Fréttablaðið - 12.08.2007, Síða 4

Fréttablaðið - 12.08.2007, Síða 4
 Lögregla vinnur enn að rannsókn á máli mannsins sem fannst stórslasaður í Hraunbergi í Breiðholti fyrir viku. Lögreglan gerir ekki ráð fyrir að hægt verði að yfirheyra manninn á næstunni vegna ástands hans, og beinist rannsóknin því að öðru. Margeir Sveinsson hjá rann- sóknardeild umferðarmála segir að rætt hafi verið við fjölda fólks vegna málsins og að lögregla sjái fyrir enda rannsóknarinnar að einhverju leyti. Fjórir menn voru yfirheyrðir í byrjun viku grunaðir um að hafa ekið manninn niður, en síðan sleppt. Bíllinn var tekinn til frekari rannsóknar. Fórnarlambið ekki yfirheyrt Bresk kona fæddi eineggja þríbura á sjúkrahúsi í borginni Feldkirch í Austurríki á mánudaginn. Líkurnar á að fæða þríbura sem eru eineggja eru einn á móti 200 milljónum að sögn sjúkrahúsyfirvalda sem greindu frá fæðingunni í gær. Þríburarnir eru stúlkur og heita Amy, Kim og Zoe og voru teknar með keisaraskurði fyrir tímann. Þríburarnir, sem voru getnir eftir náttúrulegum leiðum án nokkurs konar frjósemismeðferð- ar, vógu hver 1.500 grömm og mældust fjörutíu sentímetrar að lengd við fæðingu. Móðirin er bresk kona sem býr í vesturhluta Austurríkis. Fram kom að börnunum heilsaðist vel en væru undir eftirliti á gjör- gæsludeild sjúkrahússins. Kona átti ein- eggja þríbura Rússneskar sprengjuflugvélar hafa flogið til Kyrrahafseyjunnar Guam, þar sem bandarísk herstöð er starfrækt. Þetta er í fyrsta sinn sem rússneskar flugvélar fljúga þangað síðan í kalda stríðinu, en þetta var gert í æfingaskyni, að sögn flughersins. „Í hvert sinn sem við sáum bandarískar þotur á leiðinni þá heilsuðum við þeim,“ sagði hershöfðingi hjá flughernum. Rússar flugu reglulega til Guam í kalda stríðinu, en þaðan hefðu þeir sent kjarnorkusprengjur ef til kjarnorkustríðs hefði komið. Flugu í æfinga- flug til Guam Öryggis- ráð Sameinuðu þjóðanna sam- þykkti einróma á fimmtudag að efla starfsemi Sameinuðu þjóð- anna í Írak. Ályktun Öryggisráðsins heimil- ar starfsfólki Sameinuðu þjóðanna að leggja sitt af mörkum til að sætta andstæða hópa í Írak og afla stuðnings frá nágrannaríkjum, auk þess að vinna að mannúðarað- stoð. „Sameinuðu þjóðirnar hlakka til að eiga náið samstarf með ráða- mönnum og almenningi í Írak til að kanna hvernig við getum veitt aukna aðstoð í samræmi við þessa ályktun,“ sagði Ban Ki-Moon, framkvæmdastjóri Sameinuðu þjóðanna að loknum fundi. Búist er við því að starfsfólki Sameinuðu þjóðanna í Írak verði fjölgað úr 65 í 95 á næstu mánuð- um, en þó er óljóst hvað úr því verð- ur vegna þess að starfsmannafélag Sameinuðu þjóðanna hefur skorað á Sameinuðu þjóðirnar að kalla allt starfsfólk sitt frá Írak vegna þess hve hættan þar er mikil. Öryggismál starfsmanna SÞ í Írak hafa lengi verið mjög við- kvæmt mál. Kofi Annan kallaði allt starfsfólkið heim frá Írak í október 2003 eftir að tvær spreng- ingar urðu í höfuðstöðum SÞ í Bag- dad. Í ágúst 2004 heimilaði Annan að 35 starfsmenn færu aftur til Íraks, en fjöldi starfsmanna þar hefur síðan verið í lágmarki af öryggisástæðum. Samþykkir aukið starf í Írak Stærðarinnar grjóthnullungur, líklega fjögur til fimm tonn að þyngd, féll á veginn undir Óshlíð milli Ísafjarðar og Bolungarvíkur aðfaranótt föstu- dags. Að sögn varðstjóra lögregl- unnar á Vestfjörðum var mikil mildi að enginn skyldi hafa átt leið um veginn þegar hrunið varð. Auk hnullungsins stóra féllu tveir minni steinar einnig á veginn. Vegurinn var hreinsaður og var grjótinu ýtt fram af vegbrúninni og út í sjó. Talsverðar skemmdir urðu á malbiki og vegriði. Töluvert hefur rignt undanfarið sem getur skýrt grjóthrunið. Risahnullungur skemmdi vegrið Hinsegin dagar náðu hámarki í gær með Gleðigöngunni. Talið er að á bilinu 50 til 60 þúsund manns hafi tekið þátt í hátíðarhöldunum. „Þetta fór allt saman vel fram og engan skugga bar á,“ segir Arnar Rúnar Marteinsson, aðalvarðstjóri hjá lögreglunni á höfuðborgarsvæð- inu. Mörgum götum í miðborginni var lokað vegna göngunnar en Arnar segir umferðina hafa gengið nokkuð vel fyrir sig. „Það var gott veður og fólkið vel upplagt þannig að allt gekk vel.“ Gleðigangan var fyrst haldin í Reykjavík árið 2000 og mættu um fimmtán þúsund manns í þá göngu. Gangan í ár var líklega sú fjölmenn- asta hingað til. Um þrjátíu atriði voru sýnd í göngunni að þessu sinni, þar á meðal mörg tónlistar- og dans- atriði. Einnig tóku þátt ýmsir hópar samkynhneigðra og stuðnings- manna þeirra. Þá var athygli vakin á mannréttindabrotum gegn sam- kynhneigðum víðsvegar um heim- inn. Að göngunni lokinni var skemmtidagskrá á Arnarhóli fram eftir degi. Hinsegin dögum lýkur í dag. Fjölmenn Gleðiganga Talið er að á bilinu 50 til 60 þúsund manns hafi tekið þátt í Gleðigöngu sam- kynhneigðra í miðborg Reykjavíkur í gærdag. Hátíðarhöldin fóru vel fram.
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92
Síða 93
Síða 94
Síða 95
Síða 96

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.