Tíminn - 04.01.1981, Side 5

Tíminn - 04.01.1981, Side 5
Sunnudagur 4. janúar 1981 5 Fjaðrafok út af lífeyr- isgreiðslum til sænskra hálauna- manna í fullu starfi á hæstu launum H ægr i m a ðu ri n n Sven Johansson, landshöfðingi i Umea i Sviþjóð, er fimmtiu og eins árs gamall. Embættislaun hans eru jafnvirði tuttugu og sex þúsund islenzkra nýkróna, talsvert ofan við sænsk ráð- herralaun. En auk þess fær hann greiddan lifeyri, bæði frá borg og þingi, svo að fastar tekj- ur hans af opinberu fé eru um fjörutiu og fimm þúsund islenzkar nýkrónur á mánuði. Hverju sætir þetta? Jú, Sviar voru mikil uppgangsþjóð (og eru meðal fremstu þjóða heims) og þegar velgengni jókst ár frá ári og ekkert lát virtist ætla að verða á svonefndum hagvexti, fannst stjórnmálamönnum timi til þess kominn að gera vel við sjalf sig. Akveðið var að þeir, sem átt höfðu setu á þingi, eða borgarstjórn skyldu njóta lif- eyris, er þeir hyrfu þaðan, og um þaö settar reglur. Þetta skyldi falla mönnum i skaut á hvaða aldri sem þeir voru og að hvaða störfum sem þeir sneru sér. Rökstuðningurinn var sá, að þetta yrði að gera i þágu lýð- ræðisins. Menn, sem fórnuðu fyrri störfum og framavonum þar vegna stjórnmálanna, yrðu að hafa allt sitt á þurru — einnig þótt þeir reyndust ekki til lang- lifis bornir við stjórnmálin. Nú eru Sviar komnir i mestu ógöngur meö rausn sina. Opin- berar álögur þykja geigvænleg- ar og sá kostnaöur, sem hlaðizt hefur á rikið og sveitarfélögin, er farinn að vaxa mörgum manninum i augum. Nú um skeið hefur þess verið leitaö með logandi ljósi, hvar sneiða má af rekstrarkostnaði, án þess að sérlegur skaði sé skeður fyrir þjóðfélagið, fótum hefur verið stungið við og aö þvi gengið að vinda heldur ofan af snældunni. Þegar svo er komið, beindist athyglin að þeim furðulega lif- eyri, sem fjölda manns, sem skolazt hafa út úr röðum virkra stjórnmálamanna, er nú greiddur. Landshöfðinginn i Umea er aöeins dæmi, um hvernig þessar lifeyrisgreiðslur eru i framkvæmd. Hópar manna i æðstu embættum, þar sem hæst laun eru greidd, hafa tvöfaldan lifeyri eins og lands- höfðinginn, þingmenn, sem áöur voru einnig i borgarstjórn fá lif- eyri i ofanálag á þingmanns- tekjurnar, og jafnvel fólk á milli fertugs og fimmtugs ber stórfé úr býtum meö sama hætti og mun gera það til æviloka að öllu óbreyttu. Lars Ahlvarsson úr jafnaðar- mannaflokknum, deildarstjóri hjá sambandi sveitarfélaga, 46 ára, hefur upp undir tuttugu og átta þúsund nýkrónur i em- bættislaun, og fær ofan á það tólf þúsund krónur i lifeyri á mánuði. Ulf Adelsohn sam- göngumálaráðherra, 39ára með tuttugu og fimm þúsund króna ráðherralaun á mánuði, fær yfir tólf þúsund krónur að auki i lif- eyri frá borgarráöinu. Paul Grabö, 62 ára þingmaður úr Miðflokknum, fær á fimmtánda þúsund krónur i þingmanns- laun, en hærri fjárhæð i lifeyri frá borgarráði. Lennart Blom, 55 ára þingmaöur úr röðum hægrimanna, er i sömu sporum. Nú er svo háttað, að fólki er heimilt að afsala sér þessum lif- eyri, bæöi fyrir fullt og allt og um stundar sakir, ef það gegnir hálaunuðum störfum. En þaö hefur ekki verið sérstök ásókn i það að losna við hann. Við leit hafa fundizt tvö dæmi. Erik Huss, þjóðflokksmaður, hafnaöi lifeyrinum, er hann var i há- launuðu starfi hjá Dagens Ny- heter, og Ake Pettersson, mið- flokksmaður, afsalaöi sér hon- um, er hann var settur i hálaunastarf i félagsmála- ráðuneytinu. Sitthvaö hefur komiö i ljós siðan fariö var aö kanna þessar lifeyrisgreiðslur. Sumir hafa til dæmis boriö að það, sem eftir verður, þegar skattur hefur ver- ið greiddur af lifeyristekjunum, renni i flokkssjóð. Sú vitneskja hefur ekki hleypt góðu blóöi i fólk, sem samstundis segir sem svo: Fyrst ákveða flokkarnir þessar greiöslur af almannafé með samkomulagi sin á milli, og siðan hiröa þeir sjálfir af- raksturinn, þar sem þeir koma þvi við. Almenningurinn i Sviþjóð, er ekki ofhaldinn af þeim ellilif- eyri, sem honum er látinn i té. Frá sjónarmiöi fólks sem á hann i vændum og annaö ekki, er dæmið auðsett upp: Viö erum skattlögð alla ævi og af okkur tekið fé i alls konar sjóði, og þegar kemur að leiöarlokum fá- um við ekki nema skorinn skammt. En viö erum fullgóö til þess að standa undir sjálftekn- um „lifeyri” handa mönnum, sem eru i fullu fjöri og á hæstu launum, sem þekkjast I þjóð- félaginu. Það fjaörafok, sem oröiö hef- ur út af þessu, hefur leitt til þess að nefnd manna hefur verið skipuð til þess að gera tillögur um það, hvernig dregiö verði úr þessum óeölilegu lifeyris- greiöslum. En hún þykir nokkuð sein i svifum, enda i henni sumir þeir sem fá greiddan lifeyri ofan á embættislaun. Þessir menn gangast að visu við þvi i blaða- viðtölum, að sá háttur, sem nú er á þessum málum i Sviþjóö, geti ekki gengið til langframa. En það er hægara I að komast en úr að vikja, og nefndin telur ógerlegt, aö hún hafi tillögur sinar tilbúnar fyrr en næsta haust og engar likur á ákvöröun stjórnvalda fyrr en árið 1982. Þannig sigur Tiber seint og þungt I ægi. Má bjóða þér SUMARHÖLL eða kannski nýjan FARKOST? Hver slær hendinni á móti slíku boöi? Hvaö þá, þegar allt sem þarf til þess aö eiga þessa möguleika, er aö vera áskrifandi aö Vísi? í AFMÆLISGETRAUN VÍSIS, sem er í senn létt og skemmtileg, og er bædi fyrir nýja og eídri áskrifendur, eru þessir þrír glæsilegu vinningar: 1 Aöalvinningurinn er svo auövitaö Vísir sjálfur, sem nú er oröinn stærri, skemmtilegri og fjölbreyttari en nokkru sinni fyrr! Verið með frá byrjun! Gerixt áskrifendur strax i dag! vísm Áskriftarsíminn er 86611

x

Tíminn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.