Tíminn - 08.02.1981, Blaðsíða 20

Tíminn - 08.02.1981, Blaðsíða 20
28 Sunnudagur 8. febrúar 1981. Þegar a llbur, fara menn aö bjarga sér á eigin spytur Sundnámskeið fyrir aldraða í sundhöllinni A ttrœtt fólk lœrir sund Það vekur athygli, hversu laginn Ernst Backman er viö að koma nemendum sinum á flot og fá þá til þess að yfirbuga óttann við vatnið. Félagsmálaráð Reykjavíkur byrjaði sundkennslu á síðasta ári. Mikill áhugi um sundið. Þessier að xfa baksund, þvi málin veröur að kanna frá báðum hliðum. Rœtt við Ernst Back- man, sundkennara Að skilgreina sund i landi, — þarsem menn við sjávarsiðuna, menn i nábýli við vaöla og fljót, drukknuðu allt að þvi skilvis- lega mann fram af manni, og stundum á ótrúlegustu stöðum, — er ekkert sérlega auðvelt. Það var sjálfsagður hlutur á is- landi að drukkna, en að synda var á vissum timum nær yfir- gengileg sérgrein. Samt kunnu fornmenn, a.m.k. konungar, sund og vafalaust ýmsir aðrir, en smám saman varð unaðurinn við að drukkna og að verða úti á fjallvegum, öllum öðrum iþróttum og mann- raunum göfugri. En að þvi dró þó um siðir að einhverjir frammúrstefnumenn sáu að ekki mátti við svo búið standa, og byrjuðu að kenna sund. Liklega hafa Lárus Rist (1879—1964) sundkennari og Páll Erlingsson verið með þeim fyrstu er kenndu sund, Lárus synti yfir Eyjafjarðarál 6. ágúst árið 1907, alklæddur og i sjó- klæðum, og þótti mikil undur. Að komast hjá sundi. En fyrir sund höfðu menn þó sinar aðferðir til að sigrast á óvæðum vötnum, öðruvisi en sundriöandi, ellegar á báti. Til er ágæt lýsing af þeirri iþrótt að komast hjá sundi þannig, en hana er að finna i bók Thors Vilhjálmssonar um Kjar- val, en þar segir á þessa leið. „1 Söguþáttum landpóstanna er litil saga af Oddi Sverrissyni sem var að koma austan og kom aö Jökulsá i Lóni sem rann milli skara. Leizt Oddi illa á að hún væri fær og fór frammeð ánni. Bar þá að Björn prest Þorvalds- son i Stafafelli og var hann riö- andi. Fóru þeir með ánni og taldi prestur hana ófæra. Segir þá Oddur: Þá fer ég yfir hana. — Ætlar þú þá að fljúga? Se'g- ir prestur. Nei ég veð hana, viltu að ég beri yður prestur? Prestur tdk þvi dauflega. Fer Oddur þá ofan fyrir skörina, og tók vatnið fullt i bringspalir. Spyr hann þá prest hvort hann vilji koma á heröar sér, og segir prestur: Hvað verður þá um hestinn? Snarast Oddur þá upp og hratt hestinum ofan i, tók prest á herðar sér, teymdi hestinn og óð vatnið nærri þvi i hendur. En ef- laust hefur hann haft góöa stöng, bætti sögumaður við. öðru sinni segir sagan að Oddur hafi þurft að fara yfir straumbólgiö fljót og óárenni- legt og hefðu aðrir horfið frá. Þá tekur karl til bragðs að binda á sig firnamiklar steinhellur og skriða eftir botninum yfir fljótið þar til hann kom á hinn bakkann og leysti af sér hellurnar, og hristi sig. Um Odd var ortur Ferða- sálmur i gamantón." Sundkennsla í Reykjavík. Þessu greinarkorni var það aldrei ætlað, að verða sögulegt yfirlit um sund, en sund- frömuðir landsins komu fram um aldamótin, menn eins og LárusJRist og Páll Erlingsson f. 1856, en hann kenndi sund i Reykjavika.m.k. til ársins 1921. Páll var bróðir Þorsteins Erl- ingssonar, skálds og faðir þeirra bræðra Erlings Páls- sonar, yfirlögreglumanns, Steingrims á Elliðavatni, ólafs Pálssonar, sundkennara, sem nú er nýlátinn og Jóns Páls- sonar sundkennara, en sá siðasttaldi er nú einn á lifi. Þeir feðgar ásamt Lárusi, efldu sund i landinu meö sundafrekum og sundkennslu, sem þeir stunduöu allir, meira og minna. Páll Erlingsson byggöi fyrstur upp gömlu sundlaug- arnar i Laugardal, er stóðu hinummeginn við veginn þar sem nú er Laugardalslaugin, en þó aðeins vestar. Kenndi Páll fyrst mönnum, sem voru annars að læra latinu, eða skólapiltum, þvi yfirvöld sáu aö skynsamlegt var að geta fleytt sér i fleiru en grisku og latinu.

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.