Fréttablaðið - 08.08.2007, Qupperneq 4

Fréttablaðið - 08.08.2007, Qupperneq 4
 Satsuki Eda varð fyrir valinu sem forseti efri deildar Japansþings í gær, þar sem stjórnarandstaðan náði meiri- hluta í kosningum í lok júlí. Eda er gamalreyndur stjórnmálamaður og svarinn andstæðingur stjórnar Shinzos Abe forsætisráð- herra. Þessi niður- staða er enn eitt áfallið fyrir Abe og stjórn hans. Meirihluti stjórnarandstöð- unnar í efri deild, sem þó hefur minni völd en neðri deildin, segist ennfremur koma til greina að krefjast brotthvarfs japanska flughersins frá Írak. Nýtt áfall fyrir Japansstjórn Sextán ára stúlka sem handtekin var í Leifsstöð fyrir viku með hálft kíló af kóka- íni í fórum sínum er yngsta mann- eskja sem tekin hefur verið fyrir stórfellt fíkniefnasmygl til lands- ins. „Ég held að ég geti fullyrt það,“ segir Friðrik Smári Björg- vinsson, aðstoðaryfirlögreglu- þjónn hjá lögreglunni á höfuð- borgarsvæðinu. Stúlkan varð sextán ára gömul daginn áður en hún kom til lands- ins, og var því ekki nema fimmtán ára þegar hún lagði upp í ferðina ásamt 28 ára kærasta sínum, sem var handtekinn með henni. Heim- ildir Fréttablaðsins herma að for- eldrar hennar hafi vitað af ferð- inni, og þar sem hún sé ekki sjálfráða hefðu þau getað beðið lögreglu um að koma í veg fyrir að hún færi. Hún hefur þrátt fyrir ungan aldur áður komist á kast við lög hérlendis. Parið flutti efnin frá Venesúela til Íslands í gegnum Bandaríkin. Það var handtekið í Leifsstöð á mánudaginn fyrir rúmri viku með um hálft kíló af kókaíni falið í endaþarmi, skipt milli þeirra til helminga. Efnið var vafið í álpappír og í smokkum. Ekki liggja fleiri Íslendingar undir grun, sem bendir til þess að þau hafi ekki verið burðardýr. Þau sátu í gæsluvarðhaldi í viku og losnuðu út í gær. Lögregla og tollyfirvöld hafa komið í veg fyrir smygl á tæplega fjóru og hálfu kílói af kókaíni til landsins það sem af er ári. Stúlkan er yngsti smyglari frá upphafi Sextán ára stúlka sem tekin var með hálft kíló af kókaíni í síðustu viku er yngsti fíkniefnasmyglari Íslandssögunnar. Hún og 28 ára kærasti hennar losnuðu úr varðhaldi í gær. Þau eru líklega ekki burðardýr. Lögreglan hefur lagt hald á fjög- ur og hálft kíló af kókaíni það sem af er árinu. Parið flutti efnin frá Venesúela. Upphæð útistandandi jöklabréfa er nú um 400 milljarð- ar króna sem jafngildir þriðjungi af áætlaðri landsframleiðslu Íslands á þessu ári. Hollenski bankinn Rabobank gaf í gær út jöklabréf að andvirði 25 milljarða króna. Bréfin eru til 18 mánaða og bera 12,5 prósenta vexti. Þetta kom fram í Vegvísi greiningardeildar Landsbankans. Aðeins einu sinni hefur stærri útgáfa jöklabréfa átt sér stað. Þá var það einnig Rabobank sem gaf út bréf að andvirði 40 milljarða króna. Jöklabréf eru það sama og skuldabréf nema þau eru gefin út af erlendum aðilum. 400 milljarðar útistandandi Orkustofnun hefur verið gert að kalla inn öll gögn vegna Fjarðarárvirkjunar, bæði frá Íslenskri orkuvirkjun, sem er framkvæmdaraðili virkjunarinnar, og eftirlitsaðilum. Iðnaðarráðuneyt- ið óskaði eftir þessu við stofnunina í gær og óskaði eftir að sendur yrði fulltrúi á virkjunarsvæðið til að gera úttekt á stöðu framkvæmda. Bæjaryfirvöld á Seyðisfirði óskuðu eftir umsögn Skipulagsstofnunar. „Ég vildi fá upplýsingar um það hvaða aðili ætti að hafa heildaryfirsýn yfir fram- kvæmd eins og þessa virkjun,“ segir Ólafur Hr. Sigurðsson bæjarstjóri. Hann segir að það skorti skýrar línur um eftirlit með virkjunum og Skipu- lagsstofnun hafi ekki getað svarað því hvort bærinn eigi að hafa umsjón með eftirliti eða ekki. Bærinn gefi vissulega út framkvæmdaleyfi en iðnaðarráðu- neytið gefi út virkjunarleyfi. Þóroddur F. Þóroddsson, sviðsstjóri umhverfis- sviðs Skipulagsstofnunar, gerði athugasemdir um virkjanasvæðið í umsögn sinni. Hann taldi óvíst hvort framkvæmdir uppfylltu öryggisstaðla, og að umrót og eyðilegging væru meiri en fyrirhugað var. Ólafur segir það rétt að röskunarsvæði sé stærra en áætlað var en segir snyrtilega frá öllu gengið. Birkir Þór Guðmundsson, framkvæmdastjóri Íslenskra orkuvirkjunar, vildi ekki tjá sig um málið að svo stöddu. Fulltrúar Orkustofnunar munu skoða svæðið í dag. Maðurinn sem lést í umferð- arslysi á Laugar- vatnsvegi snemma á mán- udagsmorgun hét Eiríkur Óli Gylfason. Eiríkur var 26 ára gamall og til heimilis að Skriðuseli 4 í Reykjavík. Hann lætur eftir sig unnustu og eitt barn. Lést í bílslysi á Suðurlandi Árleg kertafleyting í minningu kjarnorkuárásanna á Hírósíma og Nagasakí í lok seinni heimsstyrjaldar fer fram á fimmtudagskvöldið 9. ágúst klukkan 22.30 við Reykjavíkur- tjörn og Minjasafnstjörnina á Akureyri. Íslenskar friðarhreyfingar standa að kertafleytingunni og leggja þær áherslu á kröfuna um friðsaman og kjarnorkuvopna- lausan heim. 62 ár eru liðin frá árásunum, sem voru 6. og 9. ágúst árið 1945. Flotkerti og friðarmerki verða seld á staðnum. Kertafleyting í minningu árása Eiganda reiðhjóls var brugðið í síðustu viku þegar hann kom frá vinnu sinni í miðborginni og uppgötvaði að framhjólinu hafði verið stolið undan reiðhjólinu. Því hafði verið læst á afturhjólinu. Eigandinn gat vitaskuld ekki hjólað heim á hjólinu, og það gat ekki heldur eigandi annars hjóls sem lagt hafði verið í nágrenninu. Því hafði verið læst á framhjólinu, og uppgötvaði eigandinn sér til mikillar skelfingar þegar hann sneri aftur út að ekkert var eftir nema framhjólið. Hinn úrræðagóði þjófur hefur hins vegar líklega getað hjólað á brott á nýsamsettu stolnu hjóli sínu. Stal heilu hjóli í tveimur hlutum

x

Fréttablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.