Tíminn - 26.09.1980, Blaðsíða 20

Tíminn - 26.09.1980, Blaðsíða 20
20 Föstudagur 26. september 1980 Það gaf að Uta fleiri og fegurri flugfarkosti á Reykjavikurflugvelli i gær, en þýsku herfiugvélina. Hér má sjá tvær einkaþotur, og er sú sem stendur fjær farkostur norrænna bankastjóra sem sitja nú fund Norræna fjárfestingabankans. Tlmamynd-GE Farþegum hingaö með farþegaskipum: Fækkaði úr 16.351 í fyrra í 6.325 í ár HEI— í sumar komu hingað til lands 15 skemmtiferðaskip með samtals 6.325 farþega, sem er gifurleg fækkun frá siðasta ári er hingað komu 25 skip með 16.351 farþega. Allt frá árinu 1972 hafa bæði skipakomur og farþegar verið fleiri en i ár, að undanteknu árinu 1974. „Orkukreppan hefur ekki sið- ur komið þarna við sögu en ann- ars staðar. Þvi það að koma hér við i kannski dagstund kostar kannski 2-3 daga aukasiglingu”, sagði Steinn Lárusson hjá Ferðaskrifstoíunni Úrvali, sem tekið hefur á móti sumum þess- ara skipa. Skemmtiferðaskipin koma flest frá einhverjum höfnum NV-Evrópu, Amsterdam, Ham- borg og Bremen eru algengustu hafnirnar. Þaðan sigla þau venjulega um Færeyjar, til Is- lands, siðan norður til Sval- barða og til baka niður eftir ströndum Noregs. Nú taldi Steinn algengt að þau slepptu króknum til tslands. Þá taldi hann og almennt um samdrátt að ræða i skemmtisiglingum,, t.d. væri það orðin alger undan- tekning, að Bandarikjamenn fari með skemmtiferðaskipum til Evrópu. Treval hf. Aralöng reynsla í framleiðslu baðinnrettinga Látið fagmanninn annast innréttingarnar. Nýjar innréttingar í sýningarsal okkar aö Nýbýlavegi 4, Kóp. Komum heim, teiknum og gefum ráöleggingar yöur aö kostnaðarlausu. Hagstæöir greiösluskilmálar. Opið laugardag 13—17, sunnudag 13—18. Námskeið í stillingu hitakerfa HEI — Námskeið i stillingu hita- kerfa, fyrir pipulagningarmenn og aðra aðila sem geta tekið þessa þjónustu að sér verður haldið i húsakynnum Bygginga- þjónustunnar að Hallveigarstig 1 i Reykjavik dagana 20. til 22. október nk. Markmið námskeiðs- ins er að kenna stillingu vatns- hitakerfa og miðla upplýsingum um stýribúnað, mikilvægi hans og stillingar með tilliti til orkusparn- aðar. Námsskráin er i mótun, en einkum verður fjallað um þætti einsog 1) orkuþörf húss, 2) fyrir- komulag og nýtni hitakerfa, 3) stjórntæki i kyndiklefa, stofu og við ofna, 4) hvernig hitakerfi er stillt. Mun mestum tima verða varið i 3. og 4. lið, þ.e. umfjöllun, sýnikennslu og verklegar æfingar varðandi stýritæki, ofnloka og stillingaraðgerðir, sem haldið verður i samvinnu við samtök sveina og meistara i pipuiagn- ingaiðn. Þá hefur Byggingaþjónustan samið við Flugleiðir hf. um svo- kallaðan helgarpakka fyrir þátt- takendur utan af landi, sem er verulegur afsláttur frá venjulegu fargjaldi. Þeir, sem hyggjast taka þátt i námskeiðinu, verða að tilkynna þátttöku fyrir 10. október nk. til Byggingaþjónustunnar, simi 91-29266. Minar hjartans þakkir færi ég börnum minum, tengdabörnum, barnabörnum, ættingjum og vinum nær og fjær sem minntust min á áttræðisafmæli minu 13. september s.l. og gerðu okkur daginn ógleymanlegan. Guð blessi ykkur öll Guðrún Tryggvadóttir Hróarsholti, Flóa. + Bróðir okkar Einar Þorfinnsson Sólheimum 25 lést á Vifilsstaðaspitala þann 4. sept. Útförin hefur farið fram i kyrrþey að ósk hins látna. Þökkum læknum og starfsfólki Vifilsstaðaspitala góða umönnun i veikindum hans. Einnig þökkum við veitta samúð. Karl Þorfinnsson Eva Þorfinnsdóttir Kristin H. Þorfinnsdóttir Faðir minn Friðrik Hannesson frá Sumarliðabæ I Holtum Njálsgötu 60b lést á Landakotsspitala 20. september. Jarðarförin hefur farið fram i kyrrþey að ósk hins látna. Trausti Sig. Friðriksson Móðir okkar Anna Eiriksdóttir Fagurgerði 4, Selfossi sem lést i Landspitalanum mánudaginn 22. sept. s.l. verður jarðsungin frá Selfosskirkju á morgun laugardag 27. sept. kl. 3 siðdegis. / Aldis Bjarnardóttir Anna Guðrún Bjarnardóttir Baldur Bjarnarson Björn Bjarnarson Sturla Bjarnarson Faðir okkar, tengdafaðir, afi og langafi Elis R. Guðjónsson, Garðabraut 13, Akranesi • erandaðist 20. þ.m. verður jarðsunginn frá Akraneskirkju þriðjudaginn 30. sept. kl. 14.15. Blóm og kransar afbeðnir, en þeir sem vilja minnast hins látna er bent á Akranes- kirkju. Ómar Elisson Guörún M. Ellsdóttir Vilborg Ellsdóttir Pétur Elisson Vilhelmlna Elisdóttir Ingvar E l isson Guðbjörg Elisdóttir barnabörn og barnabarnabörn Ingibjörg Þorleifsdóttir Sverrir Jónsson Sigurbjörn Sigurjónsson Guðriður Jónsdóttir Jón B. Sigurösson Birna óskarsdóttir Jón Jónsson Eiginmaður minn, faðir okkar, tengdafaðir og afi Jón Helgason Tryggvagötu 2, Selfossi verður jarðsunginn 27. sept. Athöfnin hefst I Selfosskirkju kl. 13.30. Jarðsett verður á Eyrarbakka. Halldóra Bjarnadóttir BjarniJónsson Erna Kristin Jónsdóttir og barnabörn Guðrún Jóhannsdóttir Bjarnfinnur Hjaltason

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.