Fréttablaðið - 14.05.2007, Blaðsíða 46
1
6 7 8
10
13
119
12
15
16
18
21
20
17
14
19
2 3 4 5
„Þetta er stef sem ég samdi síðasta
sumar,“ segir Sveinbjörn Thorar-
ensen, betur þekktur sem Hermi-
gervill, sem samdi nýtt stef sem
hljóma mun undir samlesnu aug-
lýsingunum á Rás eitt og tvö. „Ég
fékk Björn Thorarensen, pabba
minn til að spila á hljómborð fyrir
mig. Þannig að þetta er svona feðga
samvinna. Hann spilaði með Mezzo-
forte í gamla daga og kemur með
smá áhrif þaðan. Sjálfur spilaði ég
á gítar.“
Stefið er nú þegar farið að hljóma
undir auglýsingunum. Sjálfur hefur
hann ekki heyrt það í útvarpinu þar
sem hann er búsettur í Amsterdam
um þessar mundir þar sem hann
leggur stund á hljóðupptökunám.
Hermigervill segist óhrædd-
ur við að hrófla við svona rótgró-
inni menningarstofnun og segir að
stefið sé mjög ólíkt tónlistinni sem
hann gerir vanalega. Hann segir að
svona stef séu tónlist sem maður
eigi helst ekki að taka eftir og séu
samin með það í huga.
„Ég var að reyna að ná svona
„Bob James fíling“ í stefið. Það er
„fusion“ djasstónlistarmaður sem
er svona pínulítið ídol hjá mér. Ann-
ars var aðalmálið að gera eitthvað
sem virkar í þessu samhengi.“
Aðspurður hvort hann telji að
stefið eigi eftir að hljóma næstu
fimmtíu árin segir hann: „Ég veit
ekkert um það. Mér finnst þetta
bara fyndið og á örugglega eftir
að hlæja í hvert sinn sem ég heyri
þetta.“
Samdi nýtt stef fyrir Ríkisútvarpið
„Synir mínir eiga safnið og hafa skyldað mig
til að horfa á það allt,“ segir leikarinn Ellert
Ingimundarson en hann hefur verið ráðinn til
að tala fyrir hinn guðhrædda Ned
Flanders í Simpson-mynd-
inni sem frumsýnd verð-
ur í sumar. Ellert bætist
þar með í fríðan hóp leik-
ara en meðal þeirra sem
hafa þegar verið ráðn-
ir eru Örn Árnason fyrir
hlutverk Hómers, Mar-
grét Vilhjálmsdóttir sem
talar fyrir Marge og Álf-
rún Örnólfsdóttir en hún
bregður sér í hlutverk hinnar ofurgáfuðu Lísu.
Þá mun Sigrún Edda Björnsdóttir leika óláta-
belginn og hrekkjalóminn Bart Simpson. Mikil
eftirvænting ríkir eftir myndinni enda hefur
gula fjölskyldan skemmt heiminum í rúm átján
ár í sjónvarpinu.
Ellert segist þó eiga lítið sameiginlegt með
hinum kirkjurækna Flanders en býst við því að
kynna sér hann aðeins betur. „Jafnvel að maður
fari bara að kíkja í kirkju og ætli maður
endi ekki bara uppi sem Ned fyrir rest,“
segir Ellert og hlær en viðurkennir um
leið að hann sé enginn sérstakur að-
dáandi þáttanna. „Nú ætla ég bara að
leggjast yfir safn strákanna og kynn-
ast þessum fýr aðeins betur,“ bætir Ell-
ert við og segist ekkert hafa fylgst með
þeim deilum sem hafa sprottið upp í
kringum talsetningu kvikmyndarinnar.
Reyndar eru synir Ellerts miklir aðdá-
endur þáttanna og segir hann að þeir hafi
verið á báðum áttum með þá ákvörðun pabb-
ans að taka að sér þetta hlutverk. „En ég held að
þetta sé allt að koma hjá þeim. Þeir verða líka
bara að styðja við bakið á gamla manninum því
annars fá þeir ekkert að borða.“
Synirnir á báðum áttum með pabba
„Einhverjar færeyskar húsmæð-
ur hafa unnið þetta árum saman.
Bikarinn heim!“ segir Egill Örn Jó-
hannsson, framkvæmdastjóri JPV
útgáfunnar, herskár mjög.
Nú hafa forsvarsmenn bókafor-
lagsins í Vesturbænum skráð það
til leiks í hina árlegu róðrarkeppni
sem að venju er haldin á sjómanna-
daginn, sem er fyrsti sunnudagur-
inn í júní. Eins og heyra má á glað-
beittum framkvæmdastjóranum
ætla bókabéusarnir sér stóra hluti
í keppninni. Egill Örn segir reynd-
ar hinar færeysku húsmæður ekk-
ert lamb að leika sér við. „Í fyrra
mátti Lögreglusamband Reykjavík-
ur lúta í lægra haldi fyrir þeim. Fíl-
efldir karlmennirnir. Þetta snýst
sem sagt ekki um að geta tekið sem
mest í bekkpressu heldur er sam-
hæfingin það sem máli skiptir. Og
hún er nú heldur betur til staðar hjá
forlaginu.“
Einboðið hefði mátt ætla að Jó-
hann Páll Valdimarsson, JPV sjálf-
ur, yrði skipperinn sem æpir á
sína menn og hvetur til
dáða. En Egill
segir að JPV sé
liðtækur ræð-
ari sem ekki má
missa af árinni.
„Nei, Bubbi Morthens (sem er
að skrifa veiðisögur fyrir forlagið)
kom því ekki við að keppa með
okkur að þessu sinni. En ég vona að
rithöfundar á borð við Ólaf Gunn-
arsson, Stefán Mána, Jón
Atla og Hugleik leggist
á árarnar með okkur.
Þetta er allt í undirbún-
ingi.“
Leynivopn JPV-róðr-
arliðsins eru svo þeir
Arnaldur Birgir
Konráðsson
og Róbert
Traustason, Bootcamp-þjálfarar og
bókahöfundar – allsvakalegir nagl-
ar.
Í Nauthólsvíkinni fást vanir menn
við að þjálfa þau lið sem skrá sig til
keppni. Þegar eru komin fjögur lið
og búist er við fleirum.
„Færeysku konurnar hafa verið
að mala þetta undanfarin ár,“ segir
Ísleifur Friðriksson siglingameist-
ari en hann þjálfar þau lið sem eftir
því leita í Nauthólsvíkinni. Hann
segist illa svikinn ef þær mæta
ekki til leiks núna og þá einnig lið
sem kallar sig Ídýfurnar sem mun
í startholunum. „Enn er pláss fyrir
lið að taka þátt en þetta er sniðugt
dæmi fyrir vinnustaði og sauma-
klúbba.“
Bátarnir sem notaðir eru
eru sérhannaðir til kappróð-
urs en í hverjum bát er 7
manna róðr- arlið.
„Þegar ég er að keyra strætó
hlusta ég á Rás 2 til níu og
síðan er það Útvarp Saga til tíu.
Eftir það er það gullið, 90,9, til
fjögur á daginn. Þá tekur við
Reykjavík síðdegis á Bylgjunni.
Í bílnum mínum hlusta ég á vin
minn Björgvin Halldórsson og
Chicago, sem er besta band í
heimi.“
Gó› rá› og gagnlegar uppl‡singar
um heita vatni›
www.stillumhitann.is