Fréttablaðið - 12.08.2007, Side 30

Fréttablaðið - 12.08.2007, Side 30
. Starfsmann í mötuneyti Starfsmann vantar í mötuneyti framhaldsskóla í Reykjavík Vinnutími 8:00 til 16:00 (eða samkomulag) Góð laun í boði. Umsækjandi þarf helst að vera orðinn 20 ára. Upplýsingar í síma 899 2959. Olíuverzlun Íslands hf. óskar að ráða kerfisstjóra í upplýsingatæknideild. Viðkomandi hefur tæknilega umsjón með rekstri tölvukerfa Olís og tekur þátt í stefnumótun og áætlanagerð í tengslum við þá starfsemi. Í boði er tækifæri til að vera þátttakandi í skemmtilegu en jafnframt krefjandi hópstarfi þar sem leitast er við að reka og þróa tölvukerfi í fremstu röð. Starfssvið Uppsetning og rekstur á netbúnaði, netþjónum og vinnustöðvum Rekstur staðarnets, víðnets og eldveggja Önnur tilfallandi verkefni innan deildarinnar Umhverfi Windows og AIX Cisco-beinar og eldveggur Navision og MS-SQL Posis-kassakerfi Menntun og hæfniskröfur Tölvunám úr Iðnskólanum eða sambærileg menntun Góð þekking á uppsetningum og rekstri á Windows- netþjónum og vinnustöðvum Grunnþekking á Cisco-beinum 2–3 ára reynsla af rekstri tölvukerfa Öguð og sjálfstæð vinnubrögð Hæfni í mannlegum samskiptum og rík þjónustulund OLÍS – við höldum með þér! Hjá Olís er lögð áhersla á góðan aðbúnað starfsfólks, stuðning til náms og heilsueflingar, heiðarleika í samskiptum, snyrtimennsku og fagleg vinnubrögð. Skrifstofur Olís eru að Sundagörðum 2 og þar starfa um 60 manns. Umsóknir þurfa að berast til starfsmannastjóra Olís fyrir 17. ágúst nk. og má annað hvort senda þær í tölvupósti til rbg@olis.is eða í pósti til Olíuverzlunar Íslands, b.t. starfsmannastjóra, Sundagörðum 2, 104 Reykjavík. Nánari upplýsingar um starfið veitir Kristín Þórdís Ragnarsdóttir, forstöðumaður upplýsingatæknideildar Olís, ktr@olis.is. Kerfisstjóri í upplýsingatæknideild Olís H im in n o g h af / S ÍA - 9 0 7 1 0 0 0 • • • • • • • • •

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.