Tíminn - 05.10.1980, Blaðsíða 27
• 1 II I
Sunnudagur 5. október 1980.
35
Doha, moskan mikla er miödepill andlegs lífs I höfuöstaönum, þrátt
fyrir alla nýbreytni.
þar ekki sist til, hversu dýrt er
aö afla vatns handa borgum og
bæjum og þorpum og iöjuver-
um, auk þess sem þarf til þess
að vökva gróöurlendur, akra og
aldingarða.
Allt byggist þetta á oliunni og
þvi framtaki aö sækja arðinn af
þeirri orkulind I greipar olíu-
félaganna. Og allt til samans
hefur þetta kostað órafé. En
þrátt fyrir þær stökkbreytingar,
er orðið hafa, er furða, hversu
litlu QatarbUar hafa glatað af
sál sinni. Það eiga þeir kannski
fyrst og fremst þvi að þakka,
hversu djúpum rótum þeir
standa i trú sinni á Allah og spá-
manninn. Þeir hafa gengið inn i
tækniþjóðfélagið án þess að
rótarslita sig.
Þaðer einnig þessi sterka trú,
sem fær þvi áorkað, að Qatar-
búar hugsa ekki einvörðungu
um gróða sinn og undur
tækninnar, sem borist hefur
þeim upp f hendur, heldur hafa
fúslega látið fátækum þjóðum i
té hjálp sem verulegu nemur. 1
þvi efni hafa þeir engra eftir-
öll heilbrigöisþjónusta I Qatar er ókeypis.
bátar verið seinni árin, svo fjár- kvæmdir eru, er þeir hafa sjálf-
frekar sem allar þær stórfram- ir á prjónunum heima fyrir.
er, hvaða tegundir og afbrigði
gefa góða uppskeru og hversu
haga ber ræktuninni, og þaöan
er siðan dreift vitneskju sem á
að koma almenningi að haldi.
Þetta hefur þegar borið þann
árangur að viða um landið eru
risnir sveitabæir.
Enn er einn sá þáttur, sem
ekki má vanrækja. Fyrir gýg
væri unnið að meira eða minna
leyti ef heilsufar fólks væri ekki
viðhlitandi. Fjárhagur almenn-
ings i landinu er nú orðinn sam-
bærilegur við það sem gerist i
flestum iðnaðarlöndum, og þess
vegna fá allir orðið nægju sina
af mat. Vannæring er úr sög-
unni. En eigi að siður er við
sjúkdóma að striða. I því striði
er Qatarbúum ekki lengur neitt
að vanbúnaði. Reist hafa verið
sjúkrahús sem eru tækjum búin
eins og best gerist og þar er á að
skipa starfsliði með fulla
menntun. Þar á meðal eru bæði
innlendir læknar og útlendir
sérfræðingar, sem fylla skörðin,
uns heimamenn eru i stakk bún-
ir til þess að taka þar við. Og
enrf er verið að byggja sjúkra-
hús, þar sem niu hundruð sjúk-
lingar til viðbótar eiga að rúm-
ast.
öll heilbrigðisþjónusta
Qatar er ókeypis og nú
siðustu árin er lagt hið mesta
kapp á að koma i veg fyrir sjúk-
dóma. öll börn eru bólusett
gegn lömunarveiki og fleiri
sjúkdómum, leitað er sjúkdóma
sem enn dyljast, og stund lögö á
aö dreifameðal almennings vit-
neskju, sem talin er stuðla að
betra heilsufari.
Æskulýðsráð sem rikiserfing-
inn i Qatar, Hamad bin Khalifa
al-Thani, stjórnar, skipuleggur
iþróttamál landsins og stuðlar
eftir mætti að þvi, að fólk reyni
á sig llkamlega, einkum þó að
unga fólkið vanræki ekki
áreynslu. Margir af ungu kyn-
slóðinni munu ekki vinna
erfiðisstörf að lokinni skóla-
göngu, og þeim mun brýnna
þykir, að þeir stæli likama sinn.
Húsakynni i Qatar voru ekki
upp á marga fiskana og þess
vegna hefur orðið að byggja
mikið.Viðþað hefur verið lagti
gifurlegan kostnað og kemur
Bílbeltin
hafa bjargað
RÁÐ A
getur skapað margskonar erfiðleika,
auk þess að kosta peninga.
Með áratuga reynslu í vöruflutningum,
tryggir Skipadeild Sambandsins öruggt
samband viðskiptaaðila landa í milli.
Fastar áætlunarferðir til helstu viðskiptahafna,
beggja vegna Atlantshafsins.
Alhliða flutningaþjónusta á stykkjavöru,
gámum og þungavöru.
• Frystigámar
• Tankgámar
• Tilboð
• Heimsendingar
- eða aðrar sérþarfir
Hafðu samband og við veitum fúslega
nánari upplýsingar.
SKIPADEILD SAMBANDSINS
Sambandshúsinu
Pósth. 180 121 Reykjavík
Sími 28200 Telex 2101