Fréttablaðið - 08.08.2007, Blaðsíða 1

Fréttablaðið - 08.08.2007, Blaðsíða 1
Sögurnar ... tölurnar ... fólkið ... Með fjórðung | Marel hefur eign- ast yfir fjórðungshlut í hollenska iðnfyrirtækinu Stork og er lang- stærsti hluthafinn. Markaðsvirði hlutarins nemur tæpum 33 millj- örðum króna. Jarðboranir seldar | Fjárfesting- arfélagið Atorka hefur selt Jarð- boranir hf. til Geysis Green En- ergy fyrir 14,3 milljarða króna. Hagnaður af sölunni nemur ellefu milljörðum króna. Góður fjórðungur | Hagnaður Landsbankans á öðrum ársfjórð- ungi nam 12,5 milljörðum króna eftir skatta. Á fyrstu sex mánuð- um ársins nam hagnaðurinn 26,3 milljörðum króna. Yfirtaka líkleg | Exista og Kaup- þing eru samtals komin með ríf- lega fjórðungshlut í Storebrand, næststærsta fjármálafyrirtæki Noregs. Eykur það líkurnar á því að félögin taki Storebrand. Besti árshelmingurinn | FL hagnaðist um rúma átta milljarða króna á öðrum ársfjórðungi og um alls 23 milljarða króna á fyrri hluta ársins. Þetta er besti fyrri árshelmingurinn í sögu félagsins. Ljúka endurfjármögnun | 365 hf. hefur lokið endurfjármögnun og er áætlað að vaxtagreiðslur lækki um sem nemur 220 milljónum króna á ári. Vaxtaberandi skuldir nema nú um sjö milljörðum. Met slegið | Velta á öllum mörk- uðum OMX nam að meðaltali 393,2 milljörðum króna á dag í júlí, og jókst um sextíu og sjö prósent á milli ára. Aldrei hefur mælst meiri velta í júlí. Erlendir sjóðir | Á fjórða tug er- lendra verðbréfasjóða með sam- tals um 240 sjóðsdeildir hafa til- kynnt Fjármálaeftirlitinu (FME) um fyrirhugaða markaðssetningu hér á landi. Baugur styrkir góðgerðarmál í Afríku Vandinn ekki óyfirstíganlegur 14 Birna Einarsdóttir hjá Glitni Enginn nýgræðingur í bankaheiminum 12 F R É T T I R V I K U N N A R Fair Trade á Íslandi Neytendur meðvitaðri um ábyrgð sína 8-9 www.trackwell .com Tíma- og verkskráning fyrir starfsmenn og tæki FORÐASTÝRING „Hálfsársuppgjör bankanna sýna að rekstur þeirra er almennt í góðu horfi og tekjugrunnur verð- ur sífellt dreifðari,“ segir Jónas Fr. Jónsson, forstjóri Fjármálaeft- irlitsins (FME). Hann segir bank- ana þurfa að gæta að kostnaðar- hlutföllum, sem fari hækkandi og bendir á að arðsemi eigin fjár sé lægri en á árinu 2006. Jónas segir að arðsemi viðskipta- bankanna þriggja verði að teljast mjög góð, en á fyrri helmingi árs- ins liggur hún á bilinu 22 til 39 pró- sent. „Ef litið er sérstaklega á arð- semi eiginfjár fyrir skatta án geng- ishagnaðar og óreglulegra tekna þá liggur hún á bilinu 15 til 19 pró- sent.“ Þá segir hann eiginfjárstöðu bankanna trausta, en eiginfjárhlut- föll þeirra eru á bilinu 12,5 til 13,4 prósent. Þar af er eiginfjárþátt- ur A (eða Tier 1) 9,3 til 11,1 pró- sent. „Hvorutveggja er mikilvægt fyrir bankana í ljósi hræringa á mörkuðum og möguleika til auk- innar útrásar,“ segir hann. Þá segir forstjóri Fjármálaeft- irlitsins einnig eftirtektarvert að vaxandi hlutfall tekna megi rekja til erlendrar starfsemi bankanna, eða um 54 prósent. „Innlán hafa einnig verið að aukast sem hlut- fall af heildarútlánum sem styrkir fjármögnun þeirra. Í lok júní 2007 voru innlán sem hlutfall af útlán- um 51 prósent samanborið við 34 prósent í lok ársins 2006,“ segir hann og bætir við að einnig hafi hægt verulega á útlánavexti bank- anna. „En í ljósi aukinna alþjóð- legra umsvifa og mikils útlána- vaxtar síðustu ár þurfa bankarn- ir að sýna árvekni varðandi gæði eigna. Þá er mikilvægt að þeir hugi vel að samþættingu rekstrarein- inga í nýjum löndum.