Fréttablaðið - 14.05.2007, Blaðsíða 42
Nýjung í ræstingum
– þú nærð hærra með UniFlex afþurrkunarsetti
R
V
62
33
UniFlex afþurrkunarsett
og tvær aukamoppur.
1.398,-
Henrietta Holz Jensen
sölumaður í útibúi RV í Danmörku
N
ú
á
ti
lb
oð
i!
il
i
1. deild karla
2. deild karla
Enska úrvalsdeildin
Fyrsta mark Óðins Árna-
sonar í hans 85. leik í efstu deild
tryggði Fram eitt stig á móti Val í
fyrsta leik liðanna í Landsbanka-
deild karla í gær.
Óðinn, sem spilar stöðu hægri
bakvarðar, brá sér fram í auka-
spyrnu mínútu fyrir leikslok og
var réttur maður á réttum stað.
Valsmenn, sem voru með frum-
kvæðið í leiknum, tókst ekki að
bæta við sínu öðru marki eftir að
Helgi Sigurðsson kom þeim í 1-0 á
15. mínútu og þurftu því að horfa
á eftir stigunum í lokin.
„Ég náði ekki einu sinni að skora
fyrir Þór í 1. deildinni. Ég skoraði
eitt í 2. deildinni en það var orðið
mjög langt síðan. Það er gott start
hjá manni í Fram,“ sagði hetja
Framara, Óðinn Árnason, eftir
leikinn.
„Það var byrjendabragur á
þessu hjá báðum liðum og það var
ekki mikið verið að spila boltan-
um með jörðinni og þetta snerist
meira um kýlingar og hlaup. Það
voru allir liggjandi í vellinum með
krampa í seinni hálfleiks. Ég var
meira að segja búinn að kalla á Óla
og segja að ég væri kominn með
krampa líka en harkaði af mér
sem betur fer,“ bætti Óðinn við
en hann var ánægður með upp-
skeruna.
„Það er mikilvægt að við náum
að sýna andlegan styrk í fyrsta
leik. Við erum undir megnið af
leiknum á móti liði sem allir kalla
meistarakandidata en við sýnum
að við erum með öflugt lið og þó að
við hittum ekki á okkar besta leik
þá gefumst við ekki upp á móti
neinum. Það mega allir búast við
hörkuleik þegar þeir spila á móti
okkur,” sagði Óðinn að lokum.
Það stefndi lengi vel í að örlögin
sæju til þess að Helgi Sigurðsson
skoraði sigurmarkið á móti sínum
gömlu félögum. Markið skoraði
Helgi á laglegan hátt eftir að hafa
fengið góða sendingu frá Pálma
Rafni Pálmasyni. Helgi fékk
reyndar sams konar færi í seinni
hálfleik en þá náði Hannes Þór
Halldórsson, markvörður Fram að
bjarga á laglegan hátt. Helgi var
besti maður Vals ásamt Baldri Að-
alsteinssyni en þeir áttu saman 10
af 19 markskotum Valsliðsins.
Hjálmar Þórarinsson lífgaði
mikið upp á sóknarleik Framara
þegar hann kom inn á og fiskaði
einmitt aukaspyrnuna sem jöfn-
unarmarkið kom upp úr.
„Það er alltaf ömurlegt að sjá
á eftir sigri í lokin en það er hætt
við þessu þegar forustan er ekki
meira en eitt mark. Það er langt
síðan að maður hefur skorað og
það ætlar að ganga hægt hjá mér
að brjóta ísinn,“ sagði Valsmaður-
inn Baldur Aðalsteinsson sem átti
þrumuskot í slána fimm mínútum
fyrir leikslok en mark þar hefði
væntanlega gulltryggt sigur Vals.
„Við vorum samt ekki komnir
með neitt á meðan leikurinn er enn
í gangi. Eitt stig er eitt stig og við
þiggjum það. Það er gott að vera
komnir með stig á töfluna því það
er oft erfiðast að ná í fyrstu stig-
in,“ bætti Baldur við. Hann gerði
sér grein fyrir því að leikurinn
var ekki áhorfendavænn.
„Þetta var barningsleikur og ör-
ugglega ekki mikið fyrir augað.
Við erum með hörku fótbolta-
lið en náðum ekki að sýna okkar
bestu hliðar í dag. Það kemur
bara í næsta leik,” sagði Baldur að
lokum.
Fyrsta mark Óðins Árnasonar í efstu deild í hans fyrsta leik með Fram tryggði
Safamýrarliðinu 1-1 jafntefli gegn Val á Laugardalsvellinum í gær og sá til þess
að Helgi Sigurðsson tryggði ekki Val sigur gegn sínum gömlu félögum.
West Ham kórónaði frá-
bæran endasprett sinn í ensku
úrvalsdeildinni með því að vinna
1-0 sigur á Englandsmeisturum
Manchester United á Old Traff-
ord.
Það var að sjálfsögðu Argent-
ínumaðurinn Carlos Tevez sem
skoraði sigurmarkið og fyrir vikið
fékk Sheffield United á óhagstæð-
ari markatölu en Wigan. Tevez
skoraði 7 mörk fyrir Lundúnaliðið
og öll komu þau í tíu síðustu leikj-
unum.
„Það er frábært að koma og
vinna Manchester United á Old
Trafford, sama hverjar kringum-
stæðurnar eru. Ég vona að hvorki
ég né West Ham fari í gegnum
svona tímabil aftur,“ sagði Alan
Curbishley, stjóri West Ham eftir
sigurinn.
West Ham vann fjóra síðustu
leiki sína og fékk alls 21 stig af 27
stigum mögulegum út úr níu síð-
ustu leikjum sínum. Manchest-
er United lét tapið ekki spilla
fyrir sigurhátíðinni og þeir Gary
Neville og Ryan Giggs lyftu Eng-
landsbikarnum í sameiningu.
Wigan sem var í fallsætinu fyrir
umferðina bjargaði sér með því að
vinna Sheffield 1-2 á útivelli og
senda þar með heimamenn niður
í 1. deild. „Þetta var mikið afrek
en ég get ekki annað en vorkennt
Sheffield United. Það er ekki
gaman að fagna fyrir framan lið
sem er fallið úr deildinni,“ sagði
Paul Jewell, stjóri Wigan eftir
leikinn.
Það komu bara þrjú stig í hús hjá
efstu fjórum liðunum því Chelsea
(1-1 á móti Everton), Liverpool (2-
2 á móti Charlton) og Arsenal (0-0
á móti Portsmouth) náðu öll bara
einu stigi út úr sínum leikjum.
Vítaspyrna Harrys Kewell á loka-
mínútunni reddaði stiginu fyrir
Liverpool sem þar með hélt 3. sæt-
inu sem annars hefði farið til Ars-
enal.
Carlos Tevez fullkomnaði
draumaendasprett West Ham