Fréttablaðið - 03.06.2007, Side 4

Fréttablaðið - 03.06.2007, Side 4
ÍS L E N S K A /S IA .I S /H S K 3 75 91 0 5/ 07 INNRITUN www.hi.is Umsóknarfrestur í grunnnám er til 5. júní Allt sem þú vilt vita og rafrænar umsóknir á www.hi.is Rannsókn lögreglu á Heiðmerkurmálinu svokallaða gengur hægt. Reykjavíkurborg hefur ekki skilað umbeðnum gögnum til lögreglunnar, en umrædd gögn eru grundvöllur frekari rannsóknar, segir lögregla. „Málið strandar á að menn eru einhvers staðar í burtu bara,“ segir rannsóknarlögreglumaður, sem bjóst við gögnunum „fyrir einhverjum dögum síðan.“ Skógræktarfélag Reykjavíkur kærði Kópavogsbæ og Klæðningu ehf. í febrúar fyrir umdeildar framkvæmdir í Heiðmörk. Taldi félagið sig hafa tapað allt að 1.000 plöntum á framkvæmdunum. Borgin tefur rannsóknina Nýkjörinn forseti Alþingis, Sturla Böðvarsson, vék að starfs- aðstöðu þingmanna og umræðu- háttum í þinginu í ávarpi við setn- ingu Alþingis á fimmtudag. Sagði hann tíma til kominn að endurskoða skipulag umræðu en tók skýrt fram að hann væri ekki að kalla eftir styttri umræðum heldur skýrari skoðanaskiptum. „Sem ráðherra varð ég marg- sinnis vitni að því að þingmenn komu óundirbúnir í umræðu og það tel ég ekki boðlegt,“ sagði Sturla í samtali við Fréttablaðið. „Þingmenn verða að líta í eigin barm. Að vera vel undirbúinn er vísasti vegurinn til að koma fram athugasemdum. Hnitmiðaðar ræður þingmanna sem hafa kynnt sér málin vel leiða sjálfkrafa til styttri umræðu,“ segir hann. Sturla vill ekki taka svo sterkt til orða að segja þingmenn flytja ræður um mál án þess að vita nokk- uð um þau en bendir á að við lestur þingræða sjáist glögglega að góður undirbúningur skipti miklu máli. Landsbyggðarkjördæmin þrjú; Norðvesturkjördæmi, Norðaustur- kjördæmi og Suðurkjördæmi eru feykilega stór og víðfeðm og eftir því erfið og seinleg yfirferðar. Sturla vill búa svo um hnúta að þingmenn þessara kjördæma geti betur sinnt málum heima í héraði. „Þinghaldið yfir veturinn þarf að taka betur mið af þessum aðstæðum og þingmenn að fá betra svigrúm til að fara um kjördæmið án þess að láta sig vanta á þing- fundi.“ Fjölga megi kjördæmavikum yfir vetrarmánuðina og eins megi hugsa sér að landsbyggðarþing- menn fái aðstoðarmenn, líkt og áður hefur verið rætt um. Sturla segist hafa hugsað þessi mál rækilega en vill kynna hug- myndir sínar innan forsætisnefnd- ar þingsins og fyrir þingflokksfor- mönnum áður en hann ræðir þær frekar. Nokkrar endurbætur hafa orðið á starfsaðstöðu Alþingis á umliðn- um árum en Sturla segir frekari úrbætur mikilvægar. Lítillega hafi verið rætt um hvernig skipuleggja beri Alþingisreitinn í miðborg Reykjavíkur og nú þurfi að marka skýra stefnu um nýtingu lóða í góðu samstarfi við borgaryfirvöld. „Starfsaðstaðan hefur batnað en þær breytingar snúa fyrst og fremst að aðstöðu starfsmanna þingsins. Enn skortir á góða vinnu- aðstöðu þingmanna og til þess vil ég líta,“ segir Sturla. Undirbúningur fyrir umræður oft of lítill Sturla Böðvarsson forseti Alþingis hvetur þingmenn til að vanda betur undir- búning ræða. Málflutningur verði hnitmiðaðri og umræður styttri. Hann vill fjölga kjördæmavikum til að bæta starfsaðstæður landsbyggðarþingmanna. Tólf ára nemendum sem brutust inn í Rimaskóla á þriðjudag, mölvuðu rúður og krotuðu á veggi, hefur tímabundið verið vikið úr skólanum. Þessir sömu nemendur höfðu áður verið staðnir að umfangsmiklu veggjakroti. Lögregla telur málið upplýst og mun senda það áfram til Barnaverndarnefndar Reykjavíkur. Farið verður fram á að foreldrar barnanna sem í hlut áttu bæti fyrir tjónið. „Stúlknaklósettið var sérstaklega illa útleikið af veggjakroti og viðbjóði, krotað var á veggi hátíðar- salar og standfánum skólans var ekki hlíft við kroti og krassi.