Fréttablaðið - 03.06.2007, Page 60

Fréttablaðið - 03.06.2007, Page 60
a eftir f i kj Meiraprófsbílstjóri Gámastöðin óskar eftir að ráða meiraprófs- bílstjóra með full réttindi sem fyrst. Sími 588 5100 / gamastod@emax.is Gígja Heiðarsdóttir hefur starfað hjá ÍTR í tvö og hálft ár. Hún hefur nú umsjón með vinnuskóla fyrir ungt fólk á aldrinum sextán til tuttugu ára með þroskahömlun. Gígja er annar af tveimur umsjónarmönnum vinnu- skóla fyrir ungt fólk á aldr- inum sextán til tuttugu ára með þroskahömlun „Ég er að sjá um skólann í fyrsta skipti í sumar en ég hef unnið hjá Sérsveitinni, sem sér um allt félagsstarf fyrir fatlaða hjá ÍTR, í tvö og hálft ár,“ segir hún. Gígja segir að það hafi eiginlega verið tilviljun sem réði því að hún fór að vinna hjá Sérsveitinni. „Eftir að ég kláraði stúdentinn ákvað ég að taka mér árs pásu og byrjaði að vinna með börnum í Öskjuhlíð, frístundaheim- ili fyrir Öskjuhlíðarskóla. Mér fannst þetta svo gaman að ég fór alltaf lengra og lengra og ákvað svo að drífa mig í kennaranám. Núna er ég í fjarnámi með hundrað prósent vinnu því mér finnst vinnan mín svo skemmtileg að ég tími ekki að hætta,“ segir hún og hlær. Til stendur að breyta aðeins fyrirkomulagi vinnu- skólans sem Gígja sér um í sumar. „Krakkarnir hafa flestir verið í bæjarvinnunni frá þrettán ára aldri og yfir- leitt hætta þeir um fimmtán ára aldur. Við viljum breyta því þannig að um sextán ára aldur fái þeir aðeins að kynnast vinnumarkaðnum og prófa fjölbreyttari störf. Núna erum við því að reyna að finna pláss fyrir þá á hinum ýmsu vinnustöðum fyrir sumarið og ráða starfsfólk sem mun fylgja þeim inn á vinnustaðina. Við erum opin fyrir öllu, hvort sem vinnustaðir eru tilbúnir til þess að láta okkur hafa heilar stöður sem krakkarnir geta skipt á milli sín eða bara bjóða þeim upp á starfskynningu,“ segir Gígja. Þó mikið sé að gera þessa dagana við skipu- lagningu sumarstarfsins er Gígja mjög ánægð í vinn- unni. „Þetta er bara alveg frábært, skemmtilegasta vinna í heimi,“ segir hún og hlær. Skemmtilegasta vinna í heimi Erlendir ríkisborgarar á Íslandi voru frá 122 lönd- um í árslok 2005. Félagasamtökin Ísland Pan- orama standa um þessar mundir fyrir herferð undir yfirskriftinni, Inn við beinið erum við öll eins, en mark- mið samtakanna er meðal annars að vinna að auknum skilningi og gagnkvæmri virðingu fólks af ólíkum uppruna sem búsett er á Íslandi. Í árslok 2005 voru 13.778 erlendir ríkisborgarar með lögheimili á Íslandi. Á sama tíma voru 15.045 Íslending- ar með lögheimili á Norður- löndunum en auk þess býr fjöldi Íslendinga í öðrum löndum víða um heim. Erlendir ríkisborgarar á Íslandi voru frá 122 löndum og voru flestir frá Póllandi (3.221), Danmörku (903), Þýskalandi (781), Filipps- eyjum (771) og frá löndum fyrrum Júgóslavíu (703). www.sa.is Panorama stendur fyrir herferð

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.