Tíminn - 05.10.1980, Blaðsíða 18

Tíminn - 05.10.1980, Blaðsíða 18
26 Sunnudagur 5. október 1980. 13 ára gömul hneykslissaga um hrakför bandarísks njósnaskips við Gaza Milljöröum og aftur milljörö- um er ausiö I herbúnaö, og hers- höföingjarnir spranga um bringubreiöir, skreyttir eins og jólatré, og njóta valds og orö- stirs. 1 stjórnarskrifstofunum sitja þeir hinir, sem eiga aö vera pólitiskt forsjá þjóöanna, daglega rómaöir I flestum fjöl- miölum. En ekki er allt, sem sýnist. Glappaskotin eru fleiri en uppi er látiö, rangar ákvarö- anir eru teknar viö mikla áhættu og margir steypugall- arnir i kerfinu. Allt er þetta, þegar til kastanna kemur, mis- vitrir menn, hvaö sem liöur orö- um og titlum, og kerfiö brigöult. Bandarlskur liösforingi, Jam- es M. Ennes, hefur nýlega svipt hjúpnum af hroöalegum mis- tökum bandariskra stjórnar- valda og heryfirvalda í sex- daga-striöinu, þegar banda- riska njósnaskipinu Liberty var sökkt rétt undan strönd Gaza. Israelsmenn vörpuöu á þaö sprengjum og skutu á þaö úr tundurskeytabátum og drápu 34 af áhöfninni og særöu 171, en aö- eins 81 slapp ósár aö kalla. Bandarikjastjórn lét sér nægja afsökun Israelsmanna, sem sögöust hafa ráöist á skipiö sök- um mistaka, og gaf af sinni hálfu „skýringu”, sem var i meira lagi endaslepp og flikaöi ekki sannleikanum úr hófi. James M. Ennes var sjálfur á skipinu, er þvi var grandaö, og særöistmjög iila. Eftir á furöaöi hann sig á þvi, hve fáorö og yfir- boröskennd lýsing sú, sem skip- stjórinn haföi látiö i té, reyndist vera. Og auk þess röng, þótt fá orö væri. Margir blaöamenn höföu lika veriö tortryggnir á sannleiksgildi yfirlýsingar stjórnarvalda. En þaö var eins ogaöhöggva I klett aö leita eftir frekari vitneskju, og þeim tókst aldrei aö grafa upp, hvaö raun- verulega haföi gerst. Rettar- rannsókn, sem látin var fara fram, varaöeins einn hluti félu- leiksins. James M. Ennes sannfæröist um, aö almenningur heföi veriö blekktur, og þar kom, aö hann fór aö grafast fyrir um, hvaö gersthaföi. Þaö tók hann tólf ár. Þá gat hann dregiö fram í dags- ljósiö, aö þennan atburö var aö rekja til furöulegra glappa- skota, og sjálfur forseti Banda- rikjanna á þeim tima, Lyndon B. Johnson, lét hjúpa máliö lygavef og kistuleggja þaö þannig. Bandarikjastjórn hefur aldrei látið uppi, til hvers skip eins og Liberty eru. Þau eru aö jafnaöi rannsóknarskip til tækniþjón- ustu I þágu flotans og heyra til deild, sem á a ö fylgja st meö á ó- róasvæöum i veröldinni. Blaöamenn hafa haldiö þvi fram, aö Liberty væri njósna- skip. Upphaflega var þaö eitt margra slikra skipa, sem smíö- uö voru i skyndi til vöru- flutninga I heimsstyrjöldinni siöari. En þvi var fengiö nýtt verkefni á sjöunda áratugnum og þá búiö dularfullum raf- eindatækjum. Vopnabúnaöur var harla litill — aöeins fjórar hriöskotabyssur. Þegar blikur dró á loft fyrir botni Miöjarðarhafs sumariö 1967, ákvaö varnarmálaráöu- neytiö i Washington aö senda þangaö „tæknivætt rannsóknar- skip”, sem átti aö sigla meö- fram Gazaströndinni, nokkrar milur undan landi. Liberty var valið til þessa verkefnis. Ahöfn- in fagnaöi þessu ekki þvi aö hana grunaði, aö þetta væri ekki hættulaust. En hún var sefuö meö þvi, aö sjötti flotinn væri skammt undan, og flugvélar myndukoma skipinu til verndar innan tiu minútna, ef einhver geröi sig likiegan til þess aö bekkjast til við þaö. Kröfu um herskipafylgd var vlsað á bug, þar eö sliks væri engin þörf. Aö morgni, hins 8. dags júni- mánaðar 1967 var Liberty kom- iö á þær slóöir, þar sem þvi haföi veriö skipaö aö sigla meö fimm hnúta hraða svo nærri landi, aö turnspirurnar i E1 Arish sæjust af skipsfjöl. Bandariski fáninn var dreginn aö húni, svo að skipiö drægist ekki inn i hernaðarsviptingar vegna mistaka. Allt virtist þetta þaulhugsaö. Innan skamms sást til feröa flugvéla af ólikum geröum, sem flugu i átt aö skipinu, likt og veriö væri aö forvitnast um þaö, og loks kom ein þeirra svo nærri, aö sjá mátti á henni Daviðsstjömu Israelsmanna. Flugvélamar komu hvaö eftir annaö næstu klukkustundir , en hurfu jafnharðan burt. Skipstjórinn lét i ljós ánægju Minnstu munaði, að beitt yrði kjarnorkuvopnum, þegar Israelsmenn hugðust tortíma skipinu og öllum, sem á því voru Liberty, sem kallaö var „tæknivætt rannsóknarskip I þágu flotans”, en var f rauninni njósnaskip. Eftir árásina var matsalur skipsins fullur af dauöum mönnum og helsæröum. meöþá athygli, sem skipiö haföi vakiö, þvi aö nú hlaut aö vera kunnugt, hverrar þjóöar þaö var. Mörgum úr áhöfninni var leyft aö leggjast i sólbaö á fram- þiljum. Arásin kom gersamlega á ó- vænt. Hún hófst meö þvi, aö þota lét eldflaugum rigna yfir skipiö. Siöan var varpaö bensin- hlaupssprengjum og loks réöust tundurskeytabátar á þaö. Tundurskeyti tætti stórt gat á miöja siöu þess og drap tuttugu og fimm menn á svipstundu. Sjórinn streymdi inn i salinn, þar sem rafeindabúnaöurinn var. Þessu næst hófst vélbyssu- skothriö af tundurskeytabátum, og var þeirri hriö beint aö skip- inu nálægt vatnsskorpunni, en klykkt út með þvi að tæta ' sundur björgunarbátana, sem áhöfnin reyndi aö koma á sjó- inn. Þá haföi áraáin staöiö i tvær klukkustundir. Rúmum klukku- tima siöar kom einn tundur- skeytabátanna til báka og bauð hjálp. Skipstjórinn hafnaöi þvi boöi i reiöi s'inni. Komiö hefur upp úr kafinu, aö varnarmálaráöuneytiö haföi tekiöákvaröanirsinar til nýrrar ihugunar daginn áöur en ráöist var á skipiö og afráöiö aö kalia þaö burt frá strönd Gaza. En þessi ákvöröun haföi ekki notiö forgangsréttar viö skeyta- sendingar, þótt svo ætti aö vera, og hafnaö meðal aragrúa litils veröra skevta, sem biöu af- James M. Ennes, sem Ijóstraöi upp hneykslissögunni eftir tólf ára rannsókn.

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.