Fréttablaðið - 08.08.2007, Qupperneq 40

Fréttablaðið - 08.08.2007, Qupperneq 40
KR getur komið sér úr botnsætinu í kvöld Nú eru búnar ellefu umferðir af Landsbankadeild karla og því hægt að fara lesa ýmislegt úr tölfræði deildarinnar. Eitt af því er hvenær leiksins liðunum gengur best, en Frétta- blaðið hefur farið yfir það hvenær liðin hafa skorað og fengið á sig mörkin í sumar. Þar sést að FH-ingar eru bestir á fyrsta hálftímanum, Valsmenn eru bestir á síðasta hálftímanum, Skagamenn skora liða mest í lok hálfleiks, Framarar byrja hálfleik liða verst en KR-ingar sofna á verðinum um miðbik hálfleiks og þar kemur einnig í ljós að Leifur Garðarsson heldur greinilega góðar ræður í leikhléi á meðan ekkert gengur hjá Fram og Val eftir þrumuræður Ólafs Þórðar- sonar og Willums Þór Þórssonar. FH-ingar byrja leikina liða best. Þeir eru með sjö mörk í plús á fyrsta hálftímanum (10-3) og eru einnig með bestu markatöluna á upphafskorteri beggja hálfleikja (+6, 10-4). FH-ingar eru bara með neikvæða markatölu í einum hluta leiksins en þeir eru með þrjú mörk í mínus á 31. til 45. mínútu (1-4). Valsmenn enda leikina best, þeir eru með 5 mörk í plús á síðasta hálftímanum (9-4) og eru einnig, ásamt Skagamönnum, með bestu markatöluna á lokakorteri beggja hálfleikja (+5, 10-5). Leikhlésræða Willums Þórs Þórssonar fer ekki vel í Hlíðarendapilta því Valsmenn eru bara með neikvæða markatölu í einum hluta leiksins, eru með þrjú mörk í mínus á 45. til 60. mínútu (2-5). Guðjón Þórðarson er greinilega með sitt lið í góðu formi því Skagamenn hafa skorað 12 af 21 marki sínum í lokakafla hálfleikj- anna, það er á milli 31. til 45. mínútu og á milli 76. og 90. mínútu. Skagamenn hafa þar af skorað sjö mörk á síðasta korterinu í fyrri hálfleik og eru þar með bestu markatöluna eða fimm mörk í plús. Leifur Garðarsson heldur greinilega bestu leikhlésræðurnar því Fylkismenn eru með bestu markatöluna á upphafskorteri seinni hálfleiks. Fylkismenn hafa fimm mörk í plús í þessum kafla leiksins og hafa enn ekki fengið mark á sig á 46. til 60. mínútu. Framarar byrja hálfleiki liða verst, en liðið er með átta mörk í mínus á milli 1. og 15. mínútu og á milli 45. og 60. mínútu. Framarar hafa enn ekki náð að skora á þessum tíma leiksins og eru með fjögurra marka verri markatölu en Skagamenn sem standa þeim næstir. KR-ingar eru með lélegustu markatöluna þegar kemur að miðbiki hálfleikjanna eða á milli 16. til 31. mínútu og á milli 61. og 75. mínútu. Á þessum tíma leiksins hefur KR-liðið aðeins skorað 1 mark en aftur á móti fengið á sig sjö mörk. Það eru hins vegar aðeins FH-ingar sem eru með betri markatölu en KR á síðustu 15 mínútum leikjanna en á þeim tíma leiksins hafa KR-ingar skorað sex mörk gegn þremur. Það hefur ekkert lið skorað fleiri mörk á þessum kafla leiksins. Sinisa Kekic hefur ekki látið árin 38 halda aftur af sér í sumar og það sem meira er er að hann er hættulegastur í lok hálfleikjanna þegar flestir myndu halda að farið væri að draga af gamla manninum. Kekic hefur skorað fimm af sjö mörkum sínum milli 31. til 45. mínútu og á milli 76. og 90. mínútu. Fréttablaðið hefur skoðað hvenær liðin í Landsbankadeild karla skora mörkin og á hvaða tíma leiksins þau eru með bestu markatöluna í fyrstu ellefu umferðum