Fréttablaðið


Fréttablaðið - 12.08.2007, Qupperneq 90

Fréttablaðið - 12.08.2007, Qupperneq 90
512 5100 | SYN.IS | VERSLANIR VODAFONE Veljið menu og sjálfvirka leit. Sláið inn pin-númerið 0000 og ýtið síðan á OK hnappinn. Myndlykillinn leitar þá sjálfur að stöðvunum. Ýtt er þrisvar sinnum á OK hnappinn og þá á myndlykillinn að hafa raðað upp sjónvarpsstöðvunum. Athugið að Sýn 2 er á rás númer 10. UPPFÆRÐU MYNDLYKILINN OG SJÁÐU SÝN 2 Það er Titilvörn Englandsmeist- ara Manchester United hefst í dag þegar Ívar Ingimarsson og Brynj- ar Björn Gunnarsson fá það verð- uga verkefni ásamt félögum sínum í Reading að sækja þá heim. „Við sýndum það á síðasta tíma- bili að við getum unnið alla leiki. Við vitum að United hefur hafsjó af hæfileikum innan sinna raða og við þurfum að hafa okkur alla við,“ sagði Graeme Murty, fyrirliði Reading. Sir Alex Ferguson byrj- ar væntanlega með nýju kaupin sín, Carlos Tevez, Nani, Owen Har- greaves og Anderson á bekknum. Hann er ánægður með blönduna í hópnum sínum. „Það sem maður vill sjá hjá liði sem vann deildina síðast eru meiri yfirburðir, stöðugleiki og framfar- ir í spili þess. Við búumst við meira af yngri leikmönnunum en við erum líka með réttu menn hvað reynsluna varðar. Ég er því ánægður með blönduna í hópn- um,“ sagði Ferguson. Chelsea verður án John Terry, Michael Ballack og Wayne Bridge í leiknum gegn Birmingham en Didier Drogba er óðum að jafna sig af sínum meiðslum. Þá verður grannaslagur í Lundúnum þegar Arsenal og Fulham mætast þar sem Eduardo Da Silva mun leiða sóknarlínu Skyttanna. Ferguson vill sjá enn meiri framfarir Enska úrvalsdeildin: Leikir í dag: Enska 1. deildin: IFK Gautaborg rótburstaði Kalmar í sænsku úrvalsdeildinni í knattspyrnu í gær. Ragnar Sigurðsson og Hjálmar Jónsson spiluðu báðir allan leikinn í vörninni hjá IFK, Ragnar sem miðvörður en Hjálmar í vinstri bakvarðarstöð- unni. Hvorugur þeirra náði aftur á móti að skora. Með sigrinum færist IFK upp í þriðja sætið og kemst þar með upp fyrir Kalmar og Djurgården á betri markatölu. Stórsigur hjá IFK Gautaborg Mark frá Michael Chopra eftir 93 mínútur og þrjár sekúnd- ur, með nánast síðustu spyrnu leiksins, tryggði nýliðum Sunder- land sigur á Tottenham. Markið var það fyrsta í úrvalsdeildinni á leiktíðinni. Gamla kempan Roy Keane sýndi lítil svipbrigði við sigurmarkið og var hógværðin uppmáluð eftir leik. „Það er frábært fyrir okkur að byrja tímabilið á sigri. Leik- mennirnir stóðu sig frábærlega vel og þeir sýndu mikinn sigur- vilja,“ sagði Keane. Bæði lið höfðun fengið sín færi til að skora en Martin Jol, stjóri Tottenham, sagði leikinn hafa verið leiðinlegan. „Jafntefli hefði verið svekkjandi úrslit fyrir mig. Þetta var leiðinlegur leikur, en við náðum ekki einu sinni að halda fengnum hlut,“ sagði Jol. Sigurmark á 94. mínútu Steven Gerrard kom Liverpool til bjargar á ögurstundu í fyrstu umferð ensku úrvalsdeild- arinnar í gær. Eftir að hafa komist yfir jafnaði Villa en hinn magnaði fyrirliði skoraði stórbrotið mark beint úr aukaspyrnu og tryggði Liverpool öll stigin. Eftir að Fernando Torres hafði brennt af einn á móti markmanni sendi