“ - óká / Sjá einnig fréttaskýringu síðu 6 Bankarnir horfi til eignagæða G O T T F Ó LK Peningabréf ISK/EUR/USD/GBP eru fjárfestingarsjó›ir í skilningi laga nr. 30/2003, um ver›bréfasjó›i og fjárfestingar- sjó›i. Sjó›irnir eru reknir af Landsvaka hf., rekstrarfélagi me› starfsleyfi FME. Landsbankinn er vörslua›ili sjó›anna. Athygli fjárfesta er vakin á flví a› fjárfestingarsjó›ir hafa r‡mri fjár- festingarheimildir skv. lögunum heldur en ver›bréfasjó›ir. Um frekari uppl‡singar um sjó›ina, m.a. hva› var›ar muninn á ver›bréfasjó›um og fjárfestingarsjó›um og fjárfestingar- heimildir sjó›anna, vísast til útbo›sl‡singar og útdráttar úr útbo›sl‡singu sem nálgast má í afgrei›slum Landsbankans auk uppl‡singa á heimasí›u bankans, landsbanki.is. CAD 4,3%* DKK 5,4%*Örugg ávöxtun í fleirri mynt sem flér hentar EUR 4,4%* GBP 7,0%*ISK14,0%* Markmið Peningabréfa er að ná hærri ávöxtun en millibankamarkaður og gjaldeyrisreikningar. Enginn munur er á kaup- og sölugengi. Peningabréf Landsbankans USD 5,1%* * Nafnávöxtun á ársgrundvelli frá 1. júlí - 31. júlí 2007. Eggert Þór Aðalsteinsson skrifar FL Group hefur ekki farið varhluta af mikilli ókyrrð á alþjóðlegum mörkuðum en verðmæti sex stærstu eignarhluta félagsins í skráðum hlutabréfum hefur fallið samtals um á þrettánda millj- arð króna frá lokum fyrri árshelm- ings. Markaðsvirði þessara fjár- festinga nam um 264,8 milljörðum króna eftir lokun markaða á frí- degi verslunarmanna samanborið við 277,7 milljarða í lok júní. Mest hefur lækkunin orðið á gengi bréfa í Commerzbank sem er næststærsti banki Þýskalands og önnur stærsta eignin í hluta- bréfasafni FL. Bankinn hefur fall- ið um fjórtán prósent á þessum ársfjórðungi og má ætla að gengis- tapið þar sé orðið um níu milljarðar króna á tíma- bilinu. Hlutabréf í Commerzbank hækkuðu talsvert í gærmorgun og dró þar með úr gengistapinu. Hinn 30. júlí greindu forsvarsmenn Commerz- bank frá því að bankinn hefði fjárfest yfir eitt hundrað milljarða króna í áhættusömum banda- rískum húsnæðislánum. Verulegt tap stórra sjóða á þessum skuldabréfum voru kveikjan að miklum lækkunum á mörkuðum þar sem fjármálafyrir- tæki hafa komið sýnu verst út. Atburðarásin hefur dregið úr aðgengi fjárfesta að lánsfé. Fram kemur á Bloomberg-fréttaveitunni að þýski bankinn muni leggja um sjö milljarða króna til hliðar vegna mögulegs taps á fjárfestingunni. „Við teljum að félagið sé á mjög hagstæðum kennitölum. Markaðurinn hefur, að okkar mati, ekki að öllu leyti áttað sig á viðsnúningi í rekstri bank- ans,“ sagði Hannes Smárason, for- stjóri FL Group, á fundi með fjár- festum í síðustu viku. Hann telur óhjákvæmilegt að Commerzbank taki að einhverju leyti þátt í þeirri samþjöppun sem mun einkenna evrópskan bankamarkað á næstu misserum. Eignarhlutur FL í AMR Corp., móðurfélagi American Airlines, heldur áfram að falla og einnig lækkar