Tíminn - 05.10.1980, Blaðsíða 12

Tíminn - 05.10.1980, Blaðsíða 12
12 Sunnudagur 5. október 1980. Oddný Guðmundsdóttir: Líkingamál í nútímabókmenntum (Brot úr ritgerð) Er hamingjan ránfugl eð óargadýr? Að minnsta kosti lendir fólk „í klónum á ham- ingjunni" á siðum dagblaðanna. En það er lika svo margt skrítið sem gerist. Fyrir nokkru dó kona „\ kjölfar þungunar". Sauðmeinlausir sálfræðingar héldu ,,þrumugóðan fund". Aft- ur á móti eru tröllin farin að tista, og nefnist það hljóð „tröllatíst". Og innan fárra vikna verðum við drifin á „vigstöðvar jólaannríkis- ins". Oddný Guðmundsdóttir skrifar um þessi fyrirbæri og aðrar undarlegar samiíkingar, „töfrasprautu" Tímans, „skoruna milli fram- handleggs og upphandleggs", „koppa geðvonskunnar" og fleira kyndugt. Nýstárleg samliking þótti það á sinum tima, þegar rithöfundur komst svo að orði um sólargeisla að hann hafi brotist gegnum glugga eins og konubrjóst. Og entist það manninum lengi til frægðar. Slðan hefur likingamálið þró- ast, svo að menn átta sig oft ekki á þvi að hlutirnir geti með nokkru móti verið „eins og” það, sem þeim er likt við. Leiðbeiningar um likingamál er að finna i ný- legri kennslubók, og eru þar tekin dæmi, nemendum til eftirbreytni: „Augu hans hreyfðust fram og aftur við lesturinn, eins og vagn á ritvél”. Vonandi hefur maðurinn þó ekki rennt til augunum með þessu hvimleiða urgi og sargi sem fylg- ir vélritun. Varasamt er lika að ráða mönnum til að sniðganga þær samlikingar, sem fastar eru orðnar i málinu, en freista þess að vera frumlegir sjálfir. Hér er dæmi um einkar frum- legt likingamál: ,, — hreyfðist sjórinn litillega, og öldurnar lögðust upp að ströndinni með lötu holhljóði, sem öðru hverju breyttist i æsandi gredduhljóð”, segir rithöfundur nokkur. önnur skáld hafa heyrt i ölduföllunum andvörp, stunur, ekka og siðast en ekki sist, hrynjandi, þvi að þau eru háttbundin. En nútimahöf- þess: að Mnn hefur réj^nst vel á, íslandi #Er sérstaklega rúmgóður §Er hár undir lægsta púnkt §Er fráhær i snjó og lausamöl §Er lipur og sparneytinn §Er á sérstaklega góðu verði ÉF'r á ótnilpp’fl P’óðum PTeiðslukiörum TRABANT/WARTBURG UMBOÐIÐ Simor 00560-07710 Vonarlondi v/Sogoveg H : undur hevrir i þeim „greddu- hljóð”. Og islenskan er einu ný- yrði auðugri. Þannig kemst P.G. að orði i smásögu: „Flugvél potaðist upp loftið eins og fingur Guðs eða pulsa með öllu”. Blaðsöludrengur sem hleypur yfir torg, var „eins og dægurlagasöngvari sem er ný- búinn að gefa út fyrstu mjó- skifuna sina og kaupa tisku- klæðnað fyrir mánaðarhýru mömmu sinnar”. Hvernig getur litill strákur sem hleypur snöggvast framhjá með blaðastranga undir hendinni, ver- ið „eins og” allt þetta? Minnt raunverulega á allt þetta! Sami maður sniðgengur lika al- geng orð og hentug: „ — hjó með jarka vinstri handar i skoruna milli framhaldleggs og upphand- leggs.” Margir kunna sjálfsagt betur við að segja olnbogabót en „skoran milli framhandleggs og upphandleggs”. En svona breytingar kallast „þróun máls- ins”. „Honum datt i hug, að hann væri gamall erfðafjandi sem styddist fram á sverð sitt i pásu”, segir I.G.Þ. Slettiorðið pása sem blaðamenn hafa verið iðnir við að troða inn i málið, fer ekki vel við fornlega samlikingu um einvigi. En þannig er oft hrönglað saman ósamstæðum. „Nú er komin nótt og döggin komin á stjá”, segir H.G. Skáld hafa séð döggina glitra, hún likt- ist tárum, silfri, voð, perlum eða hrimguðum feldi, eftir þvi, hvernig veðrið var. En nútima- skáldið sér hana rölta um allt. Hrafnsegir að Ingibjörg Haralds- dóttir hafi árum saman hellt yfir hann úr koppum geðvonskunnar út af kvikmyndum hans. Aður var það orðað svo að hella úr skálum reiðinnar. Nýtt likingamál ryður sér til rúms samkvæmt nýjum málsmekk. Auðvitað má vel bregða fyrir sig til gamans orða- lagi eins og þessu. En jafnframt er þetta ágætt dæmi um stökk- breytingar málsins: Skálar reiðinnar verða að koppum geð- vonskunnar. Astaljóð hafa jafnan verið auðug af likingum. Draumadisin hafði augu eins og stjörnur og kinnar eins og rósir. Nútima- maðurinn á lika sina draumadis og sitt likingamál: „Þú ert eins og gaffall. Þú ert eins og skeið Þú ert eins og servietta, þegar þú ert reið”. Þannig yrkir ungt skáld, sem talað var viö i útvarpsþætti. Man- söngur heitir þetta: „Þegar þú geispar i sólinni, glóa bláhvitir endajaxlarnir eins og gimsteinar tveir”. Tannlæknar hljóta að hafa hlustað hugfangnir á þetta. Ef sjúklingarnir gætu gapað svo gleitt að vegfarendur sæju enda- jaxlana langar leiðir, yrði tann- læknum hægt um vik. Glöggar voru mannlýsingar Is- lendingasagna. En nú eru svo- kallaðar „margslungnar” mann- lýsingar mikils metnar. Þessi er úr skáldsögu eftir Thór Vil- hjálmsson: „Hann var með hátt enni, og augnasvipurinn þannig, likt og Isköldum, ósýnilegum baugfingrum væri þrýst á enniö rétt fyrir ofan augabrýnnar og mættust yfir nefinu”. Stefán Júliusson likir elskend- unum i sögu sinni, „Arna Birt- ingi” við tvær brauðsamlokur með sultu á milli. En þegar hjónaleysin eru i bólinu, ham- ingjusöm yfir máta, minna atlot þeirra höfundinn á kyrkislöngur. (Eins og það hlýtur nú að vera notalegt að lenda i faðmlögum við kyrkislöngu!) Annars er þetta hugsjónasaga. Söguhetjan nær þvi háleita takmarki aö reka sjoppu með ágóöa, i samvinnu við „rósina rjóðu”. Skirskotun er mikið tiskuorð i bókmenntum. „Augun ljómuðu af skirskotun”, segir I smásögu sem

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.