Tíminn - 26.09.1980, Blaðsíða 7

Tíminn - 26.09.1980, Blaðsíða 7
Föstudagur 26. september 1980 7 Er Jónas Kristjánsson að sækjast eftir stöðu land- búnaðarráðherra? Þessa dagana er á hverjum morgni lesiB i útvarp upp úr for- ustugreinum Dagblaösins, sem annarra fleiri blaöa. Mér hefur einnig verið sýnt Dagblaðiö sið- ustu daga. Fólki er farið að þykja nóg um áróður ritstjóra Dagbl. á islenskan landbúnað, þennan hefðbundna, sem svo er kallaður. Þessi skrif likjast helst leiftursókn eða heiftugu skyndi- áhlaupiá striðsvettvang. Þaö er engu likara en maðurinn hafi fengið einhver övandi lyf til að veröa djarfari og ófyrirleitnari i orustunni. Hvað sem um þenn- an óviðfelldna áróður má segja, heldég endilega aö þarna skjóti Jónas yfir markið: ofstækið er svo vægðarlaust. Ætli þeir tslendingar yrðu ekki i minnihluta sem vildu leggja landbúnað niður meö öllu á Islandi i eitt skipti fyrir öll? Sem betur fer bera Islendingar meira ættjarðareðli i brjósti sinu en svo, þó eitthvað mætti laga og betrumbæta i þessari atvinnugrein, sem og öðrum. Satt aðsegja hélt ég að enginn viti borinn Islendingur vildi leggja mannorð sitt i það aö reka jafnheiftugan atvinnuá- róður mót svo mörgum löndum sinum. Ég held það fari ekki á milli mála að Islendingar eru það viti borið fólk að slikt of- stæki lætur það lönd og leið, hlustarekki á og sér að þarna er úlfaldi gerður úr smáflugu. Þegar aö er gætt er þarna á ferðinni ósanninda- og ofstækis- þvættingur. Annað orð getur varla betur hæft. Svona blaða- mennska hlýtur að teljast meira en litið hæpin, þó ekki sé meira sagt. Eitt litið dæmi út af ofstækis- þvættingi Jónasar Kristjáns- sonar: Hann segir — Ekki borgar sig að flytja inn erlent fóður i mjólkurkúna, hagstæð- ara væri aö flytja inn mjólk er- lendis frá. Þarna sló i baksegl hjá þess- um ofstækismanni. Hann hefur ekkert farið leynt með það aö hann er fylgjandi framleiðslu fugla- og svinakjöts i okkar landi, en aftur á móti á að hætta að framleiða dilka og nautakjöt og yfirleitt leggja niður hinar hefðbundnu framleiöslugreinar i landbúnaði, sem eru þó fram- leiddar að langmestu leyti á islensku fóöri, á þvi sem islensk jörðgefuraf sér. Aftur á móti er svina-og fuglafóður að mestum hluta inn flutt erlendis frá fyrir erlendan gjaldeyri. Það er gjaldeyrir sem Jónas telur vist nóg til af, þvi hann vill láta flytja allar landbúnaðarvörur inn, sem við notum nú af okkar búfénaði. Svo er Guöi fyrir að þakka að við búum i frjósömu land- búnaðarlandi þrátt fyrir þess þungu örlög, isa-ár og eldgos, en hvað er það hjá öllum þeim vanköntum og ég vil segja, hörmungum sem aörar þjóðir mega búa við? Lifsreglur okkar íslendinga standast áreiðanlega saman- burð við flestra annarra, þó eitt- hvað gallaðar séu. Það sem er okkurmikilvægastaf öllu er það að lifa i sátt við allt og alla. tslenska þjóöin hefur engar ill- deilur i huga til annarra lifandi manna: þvert á móti. Hún er reiðubúin til að rétta út hjálpar- hönd, hvenær sem eftir er leitað og leggur örlát fram sinn skerf, þó fámenn sé, oft það vel úti lát- inn að athygli vekur. Rétt er þaö aðþessi þjóö hefur lengst af bú- iðviðþröngan kosti þessu landi. Hörð iifsbarátta hefur stælt kjark, dugnað og áræði þess- arar fámennu þjóðar alla tið. Þvi hefur fólkið verið vinnu- samt, sparsamt, nægjusamt, og ekki boriö raunir sinar á torg út, heldur lifað i sátt og unað vel við sitt. Ég lit þvi þannig á aö þeir menn séu ekki vel séðir sem taka sig út út hópnum og sýna þjóö sinni óvenjulega ofstækis- legan strákshátt, með skefja- lausum illkvittnislegum áróðri mót elsta og viröulegasta at- vinnuvegi þjóöarinnar fyrr og siðar, — reyndar gegn þvi f ólki sem lif sitt á og hefur átt undir afkomu landbúnaðarins frá fyrstu tið. Jónas segir að landbúnaður- inn hafi alla tið veriö„baggi á þjóðinni”. Þetta er ekki svara vert, frekar en önnur vitleysa sem þessi vesalings maður segir. 