Fréttablaðið - 14.05.2007, Side 4
Yfir ein milljón Tyrkja safnaðist
saman í strandborginni Izmir (áður Smyrna), þriðju
stærstu borg landsins, til að lýsa ugg um að
ríkisstjórnarflokkurinn, sem á rætur í íslamskri
hreyfingu, sé að leggja á ráðin um að troða trúar-
legum gildum upp á þjóðfélagið.
Þúsundir lögreglumanna reyndu að hafa stjórn á
mannfjöldanum, daginn eftir að sprengja sprakk á
útimarkaði í borginni sem varð einum manni að
bana og særði fjórtán. Enginn lýsti yfir ábyrgð á
árásinni, og engar vísbendingar voru um að hún
tengdist mótmælafundinum. Izmir er hafnarborg
við Eyjahaf og er mikið vígi þeirra sem vilja standa
vörð um strangan aðskilnað trúar og stjórnmála, í
anda Mustafa Kemal Atatürk, stofnanda tyrkneska
lýðveldisins. Stjórnmálaflokkar með trúarleg tengsl
eiga erfitt uppdráttar þar.
Fjöldafundurinn í gær var skipulagður í því skyni
að sýna mátt og megin veraldlega sinnaðra Tyrkja
fyrir þingkosningar sem nú er áformað að halda
þann 22. júlí. Sambærilegir fjöldafundir voru
haldnir í Ankara og Istanbúl fyrir skemmstu.
Að sögn fulltrúa úr hernum mætti ein og hálf
milljón manna á fundinn í Izmir.
Markmið fjöldafundanna er að setja þrýsting á
ríkisstjórn Recep Tayyip Erdogan í kjölfar þess að
hún tilnefndi utanríkisráðherrann Abdullah Gül,
sem er trúaður múslimi og náinn pólitískur
samherji Erdogans í Réttlætis- og þróunarflokknum
(AKP), til embættis þingkjörins forseta lýðveldis-
ins. Hin veraldlega sinnaða stjórnarandstaða og
stór hluti almennings, eins og sjá má af mætingunni
á fjöldafundina, reis upp á móti forsetaframboði
Güls og hann dró það loks til baka.
„Þessi fjöldamótmæli hafa gagnast til að þvinga
stjórnina til að taka eitt skref afturábak,“ hefur AP
eftir Neslihan Erkan, einum þátttakenda í mótmæl-
unum í Izmir í gær. „Hættan er ekki liðin hjá.
Þessir fjöldafundir verða að halda áfram uns
hættunni hefur verið bægt frá.“
„Ég er hér til að verja land mitt,“ sagði annar
mótmælandi, Yuksel Uysal. „Ég er hér til að verja
byltingu Atatürks.“
Enn fjöldamótmæli
gegn Tyrklandsstjórn
Á aðra milljón Tyrkja safnaðist saman í borginni Izmir vestast í Tyrklandi í gær til
að lýsa vantrausti á fyrirætlanir ríkisstjórnarflokksins. Átök halda þannig áfram um
hlutverk íslamstrúar og arfleifð Atatürks lýðveldisstofnanda í tyrknesku lýðræði.
Skattbyrðin á íbúa Seltjarnarness mun minnka í kjölfar
ákvörðunar bæjarstjórnar í vikunni. Tekið verður upp fráveitugjald en
önnur gjöld á sama tíma lækkuð svo álögur lækka samanlagt, segir
Jónmundur Guðmarsson bæjarstjóri.
Seltjarnarnesbær hefur hingað til ekki innheimt sérstakt fráveitu-
gjald, en endurskoðendur hafa gert athugasemdir við að Fráveita
Seltjarnarness hafi ekki sjálfstæðan tekjustofn. Því segir Jónmundur
að ákveðið hafi verið að taka upp fráveitugjald upp á 0,097 prósent af
fasteignamati húsnæðis.
