Tíminn - 04.01.1981, Blaðsíða 4

Tíminn - 04.01.1981, Blaðsíða 4
4 Sunnudagur 4. janúar 1981 •••í spegli tímans Hafmeyjan og prinsinn Andrew prins er hinn myndarlegasti ungur maöur. Hann hefur oröið aö kynnast lífinu I hernum. Lengst hefur hann veriö í sjó- hernum.en hérsjáum viöhann f herinannabúningi þar sem hann er aö fara aö æfa fallhlifastökk •:••• ' K'. . Gemma Curry kemur á balliö meö prinsinum. Vírgrind var notuö undir „kuöungsgreiösluna” I mörg ár hefur mikið veriö bollalagt um það i Bretlandi hver verði eiginkona Karls Bretaprins, enda er von á þvi, að konungshollur almenningur þar i landi hafa áhuga á þvi hver verði næsta drottning i landinu. Andrew prins hefur ekki eins verið umtalaður i sambandi við væntan- lega giftingu, en hinn glæsilegi ungi maður má nú orðið varla láta sjá sig með stelpu svo ekki fari allir aö stinga saman nefjum um að hann sé liklega trúlofaður. Snemma á árinu 1980 kynntist Andrew prins sýningar- stúlkunni Gemmu Curry sem er mjög þekkt i Bretlandi. Hún er 22, ára en prinsinn tvitugur. Með þeim tókst góður kunningsskapur, og nú nýlega, þegar Módelsamtökin i London héldu árshátið, þá var Andrew herrann hennar á ballinu. Þau vöktu auðvitað heilmikla athygli, og ekki sist vegna þess að Gemma var i mjög frumlegum hafmeyjar- búningi og með hárið uppsett eins og kuöung. Gárungarnir sögðu, að prins Andrew sem undanfarið hefur veriö i sjó- hernum, heföi uppgötvað hið forna Atlantis, landið sem sögur segja að sokkið hafi i sæ fyrr á öldum. Þar hafi hann numið á brott prinsessuna en hvort hann fær hálft rikið fylgir ekki sögunni. bridge Það kemur fyrir bestu spilara að vera eitthvaöutan viðsig þegar þeir taka spilin sin upp og sortéra vitlaust. Svoleiöis lagað leiðir oft til undarlegra sagna og spila- mennsku og ótrúlega oft detta þessir „prófessorar” i lukkupottinn. I spili dags- ins náði spilarinn i austur snilldarvörn gegn 4 spöðum einmitt vegna svona slyss. Norður. S. A65 H.KG4 T. 987 L. AD82 A/Enginn Vestur. Austur. S.743 S.82 H.D872 H. 10953 T.AK32 T.DG106 L.G3 Suður. S. DG109 H. A6 T. 54 L. K10765 L.K94 Einsog sést eru tveir laufakóngar í spil- inu en það hafði sinar eðlilegu skýringar. Austur hafði einfaldlega sett spaöakóng- inn með laufunum. Suður spilaði 4 spaða eftir aö vestur hafði opnað I þriðju hendi á einum tigli. Vestur spilaði út tigulás og kóng og þriðja tiglinum sem suður tromp- aði. Hann spilaði spaðadrottningu og hleypti henni og austur lét auðvitað lftiö. Siðan kom spaðagosi og enn lét austur lit- iðenda vissi hann ekki af spaðakóngnum. Þá lá staðan ljós fyrir suöri. Vestur átti auðvitað K7 f spaða og nú gat suður spilað laufunum þangað til vestur trompaði með sjöunni. Ef vestur spilaði þá tigli til baka gæti suður trompaö heima, farið síðan inni borð á hjartakóng og tekið sfðasta trompiö með ásnum. Hann spilaöi þvf laufi á drottningu og austur ætlaði að fara aö taka slaginn með kóng þegar hann sá alltíeinu hvers kyns var. Hann setti því fjarkann i staöinn, frekar óhress yfir að hafa hent svona frá sér slag. Suður tók ekkert eftir kvalasvipnum á austur, og spilaði þvi laufi heim á kóng og þriðja laufinu. Vestur trompaði steinhissa með sjöunni og austur henti tigli. Og þegar vestur spilaöi tigli til baka gat austur trompað með kóngnum og vörnin var skyndilega komin með 4 slagi I spili sem alltaf hlaut að standa ef austur tekur á spaðakónginn sinn á skikkanlegum tfma. — Það er söfnun i gangi fyrir Stinu vinkonu, hún er i blankara lagi i bili. Með morgunkaffinu — Sprakk á bílnum hjá þér? Þaö er engin afsökun fyrir að koma of seint, þú heföir bara getaö fariö fyrr af staö... - — - /. / /// - '~rT 7 / / / Eru maðkamir sprelllifandi i dag? Hættu strax, Gunna. Þetta er ekki dýra- ?arður.

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.