Fréttablaðið - 08.08.2007, Page 36
Stemningin í höfuðborginni um verslunar-
mannahelgina var ekki síður góð en á
tjaldstæðum landsins. Innipúkar flykktust
á samnefnda hátíð á meðan aðrir lögðu leið
sína í Fjölskyldu- og húsdýragarðinn, þar
sem Stuðmenn stóðu undir nafni.
„Það má með sanni segja að
þetta sé „grand-entrance“
hjá okkur. Byrja á stærsta
sviði sem sett hefur verið
upp á Íslandi og það í beinni
útsendingu. Það verður nú að
viðurkennast að maður er
svoldið stressaður,“ segir
Sigursveinn Þór Árnason,
einn af fimm meðlimum
Luxor-flokksins, sem nýlega
var settur saman af umboðs-
manninum Einari Bárðarsyni.
Luxor-flokkurinn er á meðal
þeirra listamanna sem koma
fram á risatónleikum Kaup-
þings á Laugardalsvelli 17.
ágúst næstkomandi sem
haldnir verða í tilefni af 25
ára afmæli bankans.
Luxor-flokkurinn hefur
verið í þrotlausum æfingbúð-
um hjá Kristjönu Stefáns-
dóttur söngþjálfara og Yes-
mine Olson, sem stýrir
framkomu þeirra. Þetta er í
fyrsta sinn sem söngsveit
stráka er sett saman með
þessu tagi á Íslandi og mikil
spenna, bæði hjá stráknun-
um og þeim sem standa á bak
við þá, við að sjá hvernig
þeim verður tekið af þjóð-
inni.
Undirbúningur að fyrstu
breiðskífu Luxor er þegar
hafinn en Þorvaldur Bjarni
Þorvaldsson og Vignir Snær
Vigfússon munu stjórna upp-
tökum á henni. Upptökur
munu fara fram hér á landi
og erlendis en fyrirhugað er
að platan komi í verslanir
þann 29. október.
Luxor-strákarnir við stífar æfingar
AUKAKRÓNU
ÞÆR KOMA
ÍS
LE
N
SK
A
S
IA
.IS
/L
B
I
3
84
33
0
8/
07