011 vitum við að ef þetta væri bert gróðurlaust sker væri hér ekki lifvænt og hefði aldrei verið. Það er jarðargróöurinn og fiskurinn i sjónum umhverfis landið sem gerir landið gott og gjöfullt. Hver maður sér að það skýtur skökku við, að eftir meira en ellefu hundruð ára búsetu i þessu landi, stundum erfiða, fyrst og fremst vegna ónógrar ræktunar lands, skuli nú heyr- ast rödd, aö visu hjáróma, um eymd i okkar undirstöðuat- vinnuvegi: nú þegar búið er að leggja ómælda orku hugar og handa i þaö aö byggja upp og rækta sveitir þessa lands, svo þær eru nú fylliiega i fremstu röð á heimsmælikvarða miðað við aðstæður og legu landsins. Vegna þessara stóru fram- kvæmda, sem er okkar dýr- mætasta eign Islendinga, búum við nú viðgóðæri á Islandi, þaö svo að menn eru famir að tala um velmegunarvanda. Hann má aö visu viða finna i vel- megunarþjóðfélagi, t.d. er ofát og offita velmegunarvandamál, ofdrykkja, óæskilegt skemmtanalif og margt fleira. Það er slæmt að menn skuli vera það veikbyggðir að þeir skuli ekki þola góöærið, heldur umsnúast i einhverja áróðurs- villinga og niöurrifsmenn. Við bændur geymum enn i minni herferöina sem á okkur var gerð hérá áéunum. Við vor- um hreinlega áfram piskaöir til að framleiða sem mest. Allar skepnur áttu að skila þeim fyllsta arði sem af þeim var hægt að pina með erlendu fóðri, þegar annað ekki dugði. Menn voru settir i embætti til að flytja okkur boöskapinn og reka okkur áfram. Stjórnmálamenn sumir hverjir sögðu of t stór orð, hrein- lega brigsluðu okkur um ó- dugnaðog hvöttu til meiri fram- leiðslu. Þetta er ekki gleymt þó «kki verði frekar upprifjað hér. Vegna þessa finnst okkur þessum sömu bændum, sem þetta máttu þola, skjóta nokkuð skökku við núna þegar farið er að gera árááir á bændur fyrir offramleiðslu, eöa kannski rétt- ara sagt, of mikinn dugnað. Það þótti þó lengst af dyggð út af fyrir sig á Islandi að taka hvatningarorðum þeirra sem vildu láta vinna vel. Það var lengi metnaður i þvi fólginn að vera afkastamikill og duglegur maður. Slikir menn hafa lengst af veriö eftirsóttir, en nú er öld- in önnur i aðsigi, virðist vera. Það hefur aldrei þótt karlmann- legt að hafa mörg orð um vand- ann, sem að höndum ber, hitt hefur veriö I gildi aö snúast orðalaust við vandanum og vinna á honum bót, af hyggju- viti og ráðdeild. Þetta þrifaráö kann islensk bændastétt og ætlar sér að nota. Þess vegna er hún orðfá um þessar mundir, en litt uppnæm fyrir illkvittnis- blaöri óviturra blaðasnápa. Vegna mikillar verðbólgu verðurokkar framleiðsluverð of hátt fyrir erlendan markaö. Þetta gerir landbúnaöarvörur litt seljanlegar á erlendum mörkuðum nema meö óréttlát- um niðurgreiðslum, óréttlátum vegna þess aö varan fer ekki til þeirra sem svelta og biöa henn- ar. Það væri mannlegt að fram- leiða mat á sanngjörnu veröi i þann stóra kóp. sem hungrið hrjair. Ég segi það satt, aö það fer alltaf illa i mig þegar talað er um offramleiöslu á matvælum, á meðan milljónir manna deyja úr hungri á ári hverju. Allt hjal um vandamál hjá okkur tslendingum er hjóm eitt, samanborið við miklu stærri vanda sem aörir jarðarbúar hafa við að búa. Hreinlega vil ég segja, að ég blygðast min fyrir okkur Islendinga að vera með harmavæl i öllu góðærinu hér. Við vitum það öll að hér er ekki um neinn óviðráðanlegan vanda að eiga. Þetta er innlend vitleysa, sem hægt er að laga hvenær sem allir eru tilbúnir til að leggja sitt að mörkum og hagræða hlutunum á hagstæðan hátt fyrir okkur öi) Við vitum öll að hvergi er betra að lifa i heiminum en á tslandi i dag. Héreru öll skilyrði til að láta sér liða vel viö þau lifsskilyrði sem við eigum. Þeir sem ekki viðurkenna það og heimta meira ættu að leita til annarra og lofa friðsömum tslendingum að lifa i sinu fagra landi i friði óáreitta. Það er öll- um fyrir bestu. Okkur ber öll- um aö standa sameiginlegan vörð um undirstöðu atvinnuvegi okkar gamla og nýja, manndóm okkar og mennt. Ef við getum það þá megum við vera Guði okkar þakklát fyrir aö vera Islendingar. Valgarður