Fréttablaðið - 14.05.2007, Page 34
Fossinn í Bankastrætinu
nýtur sín best í sól og smá
golu. Margir hafa séð hann,
einkum athugulir vegfar-
endur í Lækjargötu, þar
sem hann glitrar í borg-
arlandslaginu og minnir
okkur á náttúruna í stærra
samhengi.
Höfundur fossins, arkitektinn
Theresa Himmer, er nú í óða önn
að smíða næsta foss sem settur
verður upp á hönnunarsýningunni
Magma/Kvika á Kjarvalsstöðum.
Bankastrætisfossinn byrjaði með
gömlu póstkorti en trónir nú, sex
metra hár, á húsinu númer sex en
hann er gerður úr plasti og rúm-
lega þrettán þúsund risa-pallí-
ettum. Fossinum var komið fyrir
í tengslum við grasrótarhátíð-
ina Sequences á liðnum vetri og
hefur staðið vel af sér veðraham
og frosthörkur.
Magma/Kvika verður ein viða-
mesta sýning sem sett hefur verið
upp á íslenskri samtímahönnun
en hún verður opnuð 19. maí. Um
sjötíu af fremstu og framsækn-
ustu hönnuðum Íslands taka þátt
í sýningunni og verður fjölbreytt
fræðslu- og kynningardagskrá í
tengslum við hana.
„Þegar mér bauðst að taka þátt
í hönnunarsýningunni ákvað ég
fljótlega að gera nýjan foss –
það gekk ekki að flytja þennan
því hann var gerður fyrir þenn-
an vegg og ég vil því leyfa honum
að vera þar svo lengi sem hann
hefur leyfi til. Það er bara gaman
að fá að gera nýjan,“ segir Ther-
esa. „Fyrir mig er þetta mjög
áhugavert verkefni því þótt efnið
sé það sama verður samhengið
allt annað og því útkoman líka.“
Theresa er arkitekt og starfar
hjá Studio Granda og hún hefur
verið búsett hér á landi í tvö ár.
„Sumir hafa kallað mig flótta-
mann ástarinnar,“ segir hún í
gríni en útskýrir svo að hún hafi
elt ástina hingað því að eiginmað-
ur hennar er íslenskur.
Theresa útskýrir að fyrri foss-
inn hafi verið byggður á mynd
af Seljalandsfossi en nú sé henni
hugsað til Goðafoss. Það sé einnig
skemmtileg tilviljun að nú er ný-
lokið sýningu á Kjarvalsstöðum
þar sem fjórir ólíkir myndlistar-
menn sýndu fossa sína.
Fleiri tengja pallíettur frekar
við fegurðarsamkeppnir og risa-
stór auglýsingaskilti en mynd-
list eða náttúru. „Þessi verk fjalla
svolítið um það, þetta er hráefni
sem er óneitanlega tengt yfir-
borðsmennsku og tilbúningi; fyr-
irtækið sem framleiðir pallíett-
urnar selur mikið af þeim á alls
kyns hátíðir og tískusýningar.
Það sem heillar mig svo er þessi
árekstur. Pallíetturnar eru pínu-
lítið smekklausar en þar sem
verkið vísar til náttúrunnar og
hreinleikans verða þær ljóðræn-
ar. Þetta eru tveir ólíkir heimar.“
Glansmynd fossins er um-
kringd annars konar list, áletr-
unum og veggjakorti en Theresa
segir að þannig eigi það að vera
– hann eigi að falla inn í borgar-
landslagið. Hún hefur ákveðnar
skoðanir á list á opinberum vett-
vangi og útilistaverkum. „Opin-
ber list getur verið allt frá brons-
styttu af þjóðhetju á hestbaki yfir
í graffití, götuleikhús og fleira.
Mér finnst mjög mikilvægt að
list fái að njóta sín opinberlega
og sjálf kann ég best að meta
það þegar hún hefur skírskotun
í hversdagsleikann eða fær fólk
til að sjá umhverfið í nýju ljósi,“
segir Theresa en í heimaborg
hennar, Árósum, hafa útilista-
verk hreinlega valdið deilum. „Í
Árósum virðast yfirvöld hafa þá
skoðun að öll auð rými verði að
fylla af hefðbundinni list sem er
komin til að vera, en stundum á
það alls ekki við því að opin rými
bjóða upp á svo marga aðra mögu-
leika.“
Theresa segist vel geta hugs-
að sér að gera fleiri fossa fyrir
landslagið á Íslandi en hyggur þó
ekki á neina fjöldaframleiðslu.
„Maður má ekki sjá þá of oft því
að þá verður þetta bara leiðinleg
endurtekning. Ég vil líka vinna
með fleiri viðfangsefni og hrá-
efni. Það er ekkert gaman að vera
alltaf bara „fossastelpan“,“ segir
Theresa brosandi að lokum.
Kl. 20.00
Víkingur Heiðar Ólafsson
heldur aukatónleika í Saln-
um í Kópavogi.
Á efnisskránni eru verk eftir
J.S. Bach og F. Chopin, auk
hinnar stórbrotnu App-
assionata-sónötu eftir
Beethoven. Þá frumflyt-
ur Víkingur píanósvítu
eftir föður sinn Ólaf
Óskar Axelsson.
„ÞAÐ ELSKA ALLAR KONUR HEIMSFRÆGA MENN“
GRETTIR
Miðasala 568 8000
www.borgarleikhús.is
grettir.blog. is