“ Svona lýsir Helgi Árnason, skólastjóri Rimaskóla, aðkomunni í bréfi sem hann sendi foreldrum nemenda skólans. „Það hafa stundum verið brotnar rúður eða krotað á veggi, en aldrei neitt svona alvarlegt,“ segir Helgi. Hann segir þetta líklega versta agabrotið í hans tíð. Helgi segist í kjölfar skemmdarverkanna hafa ítrekað beiðni um öryggismyndavélar við skólann, en eftir slíku hefur verið sóst frá stofnun skólans. „Þetta gerðist um hábjartan dag, milli sex og átta, og þjófavarnarkerfið var ekki komið í gang og enginn í skólanum,“ segir Helgi. „Rimaskóli er nokkuð vel búinn, en þarna fóru nemendur inn á stað sem þarf að huga betur að,“ segir Júlíus Vífill Ingvarsson, formaður menntaráðs Reykjavíkurborgar. Þrennt var handtekið og eins er leitað vegna áætlunar um að sprengja eldsneytisleiðslu John F. Kennedy alþjóðaflugvallarins í New York í gær. Eldsneytisleiðslan liggur í gegnum íbúahverfi, en að sögn lögreglu fengu hinir grunuðu ekki tækifæri til að hrinda áætluninni í framkvæmd. „Hefði þessi áætlun náð fram að ganga hefði það leitt til ótrúlegrar tortímingar,“ sagði Roslynn Mauskopf saksóknari. Einn hinna handteknu er fyrrverandi þingmaður Gvæjana í Suður-Ameríku. Að sögn lögreglu hafði fyrst komist upp um áætlunina í janúar í fyrra. Ætluðu að sprengja flugvöll Nýtt leiðakerfi Strætó bs tekur gildi í dag. Tíðni ferða minnkar og aka nú allir vagnar á 30 mínútna fresti, nema leiðir 23 og 27. Þegar vetraráætl- un tekur gildi munu ákveðnar leiðir aka á 15 mínútna fresti. Breytingar hafa verið gerðar á leiðum í Breiðholti, Garðabæ, Grafarholti, Grafarvogi, Hafnar- firði og Kópavogi. Fjórar leiðir eru lagðar niður, en sex aðrar leiðir taka við hlutverki þeirra. Nánar má kynna sér breytingarn- ar á heimasíðu Strætó bs, www. bus.is. Breytingarnar eru, samkvæmt upplýsingum Strætó bs, til þess fallnar að spara rekstrarkostnað og koma til móts við óskir viðskiptavinanna. Aka nú á 30 mínútna fresti Skólaslit áttu sér stað í grunnskólum víða um land á föstudag. Gunnar Gíslason, deildarstjóri skóladeildar á Akureyri, segir að minnst tveimur skólum á Akureyri hafi verið slitið í gær. Þeim sé slitið svo snemma þar sem kennararn- ir hafi ekki tekið starfsdaga yfir veturinn, Í Reykjavík hafa skólaslit þegar átt sér stað í tveimur grunnskólum, í Hvassaleitisskóla og Skóla Ísaks Jónssonar, en þessum skólum var slitið 30. maí. Birna Sigurjónsdóttir, starfsmað- ur Skólaskrifstofu, segir að ekkert vetrarfrí hafi verið tekið í þessum skólum og því hafi verið hægt að slíta skólunum svo snemma. Öðrum grunnskólum verður slitið í þessari viku. Hefst þá sumarfrí grunnskólabarna. Mörg þeirra sækja skipulegt starf sveitarfélaga fyrir börnin. Skólum þegar verið slitið

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.