Fréttablaðið - 12.08.2007, Síða 6

Fréttablaðið - 12.08.2007, Síða 6
Sýslumannsembættið á Selfossi mun ekki senda kynferðis- brotahluta Byrgismálsins til Ríkis- saksóknara fyrr en í september. Þetta staðfestir Þorgrímur Óli Sigurðsson, yfir- maður rannsókn- ardeildar lög- reglunnar á Selfossi. Ólafur Helgi Kjartansson sýslumaður hafði áður sagt að til stæði að ljúka rannsókn um mánaðamótin síðustu. Að sögn Þorgríms reyndist örðugt að fá fólk í skýrslutöku, sem tafði rannsóknina, og að endingu hafi eini maðurinn sem að málinu vann farið í sitt lögbundna sumarfrí. Hann mun snúa aftur í september og ljúka málinu þá. Sýslumannsembættið skilaði málinu til Ríkissaksóknara eftir fimm mánaða rannsókn í vor en málinu var vísað aftur til sýslumanns í lok maí til frekari rannsóknar. Átta konur, sem allar höfðu verið vistmenn Byrgisins, kærðu Guðmund Jónsson, fyrrverandi forstöðumann, fyrir að hafa nýtt sér bágindi þeirra og aðstöðu sína til að eiga við þær kynferðissamband. Þá hefur saksóknari efnahagsbrota hjá Ríkislögreglustjóra til meðferðar svarta skýrslu Ríkisendurskoðunar sem gefur til kynna stórfellda óráðsíu í fjármálum Byrgisins. „Indverski fíllinn hreyfist mjög hægt, en hann kemst sínar leiðir,“ segir Elías Gunnarsson, ræðismaður Indlands á Íslandi. Ríkisstjórn Indlands hefur nú samþykkt að stofna sendiráð á Íslandi og vonast til að af því verði á þessu fjárhagsári. Dasmuni upplýsingaráðherra tilkynnti þetta að loknum ríkisstjórnarfundi á fimmtudag. Elías segir stofnun sendiráðs hafa verið í bígerð allt frá því að íslenskt sendiráð var opnað í Nýju-Delí. Á fundi fyrir skömmu lagði svo forsætisráðherra Indlands blessun sína yfir sendiráðið. Indverski fíllinn hreyfist hægt Íbúar við Sæmund- argötu 5 á Sauðárkróki eru óánægðir með að útibú Bílaleigu Akureyrar, sem er rekin úr hús- inu, teppi fimm af sjö bílastæðum fyrir framan húsið. Yfirlögreglu- þjónn bæjarins og konan hans reka bílasöluna, en hún var áður rekin úr lögreglustöðinni. Jóhanna Sturludóttir, sem á tvær íbúðir í húsinu, segist hafa misst leigjanda vegna bílastæða- skortsins. Hún hafi kvartað við Sísí Steindórsdóttur, sem rekur bílasöluna, en hafi fengið þau svör að hún yrði að leita til lögreglu. Maður hennar, Björn Mikaelsson, er yfirlögregluþjónn bæjarins og rekur bílasöluna með henni. Jóhanna segir yfirlögregluþjón- inn sitja beggja megin borðs. Óeðlilegt sé að hann stundi þessi vinnu samhliða lögreglustarfi. „Ég er búin að tala við lögfræð- ing um að gengið sé á okkar rétt,“ segir Jóhanna. „Við viljum bara fá okkar bílastæði.“ Hún segir for- stjóra Bílaleigu Akureyrar hafa lofað að íbúar fengju stæðin, en það hafi ekki geng- ið eftir. „Maður í opinberu starfi eins og yfirlög- regluþjónn á að sýna samborgur- um sýnum meiri virðingu og til- litssemi en aðrir,“ segir Jóhanna. Hún segist hafa beðið formlegra svara byggingafulltrúa vegna málsins síðan 10. maí. Íbúar ósk- uðu þess að mengandi starfsemi yrði ekki gefið starfsleyfi. Það var hunsað og fjórum dögum seinna hlaut bílaleigan starfsleyfi til árs- ins 2019. Björn rak bílaleiguna áður úr lögreglustöðinni og teppti bíla- stæðin hjá nálægum bóksala. Tekið var fyrir það. Þá flutti hann starfsemina. Ríkarður Másson sýslumaður staðfestir frásögn Jóhönnu. „Við getum ekki sem lögregluembætti haft afskipti af því hvernig menn nota bílastæði við húsin sín,“ segir Ríkarður. Sýslumaður segir vissulega óeðlilegt að yfirlögregluþjónn sé einnig í forsvari fyrir bílaleigu. „Það hafa verið gerðar ráðstafanir í sumar til að því linni,“ segir Rík- arður. Hann segir aðra munu taka við bílaleigunni. Ríkarður segir að áður hafi verið tekið fyrir að bílaleigan væri rekin út úr lögreglustöðinni. Það hafi hins vegar verið fyrir sína tíð í embætti sýslumanns. Ekki náðist í Sísí eða Björn við gerð fréttarinnar, en þau munu vera erlendis. Segir yfirlögregluþjón teppa flest bílastæðin Íbúi á Sauðárkróki segir bílaleigu teppa nær öll stæði við íbúð hans með bílum. Bílaleigan er rekin af yfirlögregluþjóni og konu hans. Hann rak bílaleiguna áður úr lögreglustöðinni, en það var stöðvað. Skipt verður um rekstraraðila bílaleigunnar. Hjallastefnan mun í ágúst opna leikskóla fyrir börn á háskólasvæði Keilis á gamla varnarsvæðinu í Reykjanesbæ. Leikskólinn hefur hlotið nafnið Völlur. Samningur á milli Hjallastefn- unnar, Reykjanesbæjar og Keilis um þetta var undirritaður á mið- vikudaginn. Ásamt leikskóla mun Hjalla- stefnan starfrækja grunnskóla fyrir börn á svæðinu sem sækja fyrsta til fjórða bekk. Eldri börn sækja nám sitt í aðra grunnskóla Reykjanesbæjar. Um 700 íbúar munu flytja á varnarsvæðið um miðjan ágúst. Leikskólinn fær nafnið Völlur Þórunn Sveinbjarn-ardóttir umhverfisráðherra þáði í vikunni boð heimamanna við Þjórsá og fór í kynnisferð með þeim upp með ánni. Þar gerðu heimamenn ráðherra grein fyrir ýmsum atriðum sem þeim þykja hafa gleymst í umræðunni um virkjanir í Þjórsá. Þórunn skoðaði sprungusvæði í Flóa og Gnúpverjar sýndu henni svæðið sem Landsvirkjun fyrirhugar að fari undir lón. Þórunn bætist nú í hóp Össurar Skarphéðinssonar iðnaðarráð- herra og Björgvins G. Sigurðs- sonar viðskiptaráðherra en þau hafa öll orðið við óskum fólksins sem býr við Þjórsá um að hitta fulltrúa landeigenda, sumarhúsa- fólks og Sólarsamtakanna og hlýða á þeirra viðhorf. Buðu ráðherra í heimsókn Ert þú ánægð(ur) með að Alfreð Gíslason ætli að þjálfa handknattleikslandsliðið áfram? Tókst þú þátt í gleðigöngu sam- kynhneigðra?
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92
Síða 93
Síða 94
Síða 95
Síða 96

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.