Fréttablaðið - 17.06.2007, Side 26

Fréttablaðið - 17.06.2007, Side 26
• Orkuveita Reykjavíkur rekur stærstu jarðvarmaveitu í heimi. www.or.is ÍS LE N SK A /S IA .I S /H SK 3 80 92 0 6/ 07 Rafvirkjar óskast Upplýsingar og umsjón með úrvinnslu umsókna hefur Sólrún Kristjánsdóttir (solrun.kristjansdottir@or.is) hjá Orkuveitu Reykjavíkur. Umsóknarfrestur er til og með 1. júlí 2007. Umsækjendur eru vinsamlega beðnir að sækja um störfin á heimasíðu Orkuveitu Reykjavíkur: www.or.is og senda jafnframt ferilskrá. Farið er með allar umsóknir sem trúnaðarmál. Starfs- og ábyrgðarsvið Meginverkefni Framkvæmdadeildar eru viðbrögð við bilunum, ýmis endur- nýjunarverk auk smærri nýlagnaverkefna í kerfum Orkuveitunnar. Um er að ræða 2 – 3 störf við rafdreifi- kerfi OR. Ef þú ert nákvæmur/nákvæm í vinnubrögðum, þá átt þú erindi við okkur. Orkuveitan mun sjá um nauðsynlega þjálfun þína á sviðinu. Menntunar- og hæfniskröfur Við leitum að duglegum, samviskusömum einstaklingum með færni í mannlegum samskiptum. Ef þú ert einstakl- ingur með áðurnefnda hæfileika getur orðið um framtíðar- ráðningu að ræða. Æskilegt er, en þó ekki skilyrði, að viðkomandi hafi eitthvað af eftirfarandi réttindum/reynslu: • Sveinspróf í rafvirkjun. • Reynslu af vinnu við rafdreifikerfi. • Sambærilega menntun eða reynslu. Framkvæmdadeild Orkuveitu Reykjavíkur óskar að ráða öflugt fólk til starfa. Vinnuskóli fyrir ungt fólk með þroskahömlun er starfræktur á vegum Hins hússins á sumrin. Gígja Heiðarsdóttir er umsjónarmaður skólans í sumar og segir starfið hafa farið vel af stað. Í sumar er vinnuskóli fyrir ungt fólk með þroskahöml- un starfræktur í formi nokk- urs konar starfsþjálfunar og hafa umsjónarmenn hans haft samband við fjölda fyrirtækja og stofnana síð- ustu vikur til þess að reyna að fá pláss fyrir ungmennin í skólanum. Nú er allt farið á fullt og ungmennin búin að vera að vinna úti um allan bæ síðustu vikuna. „Mér finnst það vera búið að ganga framar öllum vonum að fá fyrirtæki til samstarfs við okkur og allir eru mjög ánægðir,“ segir Gígja. Misjafnt er hversu mörg störf fyrirtæki hafa getað boðið vinnuskólanum og í hversu langan tíma en Gígja segir að allt komi sér vel. „Við erum til dæmis komin með hverfi hjá Póstinum sem eru þrjú störf, einn sem flokkar póstinn og tveir sem hjálpast að við að bera út, Bónus úthlutaði okkur þremur stöðum, tveimur í Holtagörðum og einni úti á Nesi og svo fáum við fjórar stöður hjá World Class í júlí, við barnagæslu og aðstoð í salnum og eldhúsinu. Meðal annarra sem hafa útvegað okkur störf eru Vesturbæj- arlaug, íþróttafélagið Valur, Kjarnavörur í Hafnarfirði, Hótel Reykjavík og Sigur- plast,“ segir hún. Átján til tuttugu ung- menni á aldrinum þrettán til sextán ára eru í vinnuskól- anum í hverri viku og segir Gígja að sé kominn biðlisti þar sem miklu fleiri vilja komast að en geta. „Krökk- unum finnst þetta rosalega gaman og þetta hefur geng- ið mjög vel. Forsvarsmenn fyrirtækjanna hafa líka verið mjög sáttir og við vonum bara að fleiri séu til í að útvega okkur störf. Við erum líka ofsalega ánægð með hvað við höfum fengið jákvæð viðbrögð hingað til,“ segir Gígja. Allir ánægðir

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.