Tíminn - 04.01.1981, Side 24
A
Slmi: 33709
NÓTTU OG DEGI ER VAKAA VEGI
Sunnudagur4. janúar 1981 2. tölublaö
Gagnkvæmt
tryggingafé/ag
MSIGNODE
Sjálfvirkar bindivélar
Sjávarafurðadeild
Sambandsins
Simi 28200
‘faÍl'iiWwrrWTTMWi
Menntaskólinn á Egilsstöðum:
Menntaskólinn á Egilsstööum.
Orari uppbygging
en bjartsýnustu
menn vonuðu”
— segir Vilhjálmur Einarsson rektor
FRI — i ár er annar veturinn
sem Menntaskólinn á Egilsstöö-
um starfar en viö skólann eru nú
18 kennarar auk rektors og um
100 nemendur.
— Þetta hefur oröið örari upp-
bygging hvað snertir innra starf'
skólans, nám og kennslu, heldur
en bjartsýnustu menn höfðu
þorað aö vona, sagði Vilhjálmur
Einarsson rektor i samtali við
Timann.
— 1 fyrra voru hér rúmlega
100 nemendur og þvi hefur þeim
fjölgað um 60 og i vor eigum viö
von á 25 stúdentum frá skólan-
um.
— Þannig hefur ekki tekið
nema tvö ár fyrir skólann aö
komast i frambærilega stærð
hvað nægilega fjölbreytt náms-
framboð snertir en nú eru 6
brautir kenndar við skólann, og
maður er hvað glaöastur yfir
þessari góðu byrjun en fram-
undan er mikið verk sérstak-
lega i bygginarmálum.
— Frekari þróun skólans hvað
stærð snertir er háö þvi hvað
byggt verður mikið heima-
vistarrými en von er til að á
næsta ári verði hafin bygging
heimavistar sem gæti rúmað
40-50 nemendur og að hún kom-
ist i notkun eftir tvö ár. 1 milli-
tiðinni erum við hinsvegar i
nokkrum vandræbum þvi reikna
má með frekari fjölgun nem-
enda.
— Við erum hluti af ákaflega
góöu samstarfi við aðra skóla i
fjórðungnum sem sinna fram-
haldsnámi en það eru Eiðar og
framhaldsdeildirnar á Seyðis-
firði og Neskaupstað, en á Nes-
kaupstað er jafnfram Iðnaðar-
skóli Austurlands. Auk þess hef-
ur verið starfrækt framhalds-
deild á Höfn þótt svo hafi ekki
verið i vetur.
— Allir þessir skólar eru rekn-
ir eftir samræmdu kerfi fjöl-
brautaskóla en kennarar viö þá
koma saman einu sinni til tvis-
var á hverri önn og samræma
sitt starf en nemendur þessara
skóla hittast einnig á nemenda-
mótum sem haldin eru. Þessi
mál hafa tekiö þá ákveðnu
stefnu að Menntaskólinn er
meginhlekkurinn i samfelldri
keöju sem nær um fjórðunginn.
Styðjum heimabyggð-
ir.
— Það hefur veriö stefna okk-
ar I skólanum að styðja alla
eðlilega viðleitni heiíaabyggða
til að koma þar upp framhalds-
námi en þetta er einn þáttur
byggðastefnunnar. Þetta á við
þá staði þar sem nemendafjöldi
er nægur og miðar að þvi að
nemendur geti verið við nám
heima við eins lengi og kostur er
enda hljóti þeir þar sambærilegt
nám og við fjölmennari skóla,
en með áfanga- og deildarstjórn
gerum við nokkuð i þvi að
tryggja að um sambærilegt nám
sé að ræða.
— Þeir nemendur sem heima
eiga á Mið-Austurlandi og eru i
Vilhjálmur Einarsson.
skólanum fara héðan heim um
helgar og þótt félagslif skólans
gjaldi þessa nokkuð þá eru tvær
hliðar á þessu máli sem og
mörgum öðrum.
— Með þessu þá halda þessir
nemendur sambandi við heima-
byggð sina og eru þar virkir i
félags-og atvinnulifi og ég hef
viöa fengið fréttir frá aðstand-
endum þessa fólks þar sem það
lýsir ánægju sinni með þetta
fyrirkomulag.
— Heimamenn telja þetta
ómetanlegan feng að þessi
byggðalögeru þannig ekki þurr-
ausin fólki i þessum aldurs-
flokkum i 8 mánuði samfellt, ef
frá eru talin jólafri, og telja þaö
mikilvægt að fá nemendurna
heim eins oft og kostur er. Unga
fólkið metur einnig það að geta
haldið þannig tengslunum viö
heimabyggðina og þetta mál er
stærra en i fljótu bragði virðist.
Meira aðkomufólk
— Við vildum gjarna geta tek-
ið meira af fólki utan /jórðungs-
ins inn i' skólann þvi ekki æski-
legt að hann verði einangraður
fjórðungsskóli. Ungt fólk sækir i
það mikinn fróðleik og reynslu
að kynnast fólki úr öðrum fjórð-
ungum en þetta veröur þó ekki
fyrr en skólinn stækkar.
— Hinsvegar má reikna með
að hann stækki ört og viö erum
bjartsýnir á fjölgun nemenda á
næstunni og að byggðaflóttinn,
sem hvað mestur varð undir
1960 sé nú úr sögunni. Hér eru
miklir möguleikar sem eftir er
að nýta, og verða nýttir á næstu
árum, eins og til dæmis á sviði
orkumála og reikna má með að
samhliða þvi vaxi þörfin fyrir
þjónustu af ýmsu tagi.
Vilhjálmur gat þess i lok sam-
talsins að hann væri bjartsýnn á
framtið skólans, það mundi
væntanlega rofa til i byggingar-
málum hans á næstunni, ein-
hugur rikti um skólann meðal
fólks og nokkur festa væri kom-