Fréttablaðið - 08.08.2007, Blaðsíða 8
Hvar fær Fisfélag Reykjavíkur
aðstöðu undir flugvöll og
félagsaðstöðu á næstunni?
Hversu lengi hefur
hljómsveitin Dúkkulísurnar
verið starfandi?
Hversu stór hluti vopna sem
flutt hafa verið til Íraks hefur
glatast þar?
Þýskir vísindamenn
hafa komist að því að rómantísk
tónlist getur stuðlað að aukinni
kynorku hákarla. Fimm sædýra-
söfn í Þýskalandi tóku þátt í
tilraun þess efnis, en illa hafði
gengið að fá hákarlana til að
fjölga sér.
Eftir fjögurra vikna tilraunir
kom í ljós að tónlistin hafði áhrif.
Nokkrir flytjendur virtust
kveikja sérstaklega í hákörlun-
um, þar á meðal Salt n‘ Pepa,
Justin Timberlake, Joe Cocker og
Bob Marley.
Þessi aðferð hefur áður verið
reynd hjá pöndum og prímötum
með góðum árangri.
Tónlist kemur
hákörlum í stuð
„Við erum að svara kalli tímans um
hreint loft og góðar vinnuaðstæður,“ segir Dóra
Lúðvíksdóttir, lungnalæknir á Landspítalanum. Frá
og með næstu áramótum verður Landspítalinn
reyklaust sjúkrahús. Reykingar verð ekki leyfðar á
sjúkrahúsinu né á lóð þess.
Fram til þessa hafa reykingar verið leyfðar í
sérstökum herbergjum í húsnæði spítalans.
„Starfsfólk og sjúklingar hafa orðið fyrir ónæði og
oft hefur verið kvartað undan þessum herbergjum,“
segir Dóra.
„Um miðjan ágúst verða reykingar bannaðar í
aðalbyggingum sjúkrahússins. Um áramót verða
reykingar bannaðar á langlegudeildum og þar með í
öllu húsnæði spítalans,“ segir hún.
Aðdragandinn að reykingabanninu hefur verið
talsverður að sögn Dóru. Frá síðustu áramótum
hefur starfsfólki spítalans verið meinað að reykja á
vinnutíma. „Starfsfólkinu var boðið upp á námskeið
til að takast á við reykleysið. Það hefur gengið mjög
vel,“ segir Dóra.
Sjúklingum spítalans verður boðið upp á aðstoð til
að hemja reykingafíkn sína. Meðal annars verður
þeim boðið upp á lyf sem draga úr löngun í nikótín.
„Við vonum að sem flestir nýti þetta tækifæri til að
hætta að reykja,“ segir hún.
Sjúklingar fá fræðslu og ráðgjöf
Al Gore, fyrrverandi
varaforseti Bandaríkjanna, segir
að sum þeirra stórfyrirtækja,
sem bera hvað
mesta ábyrgð á
útblæstri
gróðurhúsaloft-
tegunda, hafi
varið miklu
fjármagni til að
styrkja
vísinda-
rannsóknir í
þeim tilgangi að skapa ágreining
um að hlýnun jarðar sé af
mannavöldum.
„Sannleikurinn er sá að afar
lítill ágreiningur er um þetta,“
sagði Al Gore á ráðstefnu í
Singapúr í gær. „Við lifum í heimi
þar sem það, sem einu sinni var
kallað áróður gegnir stóru
hlutverki við að móta almenn-
ingsálitið.“
Stórfé varið í að
skapa ágreining
Ahmed Bel Bacha, einn
fanganna í fangelsi Bandaríkja-
hers við Guantanamo-flóa á
Kúbu, berst nú fyrir því að fá að
vera þar lengur frekar en að vera
sendur heim til Alsírs.
Hann óttast að þurfa að sæta
pyntingum í Alsír, en þaðan flúði
hann til Bretlands á sínum tíma
til að leita hælis.
Þrír aðrir Alsírbúar, sem eru
fangar í Guantanamo, eru á sama
báti og vilja heldur vera þar en
fara til Alsírs.
Mannréttindasamtök vita um
nærri þrjátíu fanga í Guantanamo
sem óttast að fara heim. Þeir eru
flestir frá ríkjum í norðanverðri
Afríku.
