Fréttablaðið - 12.08.2007, Side 82
S
teinunn Sigurðardóttir
er farsæll tískuhönnuð-
ur sem hefur unnið hjá
virtum hönnuðum eins
og Ralph Lauren, Calvin
Klein, Gucci og La
Perla. Fyrir nokkrum árum flutti
hún aftur til Íslands og setti á fót
eigin fatalínu sem heitir Steinunn.
„Þetta var mikið streð til að byrja
með en í fyrra gerði ég samning
við Baug og fékk fjármagn inn í
fyrirtækið mitt sem gerði mér
kleift að fá fleira starfsfólk. Það
segir sig sjálft að um leið og maður
er kominn með mannskap til að
hjálpa sér þá byrja hlutirnir að
rúlla.“ Steinunn hefur fengið afar
lofsamlega dóma í erlendu press-
unni, meðal annars í tímaritinu
Surface, In Magazine og á Style.
com, biblíu tískufíkla, en þar er
sagt: „Íslensk sköpun byrjar
hvorki né endar með Björk. Stein-
unn Sigurd mun koma með nor-
rænan og afar svalan mínimal-
isma inn í hitann í New York síðar
í mánuðinum.“ Tískuritið New
York Cool má ekki vatni halda yfir
fötum Steinunnar og lýsir þeim
svona: „Þau endurvekja dýrðar-
daga hátískunnar, blómin minntu
á hönnun Balenciaga og dásam-
lega sniðnir jakkar og kápur voru
í anda Dior á sjötta áratugnum.“
Steinunn verður með sýningu á
fötum sínum í stórversluninni
Takashimaya í New York í lok ágúst.
„Sýningin, sem nær yfir jarðhæð-
ina, mun opna með kampavíni og
miklu húllumhæi, þetta verður
alveg súper,“ segir Steinunn glöð í
bragði. En það er fleira spennandi
að gerast hjá Steinunni því hún
hefur opnað nýja og glæsilega
verslun að Laugavegi 40 sem hefur
fengið afbragðs viðtökur. „Lauga-
vegurinn er að breytast svo mikið
og þangað eru komnar mjög flottar
tískubúðir. Lífæð Reykjavíkur er
auðvitað þessi gata og því gat ég
ekki hugsað mér betri staðsetn-
ingu.“ Steinunn bætir við að öll
hönnun í búðinni sé íslensk, en þar
býður hún auk fatanna einnig upp á
húsgögn, listaverk og aðra hönnun.
„Ég er íslensk og mín fagurfræði er
íslensk. Þess vegna líður mér best
með að hafa allt íslenskt í kringum
mig.“
Um þessar mundir er Steinunn að
kynna fatalínu sína fyrir vor/
sumar 2008 en þar gefur að líta
daufa pastelliti eins og ýmsa gráa
tóna og fjólubláa, og efnin eru
aðallega siffon og silki. „Ég á
heima við sjóinn og eitt það falleg-
asta sem ég get hugsað mér er
þegar himinn og haf verða að
einum gráum óendanleika. En í
bland við gráu tónana nota ég
mynstur úr íslenskum blómum −
blýantsteikningar af hvönn og
eyrarrós, og notast líka mikið við
lit eyrarrósarinnar.“ Steinunn
hefur verið mjög virk við tísku-
deildina í Listaháskóla Íslands
undanfarin ár og segir skólann
hafa breytt öllu í tískulandslagi
Íslands. „Það eru miklu fleiri
ungir hönnuðir núna að spreyta
sig heldur en voru áður. Það er
Undir áhrifum himins og hafs
Íslenski ofurhönnuðurinn Steinunn Sigurðardóttir hlaut norrænu hönnunarverðlaunin á dönsku tískuvikunni sem er nýafstað-
in og má með sanni segja að merki hennar, Steinunn, sé að slá í gegn erlendis. Anna Margrét Björnsson náði af henni tali þegar
hún var nýstigin úr flugvél frá Kaupmannahöfn.