sumarsins. FH-ingar byrja best en Valsmenn enda best og hinn 38 ára gamli Sinisa Kekic er hættulegastur í lok hálfleiks. FH leikur í dag síðari leikinn við FC Bate frá Hvíta- Rússlandi í fyrstu umferð Meistaradeildar Evrópu. FH tapaði fyrri leiknum 3-1 á heimavelli og því er ærið verkefni sem bíður Íslands- meistaranna ytra í dag. „Við teljum okkur eiga möguleika á því að komast áfram þrátt fyrir að margir afskrifi okkur. Það sjá það allir að staðan er ekkert æðisleg, að fá á sig þrjú mörk á heimavelli var alls ekki nógu gott,“ sagði Matthías Guðmundsson, leikmaður í gær. „Við ætlum okkur að eiga góðan leik og veita þeim alvöru mótspyrnu. Við reynum að setja á þá mark snemma, hræða þá aðeins og svo er aldrei að vita hvað gerist,“ bætti Matthías við. Þungur róður fyrir FH ytra Árni Gautur Arason þótti standa sig best af þeim Íslendingum sem leika í norsku úrvalsdeildinni í 16. umferðinni sem lauk í fyrrakvöld samkvæmt einkunnagjöf fjögurra stærstu fjölmiðla í Noregi. Hann varði mark Noregsmeistaranna í Vålerenga í 2-0 sigri á toppliði Brann. Vålerenga hefur reyndar gengið skelfilega illa í sumar og situr í tíunda sæti deildarinnar. Helgin var reyndar ekkert allt of góð fyrir Íslendingana en enginn þeirra, nema Árni Gautur, fékk yfir 5 í meðaleinkunn. Árni Gautur þótti bestur Jaliesky Garcia, leikmaður Göppingen og íslenska landsliðsins, handarbrotnaði í æfingaleik með liði sínu um helgina. Ekki er ljóst hversu lengi hann verður frá vegna brotsins en ljóst er að hann æfir ekki á næstunni. Göppingen leikur sinn fyrsta leik í úrvalsdeildinni 25. ágúst. Meiðslasagan endalausa heldur því áfram hjá Garcia sem lék aðeins fimm leiki í þýsku úrvalsdeildinni á síðasta tímabili vegna erfiðra meiðsla. Garcia gat hvorki leikið með íslenska landsliðinu á Heimsmeistara- mótinu í Þýskalandi né í undan- keppni EM. Meiðslasagan heldur áframEggert Magnússon, stjórnarformaður West Ham, óttast að orðspor félagsins hafi beðið hnekki sökum farsans um Carlos Tevez. Klúbburinn hefur verið í brennidepli fjölmiðla vegna málsins en fyrir brot á félagaskiptareglum var hann sektaður um 5,5 milljónir punda. Margir vildu meina að félagið væri heppið að stig yrðu ekki dregin af því sem hefði getað leitt til falls þess niður um deild. Þessir efasemdaraðilar hafa farið hörðum orðum um klúbbinn. „Þetta særir mig af því klúbb- urinn hefur verið dreginn inn í þetta á neikvæðan hátt af sumum kollegum mínum. West Ham hefur verið dregið niður og mér finnst það ekki réttlátt. Þetta særir mest, af því það sem nokkrir aðilar segja ætti ekki að vera byrði alls félagsins,“ sagði Eggert. Meðal þeirra sem fóru offari í gagnrýninni voru forráðamenn Sheffield United sem leituðu allra leiða til að stigin yrðu dreg- in af West Ham. Það gerðu þeir í veikri von um að það myndi bjarga United frá óumflýjanlegu falli niður í Championship- deildina en aðeins þremur stigum munaði á félögunum í lok leik- tíðar. Tevez mun að öllum líkindum fá leyfi fljótlega til að spila með Manchester United en hann hefur þegar hafið æfingar með félag- inu. Óljóst er þó hvort hann geti spilað með Englandsmeisturun- um í fyrstu umferð úrvalsdeild- arinnar um næstu helgi. Sár yfir neikvæðni í garð West Ham

x

Fréttablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.