Tíminn - 04.01.1981, Side 6
6
Sunnudagur 4. janúar 1981
Mw
Utgcfandi: Framsóknarflokkurinn.
Framkvæmdastjóri: Jóhann H. Jónsson. Auglýsingastjóri:
Stcingrfmur Gislason. Skrifstofustjóri: Jóhanna B. Jóhannsdótt-
ir. Afgreiöslustjdri: Siguröur Brynjólfsson. —'Ritstjórar: Þórar-
inn Þórarinsson, Jón Helgason, Jón Sigurösson. Ritstjórnarfull-
trúi: Oddur V. Ólafsson. Fréttastjóri: Kristinn Hallgrimsson.
Biaöamenn: Agnes Bragadóttir, Atli Magnússon, Bjarghildur
Stefánsdóttir, Friörik Indriöason, Friöa Björnsdóttir
(Heimilis-Timinn), Heiöur Heigadóttir, Jónas Guömundsson
(Alþing) Kristin Leifsdóttir, Ragnar örn Pétursson <Iþróttir),.
Ljósmyndir: Guöjón Einarsson, Guöjón Róbert Ágústsson.
Myndasafn: Eygló Stefánsdóttir. Prófarkir: Flosi Kristjánsson,
Kristin Þorbjarnardóttir, Maria Anna Þorsteinsdóttir. —
Ritstjórn, skrifstofur og auglýsingar: Siöumúla 15, Reykjavik.
Simi: 86300. Auglýsingasimi: 18300. Kvöldsimar: 86387, 86392. —
Verö i lausasölu: 3,50. Askriftargjald á mánuöi: kr. 70,00. —
Prentun: Blaöaprent h.f.
Spurt um viðbrögðin
Það er augljóst mál að mjög verulegum árangri
má ná með íramkvæmd þeirra efnahagsráðstafana
sem rikisstjórnin boðaði nú um áramótin. Með
þessum ráðstöfunum má ná marktækum áfanga i
baráttunni við verðbólguna án þess að atvinnuleysi
fylgi i kjölfarið.
Augljóslega eru aðgerðirnar málamiðlun milli
mismunandi sjónarmiða stjórnarflokkanna i ein-
stökum atriðum og bera þess merki að komið hefur
verið til móts við flest meginsjónarmið. Þannig
munu margir iramsóknarmenn reyndar telja, að i
ýmsum atriðum hefði átt að taka enn þá fastar á
málunum en ráð er fyrir gert. En þar er það að
sönnu gamla sagan, að enginn fær allt sitt fram i
samstaríi.
Nú veltur allt á þvi hver viðbrögð áhrifaafla utan
stjórnarráðsins verða. í áramótaávarpi sinu hét
forsætisráðherra á menn að taka nú höndum saman
og tryggja þannig greiða og árangursrika fram-
kvæmd þeirra aðgerða sem óhjákvæmilegar eru til
þess að bæta úr ástandi efnahagsmálanna og verja
fólkið enn frekari áföllum, um leið og nýjum gjald-
miðli eru sköpuð skilyrði til festu og stöðugleika.
Festa og stöðugleiki eru mjög mikilvægar for-
sendur til þess að almenningur fái þegar i upphafi
traust á nýkrónunni og um leið á aðgerðum stjórn-
valda. i samræmi við þetta leggur rikisstjórnin upp
i nýja árið með harðri verðstöðvun og stöðvun
gengissigsins sem einkennt hefur gjaldeyrismálin
um langt skeið. Aðeins þessi tvö atriði eru mjög
mikilsverð, og framkvæmd þeirra getur ráðið um
það úrslitum hvort launþegarnir sætta sig við að
verðbætur á laun verði skertar verulega 1. mars
næstkomandi. Á hinn bóginn er framkvæmdin mjög
vandasöm, ef komast á hjá erfiðleikum i atvinnu-
rekstrinum, svo að rekstrarstöðvanir séu þá ekki
nefndar, vegna þess að ekki fáist viðurkenning á
rekstrarkostnaðinum i verðlaginu.
