Tíminn - 26.09.1980, Síða 4
4
Föstudagur 26. september 1980
í spegli tímans
Stormur
Höfundur myndarinnar, Pamela Peabody, segist ekki skilja allt
þetta fjaörafok, sem myndin hafi valdiö. Hún segist viröa
tengdafjölskyldu slna mikils og þá sérstaklega konurnar þar,
enda séu þær bestu vinkonur.
350 ár eru nú liöin siöan fyrsti
Peabody-inn steig á land I
Bandarikjunum og á þessum
tima hefur ættin, sem kennir sig
viö Boston, haslaö sér völl I
bandarisku þjóölffi. Hún hefur
framleitt klippera-skipstjóra,
kaupmenn, sem hafa stundað
sin viöskipti viö Kina, trú-
boöa i Villta Vestrinu, dipló-
mata, biskupa, rlkisstjóra og
iðnjöfra. Samt fór nú svo, aö
þegar Pamela Peabody, sem er
46 ára tengdadóttir i fjölskyld-
unni, hugöist gera kvikmynd
um þessa frægu fjölskyldu,
komst hún aö þeirri niöurstööu,
aö merkustu meölimir hennar
væru konurnar. Ekki var þaö nú
verra, og var myndin gerö og
siöan sýnd I Washington I fyrra,
vægast sagt viö misjafnar
undirtektir, en nú eru hafnar
sýningar á henni í bandariskum
sjónvarpsstöövum
En hverjar eru þá núlifandi
konur í Peabody-fjölskyldunni,
sem teknar eru til umfjöllunar I
fyrrnefndri kvikmynd? Elst er
Mary, sem nú er 89 ára. Hún er
ákafur boöberi frjálslyndra
skoöana I stjórnmálum og lifir
samkvæmt kenningum sinum.
A árinu 1964 var hún fangelsuð I
Florida fyrir aögeröir, sem áttu
aö gera rétt svartra jafnan
hvitra til aö sitja til sama borös
á veitingahúsi. Þá var sonur
hennar, Endicott, rikisstjóri í
Massachusetts. Dóttir Mary,
Marietta Tree, nú 63 ára, var
fyrsti kvensendiherra Banda-
rikjanna hjá Sameinuöu þjóöun-
um og samstarfsmaöur Adlai
Stevenson. Frances Fitzgerald,
er 39ára gömul dóttir Mariettu.
Hún hefur hlotiö Pulitzerverö-
launin fyrir bök um Vietnam.
Pamela kvikmyndageröarmaö-
ur er gift Mike Peabody, syni
Mary og bróöur Mariettu. Og þá
er aö lita á, hvaöa útreiö kon-
urnar góöu hljóta i myndinni
Pamela haföi þann háttinn á,
aö hún haföi viötöl viö þær
hverja fyrir sig. Umræöuefnin
voru hin fjölbreyttustu, allt frá
hvaöa stefnu skyldi taka i mál-
efnum Austurlanda nær til kyn-
lífs og fóstureyöinga. Eini veru-
Aöalpersónurnar i myndinni
umdeildu, t.f.v. Mary Peabody,
Marietta Tree, Frances
Fitzgerald.
legi ágreiningurinn, sem kemur
fram, er milli Mary, sem styöur
Palestinu-Araba, og Mariettu,
sem heldur hlifiskildi yfir Isra-
el. En þaö er aðallega útreiöin,
sem Marietta hlýtur I myndinni,
sem allir eru ekki jafn ánægöir
meö. Henni er lýst sem tvöfaldri
I roðinu. Hún sést ræöa ákaft um
jafnrétti hvitra og svartra á
meðan henni er þjónaö til borös
af svörtum þjóni I höll, sem hún
á á Barbados. Einnig er sýnt,
þar sem hún þylur þulur um
frjálslyndi sitt I stjórnmálum
sitjandi i aftursæti dollaragrins.
Þessar myndir þykir dóttur
hennar, Frances,ekki heiöarleg-
ar. — Þaö voru einnig svartir
gestir I þessari veislu. Hvers
vegna voru þeir ekki sýndir?
Og mamma á ekki einu sinni
dollaragrin, þetta, sem hún sést
i, var tekið á leigu. Og m.a.s.
Mary Peabody er ekkert sér-
lega ánægö meö þá mynd, sem
af henni er sýnd. —Ég var alltaf
aö óska mér, aö þessi gamia
kerling færi nú aö hverfa af
tjaldinu, segir hún og andvarp-
ar. Fjölskylduvinir segja: —
Þetta var bööulslega gert. Ekki
sist, þegar haft er I huga, aö
konurnar 3 féllust á aö taka þátt
I þessu, vegna þess, aö Pamelu
hefur aldrei tekist aö komast
meö tærnar, þar sem þær hafa
hælana og þær vildu þvi vera
vinsamlegar. Hvaö um þaö.
Myndinni hefur litillega veriö
breytt fyrir endursýninguna, og
sérstaklega reynt aö gera hlut
Mariettu skárri.
En kannski er skynsamleg-
asta athugasemdin, sem enn
hefur veriö látin falla um þessa
umdeildu mynd, komin frá
Carter Peabody, 14 ára syni
Pamelu, sem segir — Ég get
ekki skilið, af hverju fólk ætti aö
hafa áhuga á að heyra álit
ömmu minnar, fööursystur og
frænku á vandamálum heims-
ins.
vatnsglasi
í
*
bridge
Eftirslæman miökafla á Evrópumótinu
i israel var tsland komiö niður i 10. sæti
eftir 10 umferöir. En þá sóttu þeir í sig
veöriö og fengu 82 stig útúr siðustu 5 um-
feröum. I 11 umferö spiluöu þeir viö
Frakka og unnu 16-4, en Frakkar voru þá i
ööru sæti. Spilið hér aö neðan er frá þeim
leikog sýniraöbridgeleikir vinnast ekki á
þvi aö segja alltaf pass
Norður, S. KDG765 H. 2 A/Enginn
Vestur. T.K1098 L.D6 Austur
S. 8 S. 102
H.G1054 H. AK3
T.A43 TD52
L.G 10542 L. AK983
Suöur S. A943 H.D9876 T. G76 L. 7
1 opna salnum sátu Guðmundur og
Sævar INS og Beauvillain og Martin í AV.
Vestur Noröur Austur Suöur
1 grand pass
'pass 2spaöar pass 3spaðar
pass 4spaöar allirpass
Þaö var harðfylgni hjá Sævari að keyra
i geimið eftir sterka grandopnun austurs.
En eftir að austur spilaöi út hjartaás átti
Sævar ekki i vandræöum meö aö fria
hjartaö fyrir tvö tigulniðurköst — og hitta
siðan á aö spila tigli á kóng. Þaö voru 420
til islands. 1 lokaöa salnum sátu Skúli og
Þorlákur IAV og Sahal og Roger i NS.
Vestur, Noröur Austur Suöur
llauf dobl
1 tigull 4 spaðar pass pass
5lauf pass pass pass
Hér átti noröur auöveldara meö aö
komast i geimiö þvi dobl suöurs á sterka
laufiö lofaöi báöum hálitum. Hvort hann
hefði staðið spiliö er önnur saga en Skúli
gaf honum ekki tækifæri til aö sýna fram
á þaö heldur sagöi 5 lauf. Hörö sögn sem
reyndist ábatasöm þvi Skúli fór aöeins 1
niöureöa -r50oglsland fékk9impa.