Fréttablaðið - 03.06.2007, Side 13
Garðar Víðir Gunnarsson er einn
þeirra sem útskrifast af lagadeild
Háskólans í Reykjavík um næstu
helgi. Hann hóf nám ásamt áttatíu
öðrum árið 2002.
„Eftir á að hyggja er ég mjög
sáttur við að hafa valið Háskólann
í Reykjavík,“ segir hann. „Hann
hefur staðið undir þeim vænting-
um sem ég gerði til hans, bæði
hvað varðar gæði námsins og sam-
band kennara við nemendur.“
Hann segist hafa valið skólann
að vel ígrunduðu máli, enda sé
áhætta fólgin í að hefja nám við
nýstofnaða lagadeild. „Það voru
vissulega efasemdir í upphafi,
en ég hitti Þórð deildarforseta á
stóra háskóladeginum og hann
lýsti fyrir mér sinni sýn á námið.
Mér fannst þessar breyttu áhersl-
ur spennandi og ákvað að slá til.“
Mikill meirihluti útskriftar-
nemanna ætlar beint út á vinnu-
markaðinn en Garðar er ekki einn
þeirra. Í haust ætlar hann til Stokk-
hólms í Svíþjóð að læra alþjóðleg-
an gerðardómsrétt. „Þetta er nám
sem enginn Íslendingur hefur
lært áður, og ég er mjög sáttur við
að komast þarna inn. Það er mikil
samkeppni um hvert sæti.“
Garðar segir félagslífið í skól-
anum hafa verið gott, þrátt fyrir
erfitt nám við nýja deild. „Félags-
lífið var svolítið sérstakt til að
byrja með, en hópurinn sem byrj-
aði hefur haldið vel saman. Það
var alltaf tími fyrir félagslífið inn
á milli lestursins.“
Þegar orðið „lögfræðingur“ er
nefnt hugsa margir eflaust til
Denny Crane í Boston Legal þátt-
unum, Lionel Hutz í Simpsons þátt-
unum eða jafnvel Matlock. Hið
rétta er að langfæstir lögfræðing-
ar vinna við eiginlegan málflutning
og starfið er ekki alveg jafn spenn-
andi og það virðist vera í banda-
rískum lögfræðiþáttum.
„Í grófum dráttum þurfa lög-
fræðingar að reyna að sjá fyrir
þær hindranir sem kunna að vera í
vegi fyrir því sem fyrirtækið ætlar
að gera,“ segir Þórður S. Gunn-
arsson, deildarforseti lagadeildar
Háskólans í Reykjavík.
„Meginhlutverk lögfræðings í
dag er að koma í veg fyrir að vanda-
mál komi upp, sem kosta fyrirtæki
oftast heilmikla peninga og tíma að
fá leyst með dómsmáli. Hann ráð-
leggur fyrirtækinu þegar verið er
að taka ákvörðun um að fara í þessa
átt eða hina.“
Í dag eru langflest stærri
fyrirtæki landsins með lögfræðing
á sínum snærum, og stefnir í mikla
aukningu eftirspurnar eftir þeim
í viðskiptalífinu, að sögn Þórðar.
„Í dag eru svona fimmtíu til sex-
tíu dómarar starfandi á landinu, og
þeim fer ekki fjölgandi á næstunni.
Á hinn bóginn eru fyrirtæki sífellt
að stækka og verkefni lögfræðinga
í þeim geira að aukast.“
ÚRVAL ÚTSÝN ~ LÁGMÚLA 4 ~ 108 REYKJAVÍK ~ SÍMI 585 4000 ~ FAX 585 4065 ~ INFO@UU.IS
ÚRVALS ÚTSÝNAR
SALAN ER HAFIN
Selva og
Madonna di Campiglio
11 daga jólaferð 22.desember.
10 daga ferð 2. janúar.
Vikulegt flug alla laugardaga frá 12. jan.
9 daga páskaferð 15.mars.
Verð frá
69.900
á mann í tvíbýli með morgunverði í eina viku
á hótel Montana í Madonna 12. janúar.
Innifalið: Flug, gisting, íslensk fararstjórn
og akstur erlendis.
Kitzbühel – Kirchberg,
Flachau, Wagrain
og Alpendorf
9 daga ferð 10. janúar.
Vikulegt flug á Salzburg frá 19. janúar
til 8.mars.
10 daga páskaferð 15. mars.
Verð frá
69.400
á mann í tvíbýli með hálfu fæði í eina viku
á hótel Taxacher Hof í Kirchberg 19. janúar.
Innifalið: Flug, gisting og íslensk fararstjórn.
Ítalía Austurríki
Ítalía og Austurríki hafa verið vinsælustu
áfangastaðir skíðaunnenda undanfarin ár og
ekki að ástæðulausu. Madonna di Campiglio,
fallegt fjallaþorp á Ítalíu, er með þægileg-
ustu brekkurnar og frábæra aðstöðu fyrir
snjóbrettafólk. Selva del Gardena er einn
þekktasti skíðabær Ítalíu og er jafnframt
eitt besta skíðasvæði í heimi. Salzburger
Sportwelt og Kitzbühel/Kirchberg eru
með bestu skíðasvæðum Austurríkis.
Það er kjörið að gleyma hvað tímanum
líður og þeytast alla daga niður frábærar
skíðabrekkur af öllum stærðum og gerðum.
Skelltu þér á skíði í vetur!
www.uu.is