Fréttablaðið - 12.08.2007, Page 94

Fréttablaðið - 12.08.2007, Page 94
Stórtenórinn Garðar Thor Cortes, sem þrívegis hefur verið kjörinn kynþokkafyllsti karlmaður lands- ins, er nú giftur maður. Hann gekk að eiga unnustu sína, leikkonuna Tinnu Lind Gunnarsdóttur, á laug- ardaginn í Fríkirkjunni. Athöfnin þótti látlaus og falleg en það var aðventistapresturinn sr. Björgvin Snorrason sem gaf hjónakornin saman. „Þau voru nú ekkert að halda þessu leyndu en þau eru bara eins og þau eru, líða bara um saman og gera það sem þarf að gera,“ segir stoltur faðir brúðgum- ans, Garðar Cortes. Að athöfninni lokinni var síðan haldið út í Viðey þar sem mikilli veislu var slegið upp. Tónlistin var að sjálfsögðu veiga- mikill þáttur í athöfninni en skóla- systir Tinnu, Sara Guðmundsdótt- ir, söng tvö lög fyrir parið og síðan mætti Jón Kristinn Cortes, frændi Garðars, með Karlakórinn Þresti úr Hafnarfirði. Systir Garðars Thors, Nanna María, söng svo eitt lag með þeim við góðar undirtektir viðstaddra. „Reyndar stóð til að önnur söngkona yrði með þeim en hún forfallaðist og því hljóp Nanna bara skarðið,“ segir Garðar. Parið beið síðan ekki boðanna heldur skellti sér í brúðkaupsferð til Bandaríkjanna þar sem það ætlar að dveljast þar til Garðar Thor snýr aftur á svið en hann syngur meðal annars á afmælis- tónleikum Kaupþings á Laugar- dalsvelli 17. ágúst. Garðar og Tinna Lind hafa verið saman í ein sex ár en í viðtali við Sirkus fyrr í sumar sagði Tinna að þau hefðu fyrst kynnst á rölti í miðbæ Reykjavíkur. Tinna bar þá trúlofunarhring en vildi ekki gefa upp hvort þau hygðust láta pússa sig saman. Nú hefur sá draumur hins vegar orðið að veruleika. Tinna lýsti því einnig yfir að hún hygðist flytjast út til Bretlands í júní til að geta verið nær eigin- manni sínum þegar allt fer á flug á nýjan leik í haust. Suðurlandsskjálftinn mestu vonbrigðin „Þetta hefur gengið glimrandi vel. Við erum búin að vera í tökum í hálfan mánuð og ætli við verðum ekki hérna út ágúst,“ segir kvik- myndaleikstjórinn Baltasar Kor- mákur en eins og komið hefur fram í Fréttablaðinu er hann staddur úti í Flatey þar sem verið er að taka upp kvikmyndina Brúðgumann. Fyrstu fréttir í fjölmiðlum bentu til þess að Brúðguminn væri hálf- gert „gæluverkefni“ Baltasars, frekar lítil og nett mynd á mælikvarða leikstjór- ans, en Baltasar getur þó ekki tekið undir það. Þannig sé heildar- kostnaðurinn við gerð myndarinnar sá sami og var við Mýrina eða 160 milljónir íslenskra króna. „Vissulega hefur Brúðguminn aðeins undið upp á sig en þegar við fórum að kafa betur ofan í hand- ritið sáum við að það var annaðhvort að gera þetta af fullum krafti eða sleppa þessu bara,“ segir Baltas- ar, sem skrifar handritið að myndinni ásamt Ólafi Agli Egilssyni. Eins og Fréttablaðið greindi frá hefur Kvik- myndamiðstöð Íslands nú úthlutað styrkjum til íslenskra kvikmynda og þar fékk Brúðguminn 63 milljónir. Athygli vakti hversu háar fjárhæð- irnar voru en kvikmyndin Brim í leikstjórn Árna Ólafs Ásgeirssonar fékk til að mynda sextíu milljónir og Hátíð í bæ eftir Hilmar Oddsson 50 milljónir. Til glöggvunar má nefna að Mýrin fékk 45 milljónir úr sjóðnum á sínum tíma. Baltasar segir eðlilega ástæðu fyrir þessu. „Styrkirnir hafa hækkað enda hefur það verið yfirlýst stefna sjóðsins að vera með fjörutíu pró- sent fjármagns af heildarkostnaði myndanna,“ útskýrir leikstjórinn. Brúðguminn er engin smámynd „Aldurstakmarksumræðan fannst mér frekar súr. Ég er alls ekki hlynntur svona takmarki, hvað þá umræðunni að hafa þetta í miðbænum. Það ætti frekar að taka á því að 18 ára krakkar fara inn á skemmti- staði. Svo fannst mér líka sjokk- erandi að ólögráða stelpa var í för með þrítugum karlmanni að smygla kókaíni innbyrðis.“

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.