Fréttablaðið - 17.06.2007, Side 4
Lögreglan í
Borgarnesi stöðvaði ökumann
fyrir að aka undir áhrifum
fíkniefna á sjötta tímanum í
gærmorgun. Maðurinn reyndist
hafa tekið kókaín, amfetamín og
neytt kannabisefna.
Lögreglan stöðvaði einnig
sextán ökumenn fyrir of hraðan
akstur frá miðnætti á föstudags-
nótt fram á seinni part dags í gær.
Sá sem hraðast ók var á 139
kílómetra hraða á þjóðveginum
og þarf að greiða 90 þúsund
krónur í sekt. Aðrir ökumenn
þurfa einnig að greiða háar sektir,
enda hafa sektarupphæðir
hækkað verulega nýverið.
Ökumaður á
fíkniefnakokteil
Alls hafa 468 verið frels-
aðir úr nauðungarvinnu við
brennsluofnana og úr ýmsum
öðrum ólöglegum störfum undan-
farinn mánuð í Kína eftir að hafa
verið sveltir, barðir og þvingaðir
til að vinna í fjórtán klukkustund-
ir eða meira á hverjum degi að því
er ríkisrekin kínversk fréttastofa
greindi frá á föstudaginn.
Tilkynningin kom skömmu eftir
að forseti Kína, Hu Jintao, og fleiri
háttsettir leiðtogar fyrirskipuðu
rannsókn eftir að sívaxandi fjölda
skýrslna um útbreidda misnotkun
á vinnuafli í múrsteinaverksmiðj-
um í sveitahéruðum Kína höfðu
borist. Það að æðstu leiðtogar beiti
sér með þessum hætti er talið vera
til marks um áhyggjur innan
Kommúnistaflokksins yfir því að
svona mál geti dregið úr trausti
almennings á stjórn kommúnista.
Þrátt fyrir að núverandi stjórn-
völd hafi sett í forgang að bæta
kjör þeirra hundruða milljóna
verkamanna sem vinna í Kína er
margs konar misnotkun á þeim og
sinnuleysi stjórnvalda þar um þó
enn algengt.
Kveikjan að þessu máli, sem er
eitt helsta hitamálið í kínverskum
fjölmiðlum þessa dagana, var opið
bréf sem 400 feður í héraðinu
Henan birtu á netinu þar sem þeir
báðu um hjálp í leit sinni að sonum
sínum sem þeir töldu að höfðu
verið seldir til að þræla við
brennsluofnana í verksmiðjunum.
Í kjölfarið tóku fjölmiðlar hver
af öðrum við sér og tóku að rann-
saka málið. Meðal þess sem komið
hefur fram eru dæmi um að átta
ára börn hafi verið lokkuð með
fagurgala til að vinna í verksmiðj-
unum eða þeim hafi hreinlega
verið rænt.
Lögreglan leitar að verkstjóra í
einni verksmiðjunni sem er grun-
aður um að hafa keypt fólk af
þrælasölum og neytt það til að
vinna mánuðum saman, án þess að
fá greitt fyrir vinnu sína eða nægi-
legt að borða.
Opinber rannsókn á
þrælahaldi í Kína
Kínversk stjórnvöld hafa fyrirskipað rannsókn á misnotkun á verkafólki sem vinnur
við brennsluofna í múrsteinaverksmiðum í Kína. Kínverskir fjölmiðlar hafa birt margar
skýrslur um verkafólk sem hefur verið þvingað til að vinna við skelfilegar aðstæður.
Metfjöldi kandidata
var útskrifaður frá Háskóla
Íslands við hátíðlega athöfn í gær.
Alls voru 1.056 brautskráðir, 695
útskrifuðust með BS- eða BA-
gráðu og 369 með gráðu á meist-
arastigi, en átta útskrifuðust með
tvær gráður.
Kristín Ingólfsdóttir háskóla-
rektor lagði áherslu á sterka stöðu
HÍ í ræðu sinni við brautskráning-
una. Hún minnti á að fyrir ári hafi
skólinn sett sér það langtíma-
markmið að komast í hóp fremstu
menntastofnana heims. Sú mark-
miðssetning og vinna sem henni
fylgdi hafi leitt til þess að sam-
starf skólans við stjórnvöld,
atvinnulífið og við háskóla í
fremstu röð hafi færst í nýtt horf.
„Í samvinnu við Kennaraháskól-
ann er háskólinn að vinna að
stefnumótun í fjarkennslu sem
gefur fólki hvarvetna greiðan
aðgang að menntun á ýmsum
fræðasviðum þannig að búseta,
vinna, fötlun eða aðrar orsakir
hamli ekki háskólanámi. Samein-
aður háskóli mun vinna að þessu í
samstarfi við Fræðasetur Háskóla
Íslands sem byggð hafa verið upp
víða um land,“ sagði Kristín.
Í gær brautskráðust í fyrsta
skipti nemendur í meistaranámi í
verkefnisstjórnun frá verkfræði-
deild HÍ.
Aldrei hafa fleiri verið brautskráðir frá HÍ
Kennarháskóli Íslands
útskrifaði 476 kandídata í gær.
Athöfnin fór fram í Laugardals-
höll.
Í ræðu rektors kom fram að
meira en helmingur nemenda
kennaraháskólans stundar námið
sem fjarnám og búa þeir nemend-
ur um allt land. Einnig búa margir
nemendur skólans erlendis. Rektor
sagði þessa þróun hafa gjörbreytt
ástandi í skólum á landsbyggðinni
þar sem árum og áratugum saman
hafi sárlega vantað fagmenntuða
kennara.
Kennaramenntun er fjölmenn-
asta námsbraut á háskólastigi hér-
lendis og kennarastéttin er stærsta
fagstétt á Íslandi.
Útskrifaðir voru 409 nemendur
úr grunnnámi og 67 nemendur úr
framhaldsnámi þar af fimm með
meistaragráðu.
Grunnskólakennarakandídat-
arnir Edda Rún Knútsdóttir og
Hanna Guðný Ottósdóttir hlutu
viðurkenningu fyrir lokaverkefni
sitt „Ljáðu mér eyra - Hvað reyn-
ist pólskum börnum erfiðast að
læra í íslensku?“
Helmingur
nema í fjarnámi
Frumrannsóknir
vegna mats á umhverfisáhrifum
háspennulínulagna um vatns-
verndarsvæði í Heiðmörk benda
til að af þeim sé talsverð sink-
mengun.
Sinkið er ekki talið ná ofan í
vatnsbólið í Heiðmörk, en frekari
rannsóknir hafa þó verið boðaðar.
Þetta kom fram í svörum
meirihluta umhverfisráðs
Reykjavíkur síðastliðinn mánu-
dag. Tilefnið var tillaga fulltrúa
Frjálslynda flokksins um að
jarðvegssýni yrðu tekin við
háspennumöstur á Reykjavíkur-
svæðinu.
Sinkmengun
við möstrin