Á móti er hlutfall fasteignaskatts á íbúðarhúsnæði lækkað úr 0,24
prósentum af fasteignamati í 0,20 prósent, og vatnsskatturinn lækkar
úr 0,13 prósentum í 0,10 prósent. Jónmundur segir þessar lækkanir
koma á móti fráveitugjaldinu, en til viðbótar verði útsvarið lækkað úr
12,35 prósentum í 12,10 prósent.
Hann bendir á að þegar miðað sé við skatthlutföll annarra sveitarfé-
laga sé skattgreiðendum á Seltjarnarnesi hlíft við á þriðja hundruð
milljóna króna skattgreiðslum. Um 4.600 íbúar eru á Seltjarnarnesi.
Heildarskattbyrði íbúa lækkar á Nesinu
Guðfríður Lilja
Grétarsdóttir, frambjóðandi Vinstri
grænna í Suðvesturkjördæmi, var
inni á þingi alltaf af og til á
kosninganótt. Hún segist hafa vitað
að róðurinn yrði
þungur því að
Vinstri græn hafi
ekki átt neinn
þingmann í
kjördæminu. „Við
vissum að þetta
yrði brekka.“
Guðfríður Lilja
segist hafa
„stáltaugar úr taflmennskunni
gegnum árin. Þetta komst ekki í
hálfkvisti við almennilega skák þar
sem taflið snýst oft við þannig að
ég var ágætlega undirbúin en
auðvitað brenna á mér svo ótrúlega
mörg mál að það hefði verið gaman
að komast inn,“ segir hún.
Ekki í hálfkvisti
við skákina
Talningin á
kosninganótt sýndu lengi vel að
Róbert Marshall, frambjóðandi
Samfylkingarinnar í Suðurkjör-
dæmi, hefði komist inn á þing.
Róbert slær á létta strengi, segist
hafa fengið að prófa að vera
þingmaður í átta
klukkustundir og
það sé „fullkom-
lega ofmetið
starf“.
„Þetta var
náttúrulega mjög
spennandi
kosninganótt. Ég
varð ekki rólegur
fyrr en lokatölur lágu fyrir og þá
hafði þetta farið svona. Upp úr
stendur að þúsundir manna vildu
gera mig að þingmanni. Nú er ég
varaþingmaður þannig að starfið
heldur áfram.“
Varð rólegur
við lokatölur
Sigríður Á.
Andersen, frambjóðandi D-lista í
Reykjavíkurkjördæmi norður,
var tvisvar inni samkvæmt
talningu á
kosninganótt og
virtist um tíma
ætla að komast
inn á þing sem
uppbótarþing-
maður en datt svo
alveg út undir
lokin.
„Ég hef fylgst
með kosningabar-
áttu frá unga aldri og veit að
niðurstaðan liggur ekki fyrir
fyrr en við lokatölur þannig að
ég gerði mér engar vonir.
Það er helst að þetta hafi tekið
á eftir á en auðvitað tekur á að
vera svona nálægt þessu og svo
veit maður ekki hvað hefði gerst
ef framsóknarmenn hefðu fengið
ellefu atkvæðum meira.“
Tekur á að vera
svona nærri
Maður var stöðvað-
ur þar sem hann ók beltagröfu
eftir götum Reykjanesbæjar í
gær. Nokkur ummerki voru á
götunni eftir gröfuna. Þetta
kemur fram í dagbók gærdags-
ins hjá lögreglunni á Suðurnesj-
um.
Maðurinn má búast við kæru
vegna ólöglegs aksturs vinnuvél-
ar á opinberum vegum og vegna
skemmda á götunni.
Hann hafði fengið gröfuna
lánaða og ætlaði að grafa á
lóðinni heima hjá sér.
Ökumaður var einnig kærður
fyrir akstur utan vega við
Reykjanesvita í gær. Hann hafði
ætlað að stytta sér leið yfir opið
svæði en sökk í jarðveg.
Ók um bæinn
á beltagröfu