L. Jónsson, frá Eystra-Miöfelli. Ólga innan Efnahags- bandalagsins Undanfarnar vikur hafa fregnir borist til okkar að utan, um mikinn vanda, sem steðjar aödönskum bændum, um gjald- þrot meðal þeirra mörgu i hverri viku og taugaveiklun vegna viðhorfa I efnahagsmál- um, þegar bændur eygja engar leiöir tii að leysa þau. Það er af sem áður var þegar markaðsmálin voru i himnaiagi svo aö velgengni virtist alls- staöar blasa við og peninga- flóöiB fór um gjörvallar byggðir, kaup hækkaði og dýrtið óx áþreifanlega. Það var á fyrstu árunum eftir að Danir gengu I Efnahagsbandalagiö. Nú er þaö af sém áður var. Nú eru Danir I vonlausri sam- keppni meö afurðir sinar á al- mennum markaði svo að þeir leitaum langvegu og til annarra heimshluta eftir markaði fyrir framleiðslu sina, jafnvel alla leiö til Suöur-Ameriku. Sérlegir sendimenn fara um löndin leit- andi að smugum þar sem frá- bærar danskar búvörur kunna að finna kaupendur og neyt- endur. Innan Efnahagsbanda- lagsins hafa þeir keppinauta á flestum sviöum og mæta þar niðurboðum, en það er i mót- sögn við allar fyrirætlanir bandalagsþjóðanna. En það eru ekki bara Danir, sem eru i vanda. Bretar hafa sent talsvert magn af lamba- kjöti yfir sundið til Frakklands, en Frakkar afneita nú þvi hátta- lagi. þeir telja franska lamba- kjötsframleiðslu óarðbæra þeg- ar ódýrara kjöt streymir til landsins. Bretar auka sauðfjár- rækt sina og flytja lambakjöt i talsverðum mæli yfir sundið i mikilli óþökk franskra fram- leiðenda sömu vöru. I júni var slátrun hjá Bretum 36% meiri en I fyrra og i júlf 50% meiri. Um það bil sem Efna- hagsbandalagið var stofnað sagði de Gaulle að Frakkar gætu framleitt matvöru, sem nægði öllum þáverandi stofn- endum bandalagsins. Senniiega býður náttúra landsins öll skil- yröi til þess ef nútimatækni væri þar gjörnýtt eins og gerist með þeim þjóöum, sem lengst eru komnar á braut tækninnar. A hinn bóginn kvarta og kveina breskir þegnar yfir inn- streymi ávaxta frá Frakklandi, svo aö þarna eru öldur óánægj- unnar gagnkvæmar. I fyrra geröist úlfúð milli Frakka og Itala út af vinsölu sem Frakkar töldu sér mjög til miska af þvi að Italir hefðu undirboð verðlags svo um munaði. Þar sem verðlagsþróun er hæg vex framleiöslukostnaður ekki að ráði og þær þjóðir, er hafa stöðugt verðlag, geta aö sjálfsögöu selt framleiðsluna lægra veröi en hinar þar sem allt fer ört hækkandi. Miskliðin innan hinna ýmsu þjóða bandalagsins nærist ein- mitt af þessum ástæðum fyrst og fremst en auðvitað hefur veðurfar einnig sitt að segja þegar svo vei árar að offram- leiðsla gerist veruleg miðað við innanlandsþarfir. Opinber að- stoðtil framleiðslunnarhefur og þýðingu en hún er misjöfn frá landi til lands, þvert á móti þvi sem Rómarsamningurinn sem er forsenda bandalagsins geröi ráð fyrir. Danir virðast um þessar mundir veröa harðast úti i sam- keppninni. Um skeið fluttu Dan- ir út grænmeti I miklum mæli meö ágætum hagnaði. Peter Walker landbúnaðarráðherra Englands, hefur nýlega til- kynnt, að auka beri útflutning til Danmerkur á gulrótum, blóm- káli,lauk — og meira að segja á stilton-osti. Þýski markaðurinn, sem á fyrstu árum Efnahagsbanda- lagsins gleypti allt sem Hollendingar og Danir höfðu að selja af matvöru frá vettvangi landbúnaðarins þarf nú miklu minna af þeim afuröum. Opin- ber aðstoö til framleiðslu þeirra vörutegunda innanlands hvetur heimamenn til að auka hið heimaaflaöa og eru ýmis dæmi þess að framleiöendur fái þar talsvert meira fyrir sina vöru en verðá sömu vöru er á markaði i smásölu. Þegar svona gengur innan Gísli Kristjánsson Efnahagsbandalagsins getur þá nokkur hér undrast, að lltill og lélegur markaður er fyrir is- lenskar afurðir sömu tegunda meöal þessara þjóða? Við erum ekki aðilar en ólga meðal umræddra þjóða kemur óbeint okkur viö. Okkar offram- leiðsla — miðaö við innanlands- neyslu — hlitir nákvæmlega sama lögmáli i markaðslegu til- liti.

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.