Hver maður getur séð, að þannig er reynt að
skipta byrðunum milli stétta og hagsmunahópa i
samfélaginu, og hvernig svo sem til hefur tekist
hefur það verið markmið stjórnarinnar að skipta
réttlátlega. Hlutur hins opinbera hefur ekki heldur
gleymst, og gert er ráð fyrir þvi, að til komi annars
vegar lækkanir skatta og hins vegar auknar fjöl-
skyldubætur til þeirra sem minnstar tekjur hafa.
Og nú verður á næstunni spurt hver verði við-
brögð áhrifaaflanna utan stjórnarráðsins. Augljós-
lega geta samtök launamanna með harðvitugum
aðgerðum komið i veg fyrir að ráðstafanirnar skili
þeim árangri að verðbólgu lægi verulega þegar
kemur fram á árið. Hið sama verður sagt um sam-
tök vinnuveitenda ef þau telja ekki að skerðing
verðbóta 1. mars nægi upp i fullar visitölubætur i
sumar, þangað til samið hefur verið um visitölu-
kerfi i frjálsum samningum.
Við þessar aðstæður er ábyrgð stjórnarandstöð-
unnar mikií, eoda gætir áhrifa hennar mjög bæði i
launþegasamtökum og samtökum vinnuveitenda.
Svo einkennilega vill til, að af óskyldum ástæðum
virðast horfur stjórnarandstöðunnar eitthvað vera
að glæðast i þinginu, en þeim mun fremur verður
spurt hvort verði ofan á: ábyrgðartilfinning og
virðing fyrir þjóðarheill — eða þrengstu flokks-
sjónarmið og löngunin til að koma höggi á forsætis-
ráðherra.
JS
Þórarínn Þórarínsson:
Erlent yfirlit
Verður Duarte forseti
9 árum of seint?
Herinn svipti hann völdum 1972
ARIÐ 1972 fóru fram forseta-
kosningar i E1 Salvador. Fram-
bjóðandi nýstofnaðs flokks
kristilegra demókrata, Jose
Napoleon Duarte, bar sigur úr
býtum. Til þess kom þó ekki að
hann tæki viö embættinu.
Yfirmenn hersins höföu stutt
annan frambjóðanda. Þeim
leizt illa á Duarte sem forseta.
Hann hafði boðaö róttækar
breytingar. Þeir gripu þvi i
taumana, hnepptu Duarte i
fangelsi og sendu hann sfðan I
útlegö.
Duarte var I útlegö þangað til
i fyrrahaust, þegar nýir hers-
höfðingjar ráku hægri sinnaðan
hershöfðingja frá völdum og
mynduðu stjórnarnefnd, sem
átti að beita sér fyrir marghátt-
uðum umbótum.
Stjórnarnefndinni hefur ekki
tekizt eins vel og skyldi. Bæöi
þau öfl, sem stóöu lengst til
hægri og vinstri snerust gegn
henni. Skæruliðar beggja létu i
vaxandi mæli til sin taka.
1 marzmánuöi siöastliðnum
féllst Duarte á þau tiimæli her-
foringjanna að taka sæti i
stjórnarnefndinni, og flokkur
hans, kristilegri flokkurinn,
mælti með þvi. Duarte hafði til
þessa verið vinsælasti stjórn-
málaleiðtogi landsins en nú
snerust vinstri öflin gegn hon-
um. Andstaða þeirra gegn hon-
um hefur enn aukizt, þar sem
áhrif hægri sinna hafa bersýni-
lega farið vaxandi i stjórnar-
nefndinni.
Atburðir siðustu vikna hafa
boriðþess óljós merki, að óöldin
fari vaxandi. Morðin á sex
helztu leiötogum vinstri aflanna
og bandarisku nunnunum eru
augljós merki um það. 1 bæði
skiptin voru skæruliðar hægri
manna aö verki.
