Fréttablaðið - 17.06.2007, Síða 60
Nútíminn einkennist á
vissan hátt af margs
konar klámi. Raun-
veruleikaþáttaklámi,
tilfinningaklámi, klám-
klámi, lífsstílsklámi,
mataræðisklámi og
öðru klámi. Klámið
kemur nútímafólki í upp-
nám á nokkurra daga eða vikna
fresti því stundum getur verið erf-
itt að verjast klámáreitinu.
Sjálfri finnst mér lífsstílsklámið
erfiðast. Það neyðist enginn til að
horfa á klámklám, en lífsstílsklám
er einhvern veginn úti um allt.
Maður sér plebbmóbílinn Range
Rover rúlla fyrir annað hvert götu-
horn. Í búningsklefanum í rækt-
inni er maður umkringdur konum
sem tala ekki um annað en lífs-
stíl sinn í einni eða annari mynd
og í öllu sem þær á sér, eða á sig,
bera má sjá hver statusinn er. Ein
smyr sig með Chanel-sellókremi
og önnur, sem er ekki eins mjó,
gjóar augunum til hennar í andar-
taks öfund meðan hún kreistir sinn
Nivea-brúsa aðeins fastar.
Til þess að eiga fyrir lífsstílsbún-
ingnum vinna sumir fimm vinnur.
Lífsstíll er ekkert grín. Lífsstíls-
þættir eru heldur ekkert grín. Það
er ekkert grín að vera lífsstílssvín.
Sumum þykir það flottur lífsstíll
að vera mikið í útlöndum vegna
vinnunnar. Sjálfri finnst mér það
hræðilega ósjarmerandi tilhugs-
un og ekki er það vegna andúðar
á ferðalögum því ég hef siglt um
heimsins höf, ójá.
Vinkona mín komst vel að orði
þegar hún bar þetta saman við að
ganga á háum hælum:
„Lítur kannski glamúrus út en er
ógeðslega óþægilegt.“
Mörg ferðalög vegna vinnu koma
niður á svefni, meltingu, hjóna-
og heimilislífi og hvers vegna að
kjósa það?
Minn fyrirmyndarlífsstíll er
eftirlaunaþegalífsstíllinn. Einfalt
tempó, einfaldar þarfir, reglulegur
svefntími, vinkonur í kaffi, passað
upp á meltinguna, andað, lagt fyrir,
farið í göngutúr.
Eftirlaunaþegastíllinn ofbýð-
ur mér ekki, enda er hann ekk-
ert klám og klám er bara það sem
manni ofbýður.
Tilfinningaklám, raunveruleikaþáttaklám, klámklám og lífsstílsklám
VELJUM LÍFIÐ
„ÞAÐ ELSKA ALLAR KONUR HEIMSFRÆGA MENN“
GRETTIR
Miðasala 568 8000
www.borgarleikhús.is
grettir.blog. is
550 5000
AUGLÝSINGASÍMI