Tíminn - 08.02.1981, Blaðsíða 4

Tíminn - 08.02.1981, Blaðsíða 4
 4 Sunnudagur 8. febrúar 1981 ***í spegli tímans „I gamla daga hefðu konur ekki vogað sér að koma inn i þessa búð, þvi að þá var þetta fyrirtæki einungis fyrir karlmenn, en nú eru það ekki siður konur sem kaupa skotapils hjá okkur”, sagði William Kinloch Anderson, hinn 73 ára gamli fyrrv. framkvæmdastjóri William Anderson and Sons i Edin- burgh. Það fyrirtæki hefur i yfir hundrað ár framleitt hin hefðbundnu ,,kilt” eða skota- pils. Fimmti ættliður Ander- sons-fjölskyldunnar hefur nú forstöðu fyrirtækisins á hendi. 1974 breytti fyrirtækið um nafn og nefnist siðan Kinloch Anderson. Um svipað leyti fóru forráðamenn þess að leggja áherslu á að fram- leiða pils fyrir konur, trefla, húfur og sjöl úr hinum fal- legu skosku efnum. Þessi framleiðsla er seld viða um heim, og má segja að um 80% af framleiðslunni fari i útflutning. Amerikumenn sækjast mjög eftir þessum vörum. Douglas Anderson, sem er aðalforstjórinn nú, segist ekki vera i skotapilsi dag- lega, heldur venjulegum jakkafötum, — en þar sem þetta er þjóöbúningur okkar Skota, þá vil ég syna bún- ingnum virðingu og nota hann þvi helst viö hátiðleg tækifæri, sagði forstjórinn er hann var spuröur hvort hann notaði ekki alltaf eigin fram- leiðslu . — Viö Deirdre, kona 011 fjölskyldan 1 skotapilsum að spila skoskan ræl. Skota pilsin halda enn velli min, og börnin okkar þrjú, erum stundum um helgar öll i skotapilsum, einkum ef éitthvað stendur til, eins og gestaboð eða tónlistarsam- komur, en öll fjölskyldan leikur á eitthvert hljóðfæri, segir Douglas Anderson for- stjóri. Árum saman hefur veriö bollalagt um það hvort Skot- ar notuðu nærbuxur innan undir þennan búning. Ander- son segir, að auðvitaö notr menn og konur nærföt nú til dags, en þessi orðrómur um að Skotar væru berir innan undir pilsunum væri mjög gamall og það hefði vissu- lega átt sér stað á 11. og 12. öldinni að sum skosk heríylki töldu það sýna karlmennsku að láta kulda ekkert á sig fá, og klæðast engu innan undir pilsunum. Sagt er að til hafi verið hershöfðingjar, sem heimtuðu spegil á völlinn við liðskönnun, til þess að láta hermenninga ganga út á, til að ganga úr skugga um að þeir væru ekki aö stelast til að vera i buxum. En nú selj- um við dökkbláar eða dökk- grænar nærbuxur með skotabúningunum, sagöi Douglas Anderson, en þeim er aldrei stillt út i búðar- gluggann! Meðlimir bresku konungsfjölskyidunnar hafa lengi veriö fastir viðskiptavinir. Hér sjáum við Karl Bretaprins 1 skoskum bún- ingi. Douglas Anderson, forstjori 1 Kinloch Anderson sýnir úrvalið af hinum fallegu skosku ullarefnum 1 heföbundnum litum og munstrum sem hafa haldist óbreytt um aldaraöir. Með morgunkaífinu ódýrt, með fallegum litlum garði og algjörlega gallalaust hús'. — Já, góði littu við hjá okkur þegar þú vilt.. nýi varðhundurinn okkar þarf að fá svolitla æfingu. krossgáta H* 3504. Lárétt 1) Pilárar. 5) Barn. 7) Nögl. 9) Orka. 11) Stafur. 12) Kyrrð. 13) Elska. 15) Naga. 16) Málmur. 18) Rika. Lóðrétt 1) Hundar. 2) Grönn. 3) Kusk. 4) Skel. 6) Stroki. 8) Happ. 10) Leyfi. 14) Rani. 15) Fuglamál. 17) Greinir. Ráðning á gátu No. 3503 Lárétt 1) Viknar. 5) Ott. 7) Nöf. 9) Tál. 11) DL. 12) Si. 13) Ull. 15) Tað. 16) Asi. 18) Snún- ar. Lóðrétt 1) Vindur. 2) Kóf. 3) NT. 4) Att. 6) Slfður. 8) Oll. 10) Asa. 14) Lán. 15) Tin. 17) Sú. bridge Suður gerðist heldur kjaftagleiður i sögnum i spili dagsins og það varð til þess að vesturgatlagt fyrirhann gildru i vörn- inni. Norður. S. 84 H. 842 T. AG1083 L. 1072 Vestur. S. KD107 H.K T. KD942 L.D54 Suður. S. 9 H. ADG10976 T. - L. AG963 1 tvimenning varð lokasamningurinn við flest borð 5 hjörtu i suður, eftir að AV voru komnir i 4 spaða og þegar vörnin byrjaði á að spila tvisvar spaða, komst suður ekki inni borð til að svina hjartanu. Hann varð þvi að leggja niður hjartaás- inn. Eftir það var svo auðvelt að gefa að- eins einn slag á lauf. Við eitt borðið gengu sagnir þannig: Vestur Norður Austur Sður 1 hjarta dobl 2tiglar 4spaðar 51auf dobl 5hjörtu dobl. Vestur spilaði út spaðakóng og austur sýndi jafna tölu. Vestur grunaði að suður ætti 7-5 i hjarta og laufi eftir sagnir og ef hann átti eyðu i tigli heima átti hann ekki innkomu til að svina hjartanu. Vestur langaði samt að fá á hjartakónginn sinn svo hann spilaði tigli i öðrum slag, það gat hvorteð var ekki kostað neitt. Suður fór himinlifandi uppmeð ásinn og grunaði vestur alls ekki um græsku. Hann spilaði þvi hjartaáttunni 6g hleypti henni. Þar- með fékk vestur á hjartakóng og svo nældi vörnin sér i tvo slagi á lauf áður en lauk þvi suður varð að spila þvi að heiman. Suður hefði auövitað getað verið örlitið tortryggnari i garð vesturs. En aðalvit- leysuna gerði suður þegar hann sagði 5 lauf. Þaö var litur sem ekki kom neinum við þvi suður ætlaði hvortsem var að spila 5 hjörtu. S/AV Austur. S. AG6532 H. 53 T. 765 L. K8

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.