Fréttablaðið - 08.08.2007, Page 39
New York-sveitin Interpol er ein af
skemmtilegri rokkhljómsveitum
síðustu ára. Fyrsta platan hennar,
Turn On The Bright Lights kom út
árið 2002 og vakti mikla athygli,
enda frábær plata undir miklum
Joy Division-áhrifum. Sveitin hélt
áfram á sömu braut á næstu plötu,
hinni ágætu Antics sem kom út
fyrir þremur árum og nú er þriðja
platan sem sagt komin.
Það má telja næsta öruggt að
þeir sem dáðu fyrstu tvær plöt-
urnar finna eitthvað við sitt hæfi á
Our Love To Admire. Hljómurinn
er svolítið þykkari og rokkaðri og
sums staðar er búið að legja meira
í útsetningarnar, en í grunninn er
þetta samt sama tónlistin. Hljóm-
borð eru nokkuð áberandi á nýju
plötunni auk þess sem það má
heyra í strengjum og blásturs-
hljóðfærum hér og þar. Það er
margt gott á Our Love To Admire,
en þessar nýju útsetningar heppn-
ast misvel og lögin eru líka mis-
góð. Persónulega er ég hrifnastur
af No I In Threesome, Mammoth
og The Heinrich Maneuver, en
upphafslagið Pioneer To The Falls
og lagið All Fired Up vinna mikið
á við frekari hlustun líka.
Our Love To Admire er ekki
vond plata. Hún er alveg viðun-
andi og það er engin hætta á því að
aðdáendurnir yfirgefi sveitina í
hrönnum. Mér finnst samt eins og
meðlimir Interpol hafi ekki alveg
vitað hvert þeir vildu fara með
tónlistina og útkoman er þess
vegna plata sem er ekki jafn heil-
steypt og sannfærandi og fyrri
plöturnar tvær.
Sísta plata Interpol
Feðgarnir Óskar og Pan Thorarensen gefa
þann 20. ágúst út plötuna Parallel Island og
verða útgáfutónleikarnir haldnir í Flatey á
Breiðafirði fimm dögum síðar.
Pan segir að samstarf hans og Óskars föður síns við
væntanlega plötu hafi gengið mjög vel. „Þetta small
alveg saman. Hann er mjög klár og veit hvað hann
vill. Hann er með sínar pælingar en við erum með
alveg sama stíl. Við hlustum á sömu tónlist og fílum
sama hljóð og „sánd“. Þetta gerist ekki betra,“ segir
Pan, sem starfar einnig undir nafninu Beatmakin
Troopa. Faðir hans var fyrir rúmum tíu árum í
hljómsveitinni Inferno 5 en hefur að undanförnu
verið syni sínum til halds og trausts á sólóferli
hans.
Pan játar að hann fái jafnan skammir frá pabba
sínum ef hann stendur sig ekki. „Það kemur fyrir að
hann skammi mig ef ég geri einhverja vitleysu.
Maður verður að bera virðingu fyrir karlinum
gamla, það þýðir ekkert að æsa sig.“
Platan, sem er í raftónlistarstíl, var öll unnin í
Flatey og er eyjan nokkurs konar þema á plötunni.
„Við fórum hérna í júní í fyrra í ferðalag og vorum
bara rosalega hrifnir. Við fengum okkur hús í smá
tíma og byrjuðum bara að taka upp. Síðan erum við
búnir að vera með annan fótinn þar í allt sumar að
fínpússa plötuna,“ segir Pan.
Þeir feðgar hafa ekki lagt árar í bát þótt nýja plat-
an sé í höfn því þeir eru strax byrjaðir að vinna í
annarri plötu. Einnig ætla þeir að fara yfir gamlar
upptökur með Inferno 5 og hugsanlega gefa þær út í
endurhljóðblönduðum útgáfum.
forsýningu
Gunnar fer til London
Gunnar Biering vann lúxusferð fyrir 2 til London þar sem hann fær að fylgja
stjörnunum eftir rauða dreglinum og sjá stórmyndina The Bourne Ultimatum
á sérstakri Evrópufrumsýningu 15. ágúst.
150 vinna 2 miða á MasterCard forsýningu 16. ágúst
Einnig vinna 150 félagar í klúbbnum tvo miða á sérstaka MasterCard forsýn-
ingu á myndinni á Íslandi 16. ágúst, 6 dögum fyrir frumsýningu.
Skráðu þig í Bíóklúbb MasterCard á www.mastercard.is/bio og notaðu
MasterCard kortið! Drögum föstudaginn 10. ágúst 2007.
www.mastercard.is/bio
og sérð myndina á undan öðrum, 16. ágúst?
Vinnur þú 2 miða á MasterCard