EFTIR morðið á nunnunum
taldi Bandarikjastjórn sig þurfa
að taka betur i taumana. Hún
svipti stjórnina i E1 Salvador
öllum efnahagslegum stuðningi
um ótiltekinn tima.
Hershöfðingjunum var ljóst,
að erfitt væri fyrir stjórnina að
missa aðstoö Bandarikjanna.
Viðbrögð þeirra urðu sú aö snúa
sér til Duarte og biðja hann um
aö verða forseta landsins, en
það hefur verið forsetalaust sið-
an i byltingunni 1979. Duarte
féllst á þetta, en setti ýmis skil-
yrði um aö haldið yröi áfram
aðgerðum til að vinna gegn
fátæktinni i landinu m.a. með
skiptingu stórjarða.
Vinstri menn segjast trúa þvi
illa, að við þetta verði staðið.
Duarte sé nú annar maöur en
1972, þegar herinn rak hann sem
nýkjörinn forseta úr landi.
Vinstri menn segja einnig, að
raunverulega verði Duarte ekki
nema toppfigúra. Hin raunveru-
legu völd verði i höndum þess
manns, sem var tilnefndur
varaforseti, en hann er Jamie
Abdul Gutierrez ofursti, sem
jafnframt verður yfirmaður
hersins. Hann er talinn hægri
sinnaður.
Bandarikjastjórn hefur hins
vegar tekið vel tilnefningu
Duartes sem forseta. Hún hefur
hafið efnahagslega aðstoð við
stjórn E1 Salvadors að nýju.
Einnig þykir liklegt, að hinar
frjálslyndari stjórnir i Suður-
Ameriku taki Duarte sæmilega,
en hann dvaldi bæði i Venezuela
og Perú á útlegðarárum sinum
og naut gestrisni þar.
Duarte hefur tilkynnt, að
hann muni bráðlega heimsækja
þessi riki og jafnframt heim-
sækja Vestur-Evrópu. Hann
hefur haft talsvert samband við
kristilegu flokkana þar og hefur
til merkis um það mynd af
Konard Adenauer i skrifstofu
sinni.
DUARTE er 55 ára gamall,
fæddur og uppalinn i San Salva-
dor. Faðir hans var efnaður
klæðskeri, en móðir hans var
komin af Indiánaættum. Hann
lauk verkfræðiprófi við háskóla
i Indiana i Bandarikjunum,
ásamt bróður sinum Kona hans
menntaðist einnig i Bandarikj-
unum og hafa þau bæði þvi
tengsli við Bandarikin frá
námsárunum.
Ekkert af sex börnum þeirra
hefur hins vegar notið menntun-
ar i Bandarikjunum. Duarte
segist ekki hafa efni á að styrkja
þau til náms þar.
Eftir heimkomuna frá nám-
inu i Bandarikjunum stundaði
Duarte verkfræðistörf i San
Salvador, en hóf jafnframt af-
skipti af stjórnmálum. Hann
var kosinn borgarstjóri i San
Salvador 1964 og endurkosinn i
næstu borgarstjórnarkosning-
um.
Hann átti frumkvæði að stofn-
un Kristilega flokksins i E1
Salvador og varð fyrsti for-
maður hans. Hann var fram-
bjóðandi flokksins i forseta-
kosningunum 1972 og bar sigur
úr býtum, eins og áður segir.
1 viðtali, sem Aftonbladet I
Stokkhólmi átti við Duarte i
aprilmánuði siöastl. lagöi hann
mikla áherzlu á að skipting
stórjarða kæmist i framkvæmd
og hin nýja stétt sjálfseigna-
bænda styrkt til að geta notiö
sin. E1 Salvador væri fátækt
land og þetta gæti ekki tekizt,
nema með aðstoö Bandarikj-
anna, en þaö þyrfti ekki að
kosta, að E1 Salvador yrði lepp-
riki þeirra.
Vinstri skæruiiöar að æfingum