Fréttablaðið - 08.08.2007, Page 12
David Miliband, utan-
ríkisráðherra Bretlands, hefur
skrifað bréf til Condoleezzu Rice,
utanríkisráðherra Bandaríkjanna,
þar sem farið er fram á að fimm
fangar í búðum Bandaríkjahers
við Guantanamo á Kúbu verði
látnir lausir.
Allir höfðu þessir fimm fangar
verið búsettir í Bretlandi áður en
þeir voru handteknir, en enginn
þeirra er þó breskur ríkisborgari.
Af hálfu Breta er þarna um
stefnubreytingu að ræða undir
forystu Gordons Brown forsætis-
ráðherra, því meðan Tony Blair
var forsætisráðherra hafði breska
stjórnin eingöngu viljað hafa
afskipti af föngum í Guantanamo
væru þeir breskir ríkisborgarar.
Sú afstaða var ítrekuð síðast í
mars.
Mennirnir fimm eru Shaker
Aamer frá Sádi-Arabíu, Jamil el-
Banna frá Jórdaníu, Omar Deg-
hayes frá Líbíu, Binyam Moham-
ed frá Eþíópíu og Abdennour
Sameur frá Alsír. Þeir höfðu ýmist
fengið dvalarleyfi eða hæli sem
flóttamenn í Bretlandi.
„Viðræður við Bandaríkjastjórn
um að fá þessa menn lausa og
senda heim gæti tekið einhvern
tíma,“ segir í yfirlýsingu frá
breska utanríkisráðuneytinu.
„Það hefur tekið okkur fimm og
hálft ár að ná þessum áfanga,“
segir Moazzam Begg, breskur rík-
isborgari sem hafði dvalist í tvö ár
í Guantanamo-búðunum áður en
hann fékk að fara til Bretlands
árið 2005. „Til eru börn sem hafa
aldrei séð feður sína. Einnig eru
foreldrar sem hafa dáið meðan
börn þeirra voru höfð í haldi. En
loksins virðist mega sjá ljóstýru
við endann á þessum löngu göng-
um,“ bætti hann við.
Breska utanríkisráðuneytið
segir að fimm breskir ríkisborg-
arar hafi verið látnir lausir í mars
árið 2004 og fjórir aðrir í janúar
árið 2005. Auk þess höfðu Bretar
gert eina undantekningu og náð
því fram að maður yrði látinn laus,
þótt hann hafi ekki verið breskur
ríkisborgari, en sá hafði veitt
bresku leyniþjónustunni aðstoð
sína.
Hvorki utanríkisráðuneytið né
skrifstofa Browns forsætisráð-
herra hafa viljað staðfesta að
Brown hafi rætt þessi mál við
George W. Bush Bandaríkjafor-
seta á fundi þeirra í síðustu viku.
Bretar vilja fanga
frá Guantanamo
Bresk stjórnvöld krefjast þess að Bandaríkjaher láti lausa fimm fanga úr Guant-
anamo-fangelsinu á Kúbu. Þetta er stefnubreyting sem þykir benda til að Gor-
don Brown forsætisráðherra ætli að leggja meiri áherslu á mannréttindamál.
Lögreglan á
höfuðborgarsvæðinu hefur lokið
rannsókn sinni á morðinu sem
framið var á Sæbraut sunnu-
daginn 29. júlí. Málið telst
upplýst og kom ekkert óvænt
fram við rannsóknina, að sögn
Sigurbjörns Víðis Eggertssonar
aðstoðaryfirlögregluþjóns.
Málið verður sent til
ríkissaksóknara. Þar sem sá seki
framdi sjálfsvíg er ekki talið að
nokkur ákæra verði gefin út.
Ríkissaksóknari getur hins vegar
óskað eftir frekari rannsókn ef
hann telur þörf á.
Rannsókn
lokið án ákæru
Pólski listamaðurinn
Daniel Czapiewski hefur byggt
harla óvenjulegt hús í þorpinu
Szymbark, sem er í norðanverðu
Póllandi. Húsið er á hvolfi, hvílir
á þakinu og hallast af þeim sökum
svolítið.
Húsið á að minna á ástandið
þegar kommúnistastjórn var við
völd í Póllandi, þegar tilveran öll
var á hvolfi og enginn vissi hvað
sneri upp og hvað niður.
Húsið er í fullri stærð, búið
húsgögnum sem einnig eru á
hvolfi og rammlega fest við gólfið
svo þau detti ekki niður.
Hús á hvolfi í
pólsku þorpi
Gísli Tryggvason, tals-
maður neytenda, segir bankana
innheimta of háar upphæðir í svo-
nefndan FIT-kostnað. FIT-kostn-
aður leggst á viðskiptavini sem
fara yfir á reikningum, til dæmis
ef debetkort án innistæðu er notað
í verslun. „Bönkum verður ekki
veitt refsivald yfir neytendum,“
segir Gísli.
„Það væri sérstök staða ef það
kostaði ekkert að fara yfir á reikn-
ingnum,“ segir Guðjón Rúnarsson,
framkvæmdastjóri Samtaka fjár-
málafyrirtækja. „Þá gætu menn
náð sér í eins mikinn pening og
þeir vildu.“
Guðjón segir það kosta bankana
mikið að innheimta gjöldin, en þau
séu ekki hærri hérlendis en best
sé á kosið erlendis. Hann segir
innheimtuna jafnframt byggjast á
lögum um tékka.
Gísli segir það ekki standast.
Bankar geti ekki lagt á sektir
sem lögregla, ákæruvald og
dómsvald ættu að ákveða. Þær
sektir ættu að renna í ríkissjóð,
en ekki til bankanna. FIT-kostn-
aður verði að styðjast við lög,
samninga, skaðabótaábyrgð eða
auðgunarkröfu. Svo sé ekki.
Segir bankana ekki mega refsa