Tíminn - 04.01.1981, Blaðsíða 9
Sunnudagur 4. janúar 1981
9
Islendingar sem látist hafa af slysförum:
Færri í ár
en í fyrra
FRl — Heldur færri
Islendingar létust af slysförum i
ár heldur en i fyrra eöa 82 nú a
móti 86 i fyrra. Samkvæmt
skýrslu SVFÍ þá létust i ár 31 við
sjóslys og drukknanir á móti 29 i
fyrra. 1 umferðarslysum létust nú
26 á móti 27 i fyrra og i ýmsum
banaslysum létust nú 21 á móti 28
i fyrra.
Flest urðu banaslysin i febrúar
eða 15.
Jón Júlíusson deildar-
stjóri í viðskiptaráðuneyti
AM — Jón Júliusson, fyrrum
starfsmannastjóri Flugleiða,
hefur nú hafið störf sem deildar-
stjóri i viðskiptaráðuneyti og mun
einkum hafa með höndum oliu-
mál.
Jón lét sem kunnugt er af störf-
um hjá Flugleiðum á sl. ári, á-
samt fleiri yfirmönnum þar ,
þegar kom til mikilla uppsagna
og skipulagsbreytinga hjá flug-
félaginu.
Svensk Bilproving:
Volvo endingarbestur
— meöalaldur 18,7 ár á tímabilinu
1965-79
FRI — í hinni árlegu skýrslu
Svensk Bilproving, þar sem hinar
ýmsu tegundir bíla eru rann-
sakaður með tilliti til gæða
kemur fram að á timabilinu 1965-
79 hefur Volvo verið endingar-
bestur með meðalaldurinn 18,7
ár.
Mercedes Benz er i öðru sæti
með 16 ára meðalaldur og i þriðja
sæti er Volkswagen með 14,9 ár.
Ennfremur kemur fram i
skýrslunni að á seinni helmingi
sjöunda áratugsins og fyrstu
árum þess áttunda hafi ending
bila almennt náð 14 árum og sú
ending hefur haldið sér nokkuð
jafnt fram á þennan dag.
Það skal tekið fram að þetta á
viö bila i Sviþjóð en reikna má
með að þessar tölur séu eitthvað
lægri hér vegna lélegri vega.
Aðlögunar-
tími verð-
tryggingar
sparifjár
lengdur
Vextir af gengisbundnum
afurðalánum lækkaðir
Tilmæli
til viöskiptamanna
banka og sparisjóöa
Vinsamlegast greiðið fyrir gjaldmiðilsskiptum með
því að halda gömlu og nýju krónunum aðskildum
í öllum greiðslum.
Útbúnir hafa verið sérstakir fylgiseðlar til útfyll-
ingar fyrir innborganir eða skipti á gömlum
seðlum og mynt.
Bankar og sparisjóóir
íL^iLlL %r Ll>ÍLlili
DATSUN
GAFFALLYFTARAR
Diesel 3 tonn Rafmagns 2,5 tonn
Mest se/du /yftarar á Norðurlöndum
AB — Nú um áramótin rann út
aðlögunartimi verðtryggingar
sparifjár og iánsfjár, samkvæmt
ákvæðum laga um stjórn eína-
hagsmála. Rikisstjórnin hefur til-
kynnt Seðlabankanum, að hún
hafi ákveðið framlengingu aðlög-
unartimans út árið 1981. Þvi
kemur ekki til áfangabreytingar
almennra vaxta að svo stöddu.
Frá upphaíi árs 1979 hafa
afurðalán út á útílutningsfram-
leiðslu verið bundin gengi dollars,
en borið lága vexti, eöa 8.5% til
viðskiptabanka, og 7.5% i endur-
kaupum Seðlabankans. Var upp-
haflega gert ráð fyrir að munur-
inn á þessum lánskjörum og al-
mennum lánskjörum jafnaöist
fljótlega. Þar sem svo hefur ekki
orðið verður að gera sérstakar
ráðsUafanir til þess aö iþyngja
ekki útflutningsatvinnuvegunum
umfram aðrar atvinnugreinar.
Að höfðu samráði viö bankaráö
og að fengnu samþykki rikis-
stjórnarinnar hefur bankastjórn
Seðlabankans ákveðið að lækka
vexti af gengisbundnum afurða-
lánum úr 8,5% i 4. Samsvarandi
vextir af endurlánum Seðlabank-
ans lækka jafn mikið, eða úr 7,5%
i 3.0%. Gildir þessi ákvöröun
afturvirkt frá og með 21. septem-
ber 1980.
Hafið samband við sölumenn okkar, sem gefa allar
nánari upplýsingar
Af sérstökum ástæðum eigum við þessa tvo gaffallyftara
til afgreiðslu strax á mjög góðu verði (gamalt tollgengi)
Datsun •©• umboðið
INGVAR HELGASON
Vonarlandi við Sogaveg Simi 33560