Tíminn - 26.09.1980, Blaðsíða 17

Tíminn - 26.09.1980, Blaðsíða 17
Föstudagur 26. september 1980 ♦ v 17 það er fallegt og vandað ÞAÐ ER ISLENSKT Þetta er aðeins eitt sýnishorn af okkar fjölbreyttu framieiðslu v Komið og kynnist íslenskri fagvinnu. ÍSLENSK HÚSGÖGN FYRIR ÍSLENSK HEIMILI SIÐUMULA 30 • SIMI: 86822 Lesmál: Myndir: Kjartan Jónsson Guðjón Einarsson t þessu tæki fara fram gró- kornamælingar. Munu þær i framtiðinni geta gefið fólki, er ekki þolir gróður, vitneskju um, hvenær best sé að vera á ferli vegna fjölda grókorna i and- rúmsloftinu. gulrófan (Kálfafellsrófan), en hún var aðeins til á einum staö, þegar hafist var handa um ræktun hennar i Korpu. Nú er hún ræktuð i samvinnu við Stefán bónda á Vatnskarðshól- um i Mýrdal, og fá Korpumenn að ganga i akur Stefáns, velja þar fallegustu rófurnar, og nota þær til framræktunar. I Korpu er veðurathugunar- stöð. Kom fyrsta frostnóttin þar þann 28. ágúst, sagöi Ásgrimur. En mælistaðurinn er I sm hæð frá jöröu, og sem kunnugt er leitar kalda loftið niður á við. Einnig er mældur jarðvegshiti i mismunandi dýpt. Þær mæling- ar eru geröar frá 1. mai til 1. október, það er að segja yfír vaxtartimann. Þá eru stundaðar grókorna- mælingar, en margt fólk þolir ekki jurtagróin Berast þau með andrúmsloftinu ofan i öndunar- færin og valda astma, sem er erfiður og þreytandi sjúkdómur. Fer mælingin þannig fram, að rafdrifin vifta dregur loft að glerplötu, sem hefur verið smurð vaselini eða annarri feiti. Skipter um glerplötuna daglega og gróin talin undir smásjá. Er tilgangurinn sá að öðlast vit- neskju um hvenær ?umars mest er af gróum i andrúmsloftinu. grasrækt er mikill þáttur i starfseminni, og er einn stofn vallarfoxgrassins nefndur eftir stöðinni og heitir Korpa. Er hann orðinn algengur i túnum viöa um land, og er hann notað- ur bæöi einn sér og i fræblöndur. Af nýjum erlendum grasteg- undum, sem haslað hafa sér völl hérá landi, nefndu þeir Asgrim- ur og Björn Beringspuntinn. Hann er náskyldur snarrótar- puntinum okkar, en mun mýkri undir tönn og trénar ekki eins fljótt. Einnig nefndu þeir og sýndu okkur strandreyr, sem er upprunninn við strendur Kanada.en þekkist lika í Norð- ur-Noregi. Þessi grastegund er ákaflega hávaxin og uppskerumikil, get- ur náð allt að tveggja metra hæð, og er sambærileg við vall- arfoxgras að næringargildi og meltanleika. Strandreyrinn vex ágætlega i rakri jörð, og hefur staðist is- lenska veturinn. Telja þeir Korpumen, að þessi grastegund brigði, sem yrði sýruminni og þess vegna bragðbetri.Lika eru gerðar tilraunir með jarðarber. Eru margar tegundir af þeim i reitum, bæði úti og i gróðurhús- um, sem eru nokkur i stöðinni, flest úr plasti. Jurtasöfnun er eitt af þvi sem fengist er við i Korpu. Fer hún fram i samvinnu við Norræna genabankann, en hlutverk hans er að bjarga frá útrýmingu, grösum og öðrum jurtum, sem fylgt hafa mannkyninu frá örófi alda, og verið fæða manna og skepna. En þessir gömlu stofnar jurta hafa orðið að vikja, eink- um nú i seinni tið, fyrir öðrum uppskerumeiri. I þessum hópi eru gömlu is- lensku túngrösin, en þeim er verið að safna frá fjöldamörg- um bæjum, úr túnum, sem ekki hefur verið sáð i erlendum teg- undum. Eru þau þarna i reitum, einn reitur frá hverjum bæ. Meðal þeirra jurta, sem voru i útrýmingarhættu er islenska Gömlu, islensku túngrösunum er safnaði þessa reiti, en farið var á marga bæi slöastliðið sumar i grasa- leit. Er þvi verki þó hvergi nærri lokiö. henti vel til þilplötugerðar, en að þvi hlýtur að koma, að til sliks iðnaðar verði stofnað hér. Þá má minnast á fáeinar sauðkindur, sem á Korpu eru hýstar. Eru sumar þeirra not- aðar til rannsókna á meltan- leika ýmissa grastegunda, en aðrar eru fluttar upp iEsju með reglulegu millibili i þrjú hólf, sem þar eru i mismunandi hæð. ersiðan athugað, hvaða plöntur þær bita helst og á hvaða tima. Að loknu spjallinu, þökkum við fyrir okkur og höldum til bæjarins.

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.