Fréttablaðið - 08.08.2007, Blaðsíða 10
Lögreglan í Vest-
mannaeyjum þurfti að hafa afskipti
af nokkrum ungmennum í Herj-
ólfsdal í fyrrinótt sem léku sér að
því að bera eld að tjöldum sínum
áður en þau hurfu á brott af
þjóðhátíð.
Varðstjóri lögreglu segir þetta
hefðbundna hegðun á mánudegi
eftir þessa helgi, þegar hún er á
annað borð möguleg vegna veðurs.
Hann segir enga hættu hafa skapast,
eldur hafi ekki borist á milli tjalda.
Ekki var kallað til slökkviliðs til að
ráða niðurlögum eldanna heldur
gengu lögreglumenn á milli með
slökkvitæki auk þess sem gestir
hjálpuðu til að eigin frumkvæði.
Ekki var um mörg tjöld að ræða.
Þjóðhátíðargestir voru enn að
tínast frá Eyjum í gær og fór
Herjólfur meðal annars með fullan
farm af ferðalöngum strax í gær-
morgun. Varðstjóri segir ferðir til
og frá eyjunni helsta flöskuhálsinn
og ástæðu þess að sumir dvelji í
dalnum langt fram á þriðjudag.
„Þess vegna vildum við göng,“ segir
hann.
Þótt sumir hafi haft fyrir því að
brenna föggur sínar voru aðrir sem
einfaldlega skildu þær eftir. Lög-
reglan hefur því í fórum sínum
umtalsvert magn óskilamuna, og er
þar að finna síma, veski og fleira,
tugi ef ekki hundruð kílóa að sögn
varðstjóra. „Sumt var merkt og við
höfum reynt að koma því til skila,“
segir hann. Ef með þarf eru
munirnir sendir í pósti.
Flugvélar lentu
um 340 sinnum á Vestmanna-
eyjaflugvelli á mánudag í því
skyni að sækja þjóðhátíðargesti á
heimleið. Það þýðir að flugvél
lenti á um það bil þriggja og
hálfrar mínútu fresti.
Að sögn starfsmanna flug-
turnsins gengu flugferðirnar
greiðlega fyrir sig. Flogið var frá
fimm að morgni til miðnættis á
mánudag, en frá sjö að morgni
frá föstudegi til sunnudags.
Flugfélag Vestmannaeyja fór
flestar ferðirnar en Flugfélag
Íslands og Vængir hafa einnig
flogið til og frá Eyjum.
340 lendingar á
flugvellinum
Exista hf., kt. 610601-2350, hefur gefið út lýsingu
vegna skráningarvíxla sem OMX Nordic Exchange
Iceland hf. hefur samþykkt og gert aðgengilegar
almenningi frá og með 8. ágúst 2007.
Eftirfarandi víxlaflokkur hefur verið gefinn út:
„Við sofnuðum aldrei
þessu vant í sófanum. Um nóttina
vaknaði maðurinn minn við
sprengingu. þá var svefnherberg-
ið okkar í ljósum logum,“ segir
Hrafnhildur Eva Ingibergsdóttir,
íbúi að Hulduhlíð 28 í Mosfells-
bæ.
Hrafnhildur og maður hennar
tóku drengina sína tvo, fimm og
sex ára, og forðuðu sér út úr íbúð-
inni. Annar drengurinn svaf í her-
bergi við hliðina á því sem eldur-
inn logaði í. Reykskynjari fór ekki
í gang fyrr en talsverðum tíma
eftir að þau voru komin út segir
Hrafnhildur.
Neyðarlínunni barst tilkynning
um brunann um klukkan þrjú
aðfaranótt laugardagsins. Að sögn
varðstjóra slökkviliðs höfuðborgar-
svæðisins var mikill viðbúnaður
og nokkrir bílar sendir af stað.
Þegar fyrstu bílarnir komu á
staðinn kom í ljós að eldurinn var
að mestu kafnaður en mikill
reykur var í íbúðinni. Að sögn
varðstjórans voru viðbrögð
íbúanna hárrétt að loka herberginu
og segir hann rétt viðbrögð hafa
bjargað því að eldurinn varð ekki
meiri.
Mest allt sem var í svefnher-
berginu er ónýtt og eru innan-
stokksmunir um alla íbúð skemmd-
ir vegna sóts og reyks. Íbúðin er í
eigu Mosfellsbæjar og voru innan-
stokksmunir ekki tryggðir.
Hrafnhildur er ósátt við fram-
komu lögreglunnar og slökkviliðs-
ins á vettvangi. „Þegar við sögð-
um þeim að þetta væri félagsleg
íbúð og að við værum ótryggð var
eins og við skiptum þá engu máli,“
segir Hrafnhildur. Hún segir að
það hafi gengið erfiðlega að fá
svör um hvernig þau ættu að snúa
sér í málinu.
Að sögn varðstjóra hjá
slökkviliðinu reynir slökkviliðið
að hjálpa fólki eins mikið og unnt
er í hvert sinn. Slökkviliðið lét
útbúa fyrir sig bækling sem það
færir fólki sem hefur misst eigur
sínar í bruna. Þar eru upplýsingar
um þá helstu hluti sem fólk þarf á
að halda á svona stundu, til dæmis
neyðarnúmer hjá tryggingafélög-
um. Einnig er slökkviliðið í sam-
starfi við Rauða krossinn þar sem
þeir geta kallað út starfsfólk hafi
fólk ekki í nein hús að venda.
Rannsókn á brunanum er hafin
hjá lögreglunni. Að sögn Hrafn-
hildar voru engin rafmagnstæki í
herberginu sem líklegt er að
kviknað hafi í. Þar hafi ekki verið
sjónvarp og tölvur í herberginu
ekki í sambandi.
Húsbóndinn vakn-
aði við sprengingu
Maður vaknaði við sprengingu og stóð þá svefnherbergi hans og konu hans í
ljósum logum. Hann vakti konu sína og börn og þau forðuðu sér út og hringdu á
slökkviliðið. Rétt viðbrögð íbúa björguðu því að ekki fór verr. Íbúðin var ótryggð.