóri klippt upp á betri klimax. Þrátt fyrir marga galla er ég mjög veikur fyrir Goin’ South og gef henni þvi góöa einkunn, aðallega vegna raunsannrar lýsingar á vestrinu, aukaper- sóna, góðrar kvikmyndatöku Nestor Alemandors. Hins vegar segir mér svo hugur að þegar fram llða stundir mun Goin’ South ekki vera talin mjög merkileg kvikmynd. örn Þóriss. Rainer Werner Fassbinder aö leikstýra Dirk Bogarde I Despair. Þrátt fyrir handrit Tom Stoppards og frábæran leik Bogardes, þá veldur myndin ómældum vonbrigöum og sannar aö Fassbinder er athyglisveröur leikstjóri, en enn sem komiö er enginn snillingur. Gareth Hunt og Paul Nicholas I hinni göróttu og lélegu mynd The World is Full of Married Men. Þaö segir meira en mörg orö, aö i Jackie Coliins, höfundur bókarinnar, hefur veriö kölluö Barbara Cartland meö pornó ivafi. Meira Graffiti Um helgina hefur Laugarásbió sýningar á myndinni The Party’s Over (More American Graffiti i Bandarikjunum). Eins og flestir vita er um framhald að ræða á hinni vinsælu og frá- bæru mynd American Graffiti. I Nýja myndin gerist nokkrum árum seinna en sú gamla, en allar sömu persónur koma fyrir að undanskildri þeirri sem Richard Dreyfuss lék. önnur veigamikil breyting hefur orðið á siðan gamla myndin var gerð, en það er að leikstjórinn George Lucas er oröinn framleiðandi og i stað þess að leikstýra fram- haldinu, þá sér Lucas um pen- ingahliðina. Leikstjóri The Party’s Over er B.W.L. Norton ungur og óþekktur maður. 1 aðalhlutverkum eru Ron Howard, Paul Le Mat, Charlie Martin Smith, Candy Clark og Anna Björns, sem -samkvæmt ummælum gagnrýnenda er- lendis, er einn af bjartari punkt- um myndarinnar. örn Þórisson Islensk kvikmynda- vika í Regnboganum Fyrirhugað er aö halda is- lenska kvikmyndaviku I Regn- boganum 27. mars til 2. april n.k. Vegna þeirrar öru og ánægju- legu þróunar sem nú á sér stað I islenskri kvikmyndagerð þykir við hæfi að Kvikmyndafjelagið h/f hefji starfsemi sina meö þeim hætti að sýna nokkur dæmi þess, er gert hefur verið hér á landi I kvikmyndalist, oft við ótrúlega erfiðar aöstæöur. Þaö er ekkert launungarmál að hér hafa verið gerðar kvik- myndir sem hafa verulegt menningarlegt og listrænt gildi, og reyndar gegnir furðu i hvað hefur verið ráöist á þessum vettvangi. Það yfirlit sem birt- ast mun á tjaldinu þessa viku er engan veginn tæmandi, einkum er missir að myndum Lofts Guðmundssonar, en þar sem þær eru aöeins til á frumfilmum þykir mjög óráölegt að sýna þær. Veröur að vinda bráöan bug að þvi að koma myndum Lofts á sýningarkópiur. Mynd- irnar sem sýndar veröa eru: Friörik Friöriksson, Asgrimur Jónsson, Páll Isólfsson, Þór- bergur Þóröarson og Reykjavfk 1955 eftir Osvald Knudsen, Sið- asti bærinn I dalnum, Nýtt hlut- verk, Agirnd, Reykjavikur- ævintýri Bakkabræðra og Björgunin við Látrabjarg eftir Óskar Gislason, Eldeyjan eftir Ernst Kettler, Pál Steingrims- son og Asgeir Long, Lilja eftir Hrafn Gunnlaugsson, Gilitrutt og Tungliö, tungliö taktu mig eftir Asgeir Long, 240 fiskar fyrir kú eftir Magnús Jónsson, Ólafur Liljurós eftir Rósku, Gegnum gras yfir sand eftir Þorstein Björnsson, og vonir standa til aö hægt veröi að sýna Hernámsárin I-II eftir Reyni Oddsson, og að lokum kvik- myndina Konungskomuna eftir Ólaf Magnússon. Kvikmyndafjelagið h/f var stofnað I Reykjavik 11. mars 1980. Markmiö félagsins er að sýna og dreifa kvikmyndum sem hafa menningarlegt og iist- rænt gildi og efia sjónmennt yfirleitt. Kvikmyndafjelagiö h/f hefur aðsetur að Hverfisgötu 54 i kvikmyndahúsinu Regnbogan- um, simi 19053. Framkvæmda- stjóri er Kolbrún Sveinsdóttir og mun hún veita allar frekari upp- lýsingar um félagið og starf- semi þess. Charlie Martin Smith/Terry „Padda” Fields lendir I Vietnam I Thé Party’s Over KVIKMYNM H0RNIÐ

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.