Vill vera áfram
í Guantanamo
Á miðnætti lauk 21.
alheimsmóti skáta sem fór fram í
Hylands Park á Englandi.
42 þúsund skátar frá 158
þjóðlöndum voru þar saman
komnir í tólf daga og fræddust
meðal annars um mismunandi
aðstæður í heiminum, til dæmis
hvernig sumir þurf að ganga
langar vegalengdir til þess eins að
fá vatn og aðrar nauðsynjar sem
aðrir fá beint úr krananum heima
hjá sér.
Íslenski skátahópurinn, yfir 300
ungmenni, heldur nú í heima-
gistingu hjá breskum skátum víðs
vegar á Bretlandseyjum Þar
munu Íslendingarnir kynnast
aðstæðum ungmenna á sama aldri
í Bretlandi.
Alheimsmóti
skáta lauk í nótt
Stjórnvöld í Georgíu
segja að tvær rússneskar orrustu-
þotur hafi farið ólöglega inn í loft-
helgi landsins yfir Gori-héraðinu á
mánudaginn og skotið flugskeyti
að þorpinu Shavshebi. Flugskeytið
lenti um 25 metrum frá húsi í jaðri
þorpsins en sprakk ekki. Engan
sakaði. Stjórnvöld í Georgíu segja
að ef flugskeytið hefði sprungið
hefði það valdið miklum skaða.
Innanríkisráðherra Georgíu,
Vano Merabishvili, segir að rúss-
nesku orrustuþoturnar hafi sést á
ratsjám georgíska hersins.
Vyacheslav Kovalenko, sendiherra
Rússa í Georgíu, neitar því að
Rússar hafi skotið flugskeytinu.
Hugsanlegt er að atvikið tengist
valdabaráttu Georgíumanna og
Rússa í sjálfsstjórnarhéruðum
Georgíu. Gori-héraðið liggur að
Suður-Ossetíu, sjálfsstjórnarhér-
aði í Georgíu. Aðskilnaðarsinnar í
Suður-Ossetíu vilja sjálfstæði frá
Georgíu.
Boris Chociyev, ráðherra í ríkis-
stjórn Suður-Ossetíu, segir að
stjórnvöld í Georgíu hafi skotið
flugskeytinu til þess að geta kennt
Rússum um það. En stjórnvöld í
Georgíu hafa vænt Rússa um að
styðja við bakið á aðskilnaðarsinn-
um í Suður-Ossetíu og Abkasíu,
öðru sjálfsstjórnarhéraði í Georg-
íu.
Saka Rússa um loftárás
mið. 8. ágúst kl. 19:15 Keflavík – Stjarnan
mið. 8. ágúst kl. 19:15 Breiðablik – Þór/KA
fim. 9. ágúst kl. 19:15 Fjölnir – KR
11. UMFERÐ
Landsbankinn býður 16 ára og yngri á völlinn.
Sækja þarf boðsmiðann í næsta útibú Landsbankans.
LANDSBANKADEILD KVENNA
mið. 8. ágúst kl. 19:15 KR – Valur
fim. 9. ágúst kl. 19:15 Keflavík – Breiðablik
fim. 9. ágúst kl. 19:15 Fylkir – Víkingur R.
fim. 9. ágúst kl. 19:15 Fram – ÍA
sun. 19. ágúst kl. 18:00 HK – FH
LANDSBANKADEILD KARLA
12. UMFERÐ
Maður sem var sakaður
um að hafa haft samræði kind var
sýknaður þar sem kindin gat ekki
borið vitni um að hún hafi ekki
viljað samræðið.
Eigandi kindarinnar kom að
manninum, sem er frá Haaks-
bergen í Hollandi, og tilkynnti
lögreglu um athæfið.
Hollenskir dómstólar urðu að
vísa málinu frá þar sem gildandi
lög kveða á um að samræði við
dýr séu ekki brot á lögum nema
hægt sé að sýna fram á að
athæfið sé gegn vilja dýrsins.
Dómsmálaráðherra Hollands,
Ernst Hirsch Ballin, hefur lýst
því yfir að lögunum verði breytt
til að hægt verði að dæma menn
fyrir dýraníð.
Slapp því kind
gat ekki vitnað