um fjórðungshlutur félagsins í Finnair. Stærsti eignarhlutur FL, sem er 138 milljarða hlut- ur í Glitni, hefur hins vegar hækkað um 780 millj- ónir króna á þriðja ársfjórðungi. Þessi lækkun á eignasafni FL endurspeglast í bréf- um félagsins sem hafa lækkað um átta prósent á árs- fjórðungnum. Það er ríflega sautján milljarða lækk- un markaðsvirðis. FL skilaði ríflega 23 milljörðum króna á fyrri hluta ársins sem var metafkoma. FL tapar milljörðum á Commerzbank Gengi þýska bankans lækkar vegna fjárfestinga í áhættu- sömum bandarískum skuldabréfum og nemur varúðar- færsla vegna fjárfestingarinnar sjö milljörðum. Þ R Ó U N Á S T Æ R S T U E I G N A R H L U T U M F L Á 3 . Á R S F J Ó R Ð U N G I Félag Hækkun/lækkun Commerzbank (3,2%) -9.062 AMR Corporation (8,3%) -3.746 Finnair (23,4%) -617 Royal Unibrew (24,4%) -381 Aktiv Kapital (13,3%) +77 Glitnir (32,0%) +780 Áætlað gengistap -12.948 Bandaríski risabankinn Citig- roup hefur endurskoðað verðmat sitt á Kaupþingi og metur bréf í bankanum nú á 1.250 íslensk- ar krónur á hlut. Fyrra verðmat hljóðaði upp á 1.500 íslenskar krónur á hlut. Bent er á að fjármögnunar- kostnaður sé að aukast á alþjóða- Lækka mat á Kaupþingi Haukur Hauksson, framkvæmdastjóri ferða- skrifstofunnar Bjarmalands, stendur fyrir septemberferð til Moskvu í samstarfi við félagið MÍR (Menningartengsl Ísland og Rússlands).„Siglt er frá Moskvu eftir Volgu til borgarinnar Ast- rakhan við Kaspíahaf,“ segir Haukur Hauksson, framkvæmdastjóri ferðaskrifstofunnar Bjarma- lands. „Að því hafi liggja Íran, Kasakstan, Túrkmen- istan, Aserbaídsjan og Rússland. Þetta er langt ferða- lag eða 2.700 kílómetrar, sem jafngildir því ef i væri frá Íslandi til Portú lAð legri menningar-, sögu- og viðskiptamiðstöð,“ segir Haukur. „Jafnframt því er hún orðin að miðpunkti fyrir samgöngur Samveldisríkjanna eins og þau heita nú. Svo verður farið til Kasan, höfuðborgar Tatarstans, Tataralýðveldis í Rússneska sambandsríkinu. Síðan til Simbírsk, sem áður hét Úljanovsk, þar sem Lenín fæddist og safn um hann heimsótt. Auk þess verða merkilegar söguminjar skoðaðar í borginni Volgo- grad eða Stalíngrad eins og hún kall ði Að auki er b ði G O T T F Ó LK Skemmtilegur ferðafélagi H V ÍT A H Ú S IÐ / S ÍA - 0 7 -0 8 8 2 FRÁBÆR TILBOÐ! SÉRBLAÐ FYLGIR Víkingurinn Sinisa Kekic er 38 ára gamall og einn af markahæstu mönnum í Lands- bankadeild karla. Það sem er enn merkilegra er að hann er búinn að skora fimm af sjö mörkum sínum á lokakafla hálfleikjanna, þegar einhverjir teldu nú að farið væri að draga af manni sem er að nálgast fimmtugsaldurinn. Fréttablaðið skoðar í dag á hvaða tíma í leikjunum liðunum gengur best. Tólfta umferðin hefst með leik KR og Vals á KR- vellinum í kvöld, það er leikur botnliðsins í fyrstu deild undir stjórn Loga Ólafssonar. Sá gamli bestur í lok leikjanna Heldur á slóðir Stalíns GSM-samband verður á helstu vegum landsins eftir tvö og hálft ár, á samtals yfir 1.200 kílómetra vegakafla. Þetta verk- efni er tvískipt. Fyrri áfanganum lýkur í janúar á næsta ári þegar allur hringvegurinn verður kominn í GSM-samband ásamt fimm fjölförnum fjallvegum. Seinni áfanginn hefur verið boðinn út og eiga þær framkvæmdir að taka tvö ár. Hótelhaldarar og aðrir sem vinna að ferðamálum eru orðnir þreyttir á langvarandi GSM-sam- bandsleysi. Árni Zophaníasson, hótelhaldari á Bjarkalundi í Reykhólahreppi, er einn þeirra. „Þetta hefur verið alvarlegt ástand hérna síðustu ár og valdið okkur stórtjóni,“ segir Árni. „Fólk kemur ekki hingað vegna þess að hér er ekki gemsasam- band. Það kom hópur af bílum í vor og ætlaði að vera heila helgi. Flestallir flúðu því krakkarnir urðu alveg brjálaðir. Þeir komust ekki inn á netið og komust ekki í gemsann.“ GSM-væðing næstu tvö ár Morðið á Alexander Litvinenko í nóvember í fyrra var líklega hefndarmorð manna í rússnesku leyniþjónustunni FSB. Þetta er álit Martins Sixsmith, fyrrverandi fréttaritara breska ríkisútvarpsins BBC, sem nýlega gaf út bók um morðið á leyniþjón- ustumanninum fyrrverandi. Sixsmith telur ekki að Vladimír Pútín Rússlandsforseti hafi fyrirskipað morðið. Samkvæmt Sixsmith drápu menn úr FSB Litvinenko til að hefna fyrir það þegar Litvinenko fór ekki eftir skipun um að drepa rússneska auðkýfinginn Boris Berezovsky árið 1997 og vegna þess að hann sagði fjölmiðlum frá skipuninni. Talið hefnd FSB-manna Stýrir kammertón- leikum á Klaustri Þingmenn innan Sjálf- stæðisflokksins og Samfylking- arinnar vilja afnema úr lögum heimild fjármálaráðherra, fyrir hönd íslenska ríkisins, til þess að veita Íslenskri erfðagreiningu 200 milljóna dala ríkisábyrgð, um 12,6 milljarða íslenskra króna að núvirði, „vegna fjármögnunar nýrrar starfsemi Íslenskrar erfðagreiningar,“ eins og orðrétt segir í lögunum. „Ég er ekki hrif- inn af svona sértækum aðgerð- um og er á því að þessi heimild eigi ekki að vera fyrir hendi í íslenskum lögum,“ segir Ágúst Ólafur Ágústsson, varaformaður og þingmaður Samfylkingarinn- ar. Pétur Blöndal, þingmaður Sjálfstæðisflokksins og formað- ur efnahags- og skattanefndar, tekur undir þetta með Ágústi Ólafi. Lögin voru samþykkt á Alþingi 3. maí 2002 eftir líflegar, og oft harðar, umræður. Aldrei hefur komið til þess að beita hafi þurft heimildinni. Hún nær aðeins til skuldabréfa „vegna nýrrar starfsemi“. Baldur Guðlaugsson, ráðuneyt- isstjóri í fjármálaráðuneytinu, segir lagaheimildina með öllu óþarfa og í raun marklausa eftir að Íslensk erfðagreining kom þeim skilaboðum til yfirvalda, með formlegum hætti, að fyrir- tækið þyrfti ekki á ábyrgðinni að halda. Þannig hefði málið í raun lognast út af og heimildin því „dauð“. ESA, eftirlitsstofnun EFTA, var með ábyrgðarheimildina til skoðunar um tíma. Meðal annars var kannað hvort það færi gegn lögum og reglum EFTA að lög- festa heimild til að veita einu fyrirtæki ríkisábyrgð umfram önnur. Þeirri skoðun var sjálfkrafa hætt eftir að Íslensk erfðagrein- ing lýsti því yfir að fyrirtækið þyrfti ekki á aðstoð ríkisins að halda. Þrátt fyrir það er heimild- ina enn að finna í íslenskum lögum. Ábyrgðarheimildin verði tekin úr lögum Vilji er til þess innan þingflokka Sjálfstæðisflokks og Samfylkingarinnar að afnema heimild fjármálaráðherra til veita Íslenskri erfðagreiningu ríkisábyrgð. Ekki hrifinn af svona sértækum aðgerðum, segir Ágúst Ólafur Ágústsson.

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.