Tíminn - 05.10.1980, Blaðsíða 2
Fáeinar laglegar vísur ár ýmsum áttum:
„Logar hússins upsum á
eldur verðbólgunnar”
ótrúlegur er sá sægur af visum,
sem til er, sé eftir þvi grafiö, og
margar hverjar hvergi birtar.
Vafalaust er þaO samt harla
margt sem gleymist svo aO segja
strax og þvi er kastaO af munni
fram, jafnvei ágætustu stökur, en
annaO fer þann veg veraidarinn-
ar, sem til glatkistunnar liggur,
meO þeim, sem ortu, eOa örfáum
mönnum, er kunna aö hafa lært
visurnar.
A6 þessu sinni byrjum viö á
tveimur visum frá þeim árum, er
Bjarni Benediktsson var forsætis-
ráöherra og sat aö sjálfsögöu i
stjórnarráöshúsinu.
Fyrri vísan minnir á, aö verö-
bólgan er vel til aldurs komin i
landi okkar. Gunnlaugur Péturs-
son beiö eftir strætisvagni á
Lækjartorgi, beint fyrir neöan
stjórnarráöshúsiö, en skammt
undan var Verzlunarbankinn,
sem auglýsti tilveru sina meö
kyndli, sem kviknaöi á meö stuttu
millibili. Þá fæddist í huga hans
þessi visa:
Bjarni nýtur birtu frá
banka kaupmennskunnar.
Logar hússins upsum á
eldur veröbólgunnar.
Bjarni haföi veriö ritstjóri
Morgunblaösins, og þaö orö lék á,
aö hann skrifaöi enn Reykja-
vlkurbréf þess, þótt hann væri
oröinn forsætisráöherra. Þess
vegna jók Gunnlaugur viö ann-
arri visu:
Fáir betur iögöu liO,
loks var Bjarna gefin
glæta rétt aO rita viö
Reykjavlkurbréfin.
Fyrir nokkru birtist i Visi les-
endabréf frá húsmóöur, þar sem
harölega var fundiö aö þvi, aö
blöö sendu ljósmyndara sína á
vettvang á sólskinsdögum og
birtu siöan myndir af stúlkum
meö ber brjóst, og fylgdi meö sú
ásökun, aö þarna væri veriö „aö
höföa til lægstu hvata”.
Þættinum hafa borizt kviöling-
ar, sem lesendabréf þetta hefur
fætt af sér, og nefnir höfundur þá
„visur um hinn óttalega leyndar-
dóm”:
Glöp þaö voru guOi hjá
og gáleysi af aimættinum
aö fara aö bæta brjóstum á
bringuna á kvenfólkinu.
Er sú hönnun yfriö klúr
og engum bregöur viö aö frétta,
aö iægstu hvatir losni úr
iæöingi, sé horft á þetta.
Brjóst kvenna eru þó ekki af
dagskrá, þvi aö enn hefur borizt
ein visa, samt af ööru tilefni. I
Morgunblaöinu birtist einn dag-
inn frétt um nýjung viö lækningu
brjóstakrabba. Nú er krabba-
mein sjúkdómur, sem ekki er haf-
andi i flimtingum. En einum les-
anda Morgunblaösins þóttu
læknisráöin nokkuö hjákátleg
eins og þau voru sett fram, og
þess vegna varö honum aö gera
þessa visu:
Þegar kvenna bllöur blómi
brjóstaæxlin vondu fær,
meinabót aö Moggans dómi
myndi vera aö sæöa þær.
Jóhannes Jónasson á Skjögra-
stööum i Skógum var barnmarg-
ur maöur og ekki fjáöur. Einu
sinni barst honum reikningur frá
Kaupfélagi Héraösbúa, er laut
stjórn Egilsstaöafeðga, Jóns
Bergssonar og Þorsteins, og var
hann stilaöur á Sigurö Jóhannes-
son á Skjögrastööum’. Jóhannes
geröi hreint fyrir sinum dyrum
með þessum visum:
Afkoma min er ei duld.
eg er skuldum klæddur,
en Siggi minn er sizt i skuld,
þvi sá er ekki fæddur.
Ef aö bæta á nú viö
ómegöarinnar þunga,
kysi ég helzt, aö kvenfólkiö
kenndi mér þá unga.
Eftir Jóhannes er einnig visa,
er hann orti um bæ nokkurn á
Suðurlandi:
Siöi hérna sizt ég spyr um,
sannleiksgögnin aö mér
streyma:
Þar sem grasiö gær aö dyrum,
gestrisnin á ekki heima.
Oftast eru vigaferli um allar
jaröir, og hefur svo löngum veriö.
Enn I dag keppast stórveldi viö aö
vigbúast sem mest þau mega og
þröngva öörum til þess aö gera
sllkt hiö sama. Ein hin helzta
„hjálp”, sem þau veita örbirgum
þjóöum, er gnægö drápstóla,
meira aö segja i löndum, þar sem
fólkiö hrynur niöur úr hungri og
vesöld, og hver sá einræöisherra,
sem hallar sér nógu rækilega I
fang stórveldis, á visan stuöning
þess, hversu grimmur og spilltur
sem hann er. Þeir, sem i oröi boöa
frelsi, lýöræöi og mannréttindi,
eru ekkert aö horfa i þaö, þótt
stoöir þeirra og styttur i öörum
löndum fótumtroði allt slikt dag
hvern sem guö gefur.
Hér er enn i fullu gildi visan,
sem Arnór Sigmundsson Þingey-
ingur orti á heimsstyrjaldarárun-
um en þó jafnfjarlægt nú sem þá,
aö von hans rætist:
Sé ég i anda lýö og lönd
ieggja brand til hliOar,
þrældómsbandi af hug og hönd
hrinda i landi friOar.
Vísa eftir Þuriöi Bjarnadóttur
frá Hellnaseli er rödd af landi
friöarins, þar sem fólk getur notiö
þess aö lifa:
Meöan ljóöin svala sál,
sjafnar glóDir funa,
kveöur óöur uppheimsmál
inn I hljóöan muna.
Af göfugum rótum er líka visa
eftir Alfreö Asmundsson frá Hllö:
Okkar dýra móöurmái,
meitlaö i fögrum óöi,
vekur unaö innst i sái,
eld i hjartabióöi.
Siguröur Sigurösson frá Arnar-
holti eignaöist gamalt hús og lik-
lega nokkuö hrörlegt. Þegar hann
haföi flutt búslóö sina i þaö, kvaö
hann um nýju húsakynnin:
Lágt er þetta iitla kot,
léleg þykir stofan.
HéOan af má þó hafa not
af himninum fyrir ofan.
Þessari slöustu visu er rænt úr
ööru bindi af Visnasafni Siguröar
frá Haukagili, og sllkt hiö sama
er aö segja um þá næstu. Hún er
eftir Kristján frá Djúpalæk, og
eru tildrög hennar þau, aö séra
Helgi Sveinsson i Hverageröi
bauö Kristjáni meö sér út i Hllö-
ardalsskóla I ölfusi, þar sem
prestur átti erindi aö reka viö for-
stööukonuna. Varö þeim skraf-
drjúgt, henni og presti, og notaöi
Kristján timann á meöan hann
beiö til þess aö setja saman vísu
um samfundi þeirra eins og hann
hugsaöi sér þá:
Lengi kyssti, kennd viö fjör,
kempan listum búna
allt frá rist og upp á vör
aöventistafrúna.
Hjörtur Kristmundsson, fyrr-
verandi skólastjóri, kvaö um
mann, sem lagöi sig mjög fram
um aö vinna ástir stúlku einnar,
en bar minna úr býtum en hann
heföi kosiö:
Oft er brautin ásta hál,
erfiö þraut og hildi.
Margur hnaut um meyjartál.
minna hlaut en viidi.
En ein báran er ekki stök I
þessu mannlifi, og stundum eru
stúlkurnar allt of aöfaralitlar viö
aö egna snörur sinar. Um þær,
sem létu tækifærin ganga sér úr
greipum vegna hlédrægni, orti
Bjarni Halldórsson I Uppsölum:
Arin streyma ört þér hjá,
æskan dreymin liöur.
Víöa feimin faldagná
föinar heima og biöur.
Og þetta viröist ekki hafa verið
nein ný saga, þegar Bjarni geröi
vlsu sina. Löngu áöur haföi Sig-
uröur Jónsson frá Katadal, sem
þekktur er af Natansmálum,
meöiö á þessa leiö:
Innra lengi ungri mær
ama þrengir dróminn.
Jurt, sem enga frjóvgun fær,
fölnuð hengir blómin.
Meira veröur ekki á borö boriö i
dag, enda eitt af boöoröum
heilsufræöinnar, aö éta ekki yfir
sig.
JH.
Höfum fengið enn eina sendingu af sænsku
SKEPPSHULT gæðahjólunum frá:
RLBERT
VönduO og sterk hjól kjörin fyrir Islenskar aöstæöur.
HAGVtS P.O. Box 85, Garðabæ
simi 4 10 68 kl. 9-12 og 5-7
Sendum I póstkröfu hvert á land sem er
Hafnarfjörður —
^ Raðhúsalóðir
Bæjarsjóður Hafnarfjarðar auglýsir laus-
ar til umsóknar nokkrar raðhúsalóðir við
Túnhvamm og Klausturhvamm.
Lóðirnar eru tilbúnar til byggingar. Um-
sóknareyðublöð liggja frammi á skrifstofu
Bæjarverkfræðings Strandgötu 6.
Umsóknarfrestur er til 10. okt. n.k. Eldri
umsóknir þarf að endurnýja.
Bæjarstjóri
:■! 111'
Augi i Tíma Tíni Simi é fck ■ fýsið d r num tinn 16-300
[fíti ▼ Nei takk ég er á bíl p“
-L< r
Brynningartæki
í FJÓS OG
HESTHÚS
EMAILERUÐ
FYRIRLIGGJANDI
G/obusi
LÁGMÚLI SÍMI 81555
Við þökkum
þér innilega fyrir
hugulsemina að
stöðva vió gang-
brautina
UMFERÐAR
RÁÐ