Fréttablaðið - 14.05.2007, Síða 32
Borgartún 35 • 105 Reykjavík • sími 511 4000 • fax 511 4040 • utflutningsrad@utflutningsrad.is
www.utflutningsrad.is
Borgarstjóri Reykjavíkur, Vilhjálmur Þ. Vilhjálmsson, leiðir
viðskiptasendinefndina í heimsókn sinni til Moskvuborgar.
Í ferðinni verður sérstök áhersla lögð á orkumál og hefur verið
boðað til viðskiptaþings um nýtingu endurnýjanlegrar orku
og viðskipti tengd því fimmtudaginn 5. júlí.
Nú þegar hafa leiðandi fyrirtæki staðfest þátttöku sína í sendi-
nefndinni. Fyrirtækjum í tengdum greinum er hér með boðin
þátttaka á þinginu og einnig aðstoð við skipulagningu funda
með rússneskum fyrirtækjum meðan á heimsókninni stendur.
Frestur til að skrá þátttöku í ferðina er til 15. maí.
Nánari upplýsingar veita
Þorleifur Þór Jónsson thorleifur@utflutningsrad.is
og Guðjón Svansson gudjon@utflutningsrad.is
eða í síma 511 4000.
Viðskiptasendinefnd til Moskvu
orka í brennidepli
Útflutningsráð skipuleggur nú viðskipta-
sendinefnd til Moskvu dagana 4.- 6. júlí 2007.
F
í
t
o
n
/
S
Í
A
Frambjóðendurn-
ir hafa brosað til
okkar úr öllum
áttum undanfarn-
ar vikur. Stræt-
isvagnar, auglýs-
ingaskilti, hús-
þök og veggir hafa
verið veggfóðraðir
með andlitum frambjóðendanna.
Sumir fengu góða kosningu. Aðrir
hverfa af sjónarsviðinu um leið og
auglýsingarnar eru teknar niður.
Ég er fegin að kosningarnar eru
búnar. Mér hefur þótt hálf óþægi-
legt að labba um bæinn með augu
frambjóðendanna starandi á mig
úr öllum áttum. Það hefur ekki
verið hægt að opna blað eða sjón-
varp mánuðum saman fyrir æstu
fólki í framboði hrópandi „kjóstu
mig, kjóstu mig,“ eins og krakkar
í leikfimitíma.
Nú eru kosningarnar búnar og
auglýsingarnar hverfa hver á
fætur annarri. Mér dauðbrá þegar
ég fletti Fréttablaðinu í gær og sá
eitthvað annað en Geir H. Haarde
á síðu tvö. Nú er búið að kjósa og
Geir hefur verið skipt út fyrir
bílaauglýsingu.
Í stað lofræðu um forsætisráð-
herrann var komin lofræða um
nýjan Volkswagen Golf sem ku
hafa svipaða eiginleika og ráð-
herrann: traustur, öruggur og
sportlegur.
Bílaauglýsingar eru fyrir löngu
hættar að snúast um eiginleika bif-
reiðanna. Nú til dags snýst allt um
lífsstíl og stemningu. Ef þú kaup-
ir svona bíl verður líf þitt svona.
Ef þú kaupir hinsegin bíl verður líf
þitt öðruvísi.
Það er eins með frambjóðendurna.
Við vitum í raun sáralítið um eig-
inleika fólksins sem við kusum en
höfum hins vegar einhverja tilbúna
hugmynd um það hvernig líf okkar
verður komist það til valda. Okkur
hefur verið sagt að Toyota sé tákn
um gæði, Frjálslyndir segjast vera
„flokkur sem þorir“, Peugeot er
ljón á veginum og Vinstri græn
boða „Allt annað líf“. Við vitum
minna um fjölda hestafla, aksturs-
eiginleika og sparneytni og það á
alveg eftir að koma í ljós hvort rík-
isstjórnin verður „ljón á veginum“
eða ljón í veginum.