Dirk Kuyt fyrir þar sem varnarmaðurinn Martin Laursen steingleymdi hvorum megin vall- arins hann var og setti boltann snyrtilega upp í þaknetið á eigin marki. Leikurinn var í járnum þar til á lokamínútunum sem voru fjörleg- ar. Villa fékk víti sem Gareth Barry skoraði úr. Allt leit út fyrir jafntefli þegar Gerrard tók auka- spyrnu af um 30 metra færi, setti hana glæsilega yfir varnarvegg- inn og upp í samskeytin og tryggði Liverpool sigur. „Við áttum sigurinn skilinn og við sýndum mikinn karakter með að koma til baka eftir markið. Við sköpuðum okkur nóg af færum og mér fannst Torres standa sig mjög vel, hann fann sig vel með Kuyt,“ sagði Rafael Benítez eftir sigur- inn. Heiðar Helguson kom inn á sem varamaður á 58. mínútu í 1-3 tapi Bolton fyrir Newcastle. Sam All- ardyce sýndi að hann þekkir enn vel til hjá Bolton eftir að hann færði sig um set til Newcastle í sumar en þrjú mörk á fimmtán mínútum í fyrri hálfleik gerðu út um leikinn. Obafemi Martins fór á kostum í leiknum og skoraði tvö mörk, annað þeirra með glæsi- legri bakfallsspyrnu. Hermann Hreiðarsson lagði upp annað mark Portsmouth í 2-2 jafn- tefli gegn Derby. Hermann skall- aði þá boltann fyrir fætur Johns Utaka sem kom aðvífandi og þrumaði boltanum í netið en aðeins mínútu síðar svaf Portsmouth á verðinum og Derby náði að jafna. Hermann lék allan leikinn í stöðu vinstri bakvarðar. Portsmouth lenti í miklum vandræðum í leikn- um og stjórinn Harry Redknapp var ánægður með stigið. „Ég vona að við spilum ekki svona gegn Manchester United því þá hefðum við farið heim með rótburst á bakinu. Þetta verður langt og strangt tímabil og ef við náum að vera í efri helmingi deild- arinnar þegar henni líkur yrði það magnað afrek,“ sagði Redknapp. Eggert Magnússon var ekki upplitsdjarfur eftir slæmt tap West Ham gegn Manchester City á heimavelli. City vann leikinn 2-0 og West Ham náði sér aldrei á strik í leiknum. Tveir nýliðar skor- uðu mörk City. „Þetta var ótrúlega slök frammistaða. Fyrir utan Green í markinu held ég að enginn af leikmönnum mínum geti sagst hafa staðið sig ágætlega í leikn- um,“ sagði Alan Curbishley, stjóri Hamranna. Liverpool vann fyrsta sigur sinn í fyrstu umferð Úrvalsdeildarinnar í sjöttu tilraun þegar liðið lagði Aston Villa. Heiðar Helguson og Hermann Hreiðarsson spiluðu báðir fyrir sín nýju lið, en West Ham átti dapran leik og tapaði. Framherjinn Henry Nwosu verður hugsanlega ekkert meira með Fram í sumar vegna meiðsla. Nwosu spilaði aðeins í átta mínútur með Fram en hann meiddist í sínum fyrsta leik í sumar, gegn ÍA síðasta fimmtu- dag og er óttast að hann sé með slitið krossband. Þetta er enn eitt áfallið fyrir Fram sem er í erfiðri stöðu við botn deildarinnar. Ekki meira með Fram í sumar?
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76
Qupperneq 77
Qupperneq 78
Qupperneq 79
Qupperneq 80
Qupperneq 81
Qupperneq 82
Qupperneq 83
Qupperneq 84
Qupperneq 85
Qupperneq 86
Qupperneq 87
Qupperneq 88
Qupperneq 89
Qupperneq 90
Qupperneq 91
Qupperneq 92
Qupperneq 93
Qupperneq 94
Qupperneq 95
Qupperneq 96

